Þjóðmál - 01.12.2018, Page 49

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 49
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 47 Stéttasátt er undirstaða verðstöðugleika Kjarasamningar og kjaraumræða síðustu ára bera vott um sívaxandi spennu á milli starfs stétta þar sem stóru verkalýðsfélögin eru einbeitt í því að halda í þann launa strúktur sem þjóðarsáttin festi niður. Aftur á móti eru æ fleiri faghópar háskólamenntaðra staðráðnir í því að brjótast út úr þessum viðjum. Þessi spenna hefur þegar kallað fram gríðar- lega miklar launahækkanir á almennum vinnumarkaði árið 2015 sem sigldu í kjölfar kjarasamninga heilbrigðisstarfsfólks, kennara og fleiri stétta. Sama virðist ætla að gerast í komandi kjarasamningum þar sem hin almennu verkalýðsfélög hafa tekið launa úrskurði Kjararáðs sem fyrirmynd. Fólk getur haft ólíkar skoðanir á því hvað þingmenn eigi að fá í laun – en það eru í sjálfu sér engin hagfræðileg rök fyrir því að fólk í öðrum stéttum eigi rétt á því að fá sömu launahækkanir og þau sem sitja á löggjafarþingi landsins. En það virðist vera aukaatriði. Á sama tíma virðist sem þau hagfræði hugtök sem raunverulega skipta máli fyrir langtímakaupmátt á almennum vinnumarkaði, s.s. tekjur fyrirtækja og framleiðni á vinnustund, virðast ekki tekin til greina í kjaraumræðunni. Lág verðbólga á Íslandi verður aðeins tryggð til langframa með einhvers konar stéttasátt um launaákvarðanir – þar sem stöðugleiki á vinnumarkaði er undirstaða verðstöðugleika. Hér væri hægt að horfa til Norðurlandanna þar sem mjög svipuð viðmið ríkja gagnvart velferð og jöfnuði – og fyrst þeim heppnaðist að ná stéttasátt um ákveðið launabil ætti slíkt einnig að vera gerlegt hérlendis. Hvað varðar framkvæmdina sjálfa við gerð kjarasamninga stingur það einkum í augu hvað eftirfylgnin hefur verið slök – það er að ákveðnum hópum sem hafa staðið utan heildarkjarasamninga hefur síðan heppnast að þvinga fram mun hærri launahækkanir en hið „stóra“ sam- komulag gerði ráð fyrir. Sérstaklega berast böndin að hinu opinbera hvað þetta snertir. Jafnvel má segja að hinn opinberi geiri hafi verið merkisgjafinn í kjarasamningum síðustu ára og þannig leitt áfram þær miklu launahækkanir sem nú hafi komið fram. Það er þó án efa mjög viðurhlutamikið verkefni að ætla að koma á stéttasátt á Íslandi. Íslendingar hafa sterka réttlætiskennd – þó þeir séu ekki endilega alltaf sammála um hvað réttlætið feli í sér. Það er deginum ljósara að Íslendingar geta ekki tekið upp fastgengi með núverandi aðferðafræði í kjarasamningum. Raunar gengur engin peningastefna upp á Íslandi svo lengi sem ofangreind stéttaólga leiðir til nafnlaunahækkana á sama hraða og verið hefur undanfarin ár og áratugi. Höfundur er dósent og forseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands. 1. „8 verkalýðsfélög boða verfall" (1940, 31. desember). Þjóðviljinn, bls. 1. 2. Ólafur Björnsson. (1941, 5. janúar). Kaupgjaldssamningarnir og dýrtíðin. Morgunblaðið. Það er þó án efa mjög viðurhlutamikið verkefni að ætla að koma á stéttasátt á Íslandi. Íslendingar hafa sterka réttlætiskennd – þó þeir séu ekki endilega alltaf sammála um hvað réttlætið feli í sér.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.