Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 51

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 51
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 49 Aðspurð segir Sigríður að samstarfið í ríkisstjórn gangi vel. Flokkarnir þrír séu ábyrgir í sam- starfinu og ákveðnir í að láta það ganga enda með skýran stjórnarsáttmála til grundvallar. „Þetta er vinnusöm ríkisstjórn, hver ráðherra sinnir sínum verkefnum af heilum hug,“ segir Sigríður. „Vissulega eiga sér stað málamiðlanir enda flokkarnir um margt ólíkir. Við vissum það í upphafi að enginn næði öllu sínu fram í þessu, líkt og jafnan er í ríkisstjórnarsamstarfi en kannski aðeins meira núna þegar það eru þrír flokkar í samstarfinu. En menn eru að reka þjóðfélag og umhugað um að láta það ganga. Við erum um leið með breiðan hóp þingmanna á þinginu. Allir hafa þar sínar skoðanir og hugmyndir og eru ófeimnir við að koma þeim á framfæri.“ Gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar halda því fram að hún sé verklaus og nokkurs konar „status quo“ ríkisstjórn, þ.e. að samstarfið gangi út á óbreytt ástand í sem flestum málum. Hvernig horfir það við þér? „Mér hefur ekki fundist það,“ segir Sigríður. „Nýsamþykkt fjárlög eru til dæmis til marks um áherslur ríkisstjórnarinnar um að styrkja grunnstoðir og velferð. Við erum vissulega að auka útgjöldin og það orkar yfirleitt tvímælis frá okkar bæjardyrum séð, þ.e. okkar sjálfstæðismanna. En við erum þó sammála um að láta þá þessu auknu útgjöld renna til tiltekinna málaflokka og reyna þá að draga úr útgjöldum á öðrum sviðum. Það eru hins vegar allir mjög faglegir í sínum verkum og taka á hlutum af stillingu og yfirvegun. Og það er nú það sem hefur vantað í stjórnmálin á liðnum árum.“ Sigríður var ein af stofnendum vefritsins andriki.is. Í 20 ár hélt vefurinn úti daglegum skrifum um stjórnmál þar sem frjálshyggja var meginstefið. Margir frjálshyggjumenn líta því hvað helst til Sigríðar sem helsta málsvara frjálshyggjunnar innan ríkisstjórnarinnar. Það verður því ekki hjá því komist að spyrja hana hvernig það gangi í samstarfi við flokk eins og Vinstri græna. „Ég, eins og aðrir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, er auðvitað hugsi yfir þeirri miklu útgjalda aukningu sem orðið hefur. Ég hef það að leiðarljósi hér í dómsmálaráðuneytinu, að farið sé vel farið með fé skattgreiðenda og reynt að stemma stigu við stjórnlausri stækkun undirstofnana ráðuneytisins,“ segir Sigríður en bætir við að þeir málaflokkar sem heyra undir dómsmálaráðuneytið séu flestir þess eðlis að það ríkir nokkuð þverpólitísk samstaða um að tryggja starfsemi þeirra. Undir ráðuneytið heyri flestar þær stofnanir sem myndu tilheyra lágmarksríki, ef svo má að orði komast. „Ég tel að ríkið eigi að draga sig út úr verkefnum og þjónustu sem aðrir geta sinnt. Síðan er líka ákveðin þjónusta sem ríkið þarf að veita og þar eigum við að reyna að bæta þjónustuna eins og hægt er,“ segir Sigríður. „Þar vegur rafræn stjórnsýsla mjög þungt og ég hef beitt mér í þeim tilgangi að auka hana. Það er hægt að bæta og einfalda þjónustuna töluvert með því að gera hana í auknari mæli rafræna. Eitt af því sem við höfum unnið að eru rafrænar þinglýsingar sem verða bylting fyrir hinn almenna borgara og ég hef lagt fram frumvarp þess efnis í þinginu. Stefnt er að því að þinglýsingarferlið verði nánast sjálfkrafa og biðin eftir þinglýsingu skjala færi þá úr nokkrum vikum niður í nokkur sekúndubrot. Úr því að við getum skilað skattskýrslunni með þessum einfalda hætti þá á allt annað að vera hægt í þessu. Við erum komin langt í þessum málum á ýmsum sviðum, t.d. með vefsíðunni island.is sem menn eru farnir að nota í auknum mæli. Við eigum að halda áfram á þessari braut. Ef við ætlum á annað borð að veita opinbera þjónustu þá þurfum við að gera það með eins hagkvæmum og einföldum hætti og hægt er.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.