Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 56

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 56
54 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Mér fannst aðstandendur kvennafri.is draga rangar ályktanir, til að skekkja umræðuna. Mér fannst þessi framsetning óboðleg. Ég á tvær dætur og mér finnst það ekki vera rétt skilaboð til ungra kvenna að sitja hjá og láta svona málflutning átölulausan. Ef maður spyr 10-12 ára gömul börn að því hvort að karlar og konur séu með sömu laun fyrir sömu vinnu, þá svara þau umsvifalaust neitandi enda hefur þeim verið kennt jafnvel í skólum að munurinn sé sláandi. Það kann að vera að einhverjum finnst þetta góð leið til að efla baráttuanda ungmenna en ég tel meiri hættu á að börn taki þessum skilaboðum sem náttúru lögmáli. Það er óþolandi að senda krakka út í lífið haldandi að þetta sé svona, að kjafta laun kvenna niður með þessum hætti.“ Sigríður segir að þessi skrif hennar hafi ekki þurft að koma neinum á óvart en hún hafi haldið þessari skoðun og staðreyndum á lofti í fjölda ára. „Ég fékk gagnrýni á mig fyrir að ræða þetta á þessum degi, þrátt fyrir að vera nú einmitt kona. Ég spyr hvort það sé þannig að bara sumar konur megi tjá sig um þessi mál á þessum degi, degi þar sem er fagnað m.a. áratugalangri baráttu kvenna fyrir því að rödd þeirra heyrist á öllum sviðum samfélagsins og að á þær sé hlustað,“ segir Sigríður. „Einhverjum fannst kannski rangt af mér að draga svona úr stemningunni sem hafði verið byggð upp af aðstandendunum, en svona mál mega ekki vera bara einhver stemnings- mál. Þessi barátta skiptir miklu máli hér á landi og enn meira máli í löndum sem eru ekki komin jafnt langt og við í jafnréttis- málum. Þannig að ég ætla að leyfa mér að taka áfram þátt í þessari umræðu þegar mér hentar. Ef það þá hefur eitthvað upp á sig, því svo getur verið að það hafi ekkert upp á sig. það eru margir sem hafa gefist upp á því að taka þátt í þessari umræðu. Virtir tölfræðingar jafnvel verið færðir í kaf.“ En á það ekki við um svo margt í stjórnmálum eða þjóðfélagsumræðunni, það eru búnar til mýtur til að skapa ákveðna stemningu fyrir ákveðnum málum? „Það eru auðvitað margir sem hafa hagsmuni af því að viðhalda áhyggjum fólks af ákveðnu misrétti. Það eru einnig margir sem starfa við það að leiðrétta misrétti og það hentar þeim auðvitað ekki ef það tekst að útrýma því og þeir verði óþarfir,“ segir Sigríður. „Mér finnst þetta mikilvægt, því nú hafa verð sett lög um jafnlaunavottun. En það má á sama tíma spyrja sig, hvað á að votta? Það á að votta að það sé ekki munur á milli kynjanna, en þá þarf fyrst að finna út hvort það sé ein- hver munur. Það verður fróðlegt að sjá hvort að launamunurinn verði enginn þegar við fáum fram jafnlaunavottanir. Það gengur hins vegar ekki að menn noti sömu aðferðarfræði og var viðhöfð á Kvennafrídeginum. Menn verða að gera kröfu um faglegri framsetningu. Það er vissulega munur á launum kynjanna, en ég hef ítrekað bent á að það stafar ekki af skipulögðu misrétti, aðför eða samsæri gegn konum, heldur út af öðrum mælanlegum og ómælanlegum þáttum. Það eru aðrir sam- félagslegir þættir sem hafa áhrif og við eigum að verja tíma okkar í ræða þá til að komast að rót vandans. Af hverju fara konur fyrr heim úr vinnu, af hverju eru þær að oftar að sækja börnin í skólann, af hverju eru þær frekar heima þegar börnin eru veik? Það þarf hver kona að eiga þetta við sjálfa sig. En þetta var mjög merkilegt, því þær sem stóðu að þessum kvennafrídegi vissu upp á sig sökina, þær vissu að það væri verið að draga rangar ályktanir og setja tölurnar fram með röngum hætti og viðurkennda það í kjölfarið á þessari umræðu – en sögðu um leið að þær ætluðu ekkert að gera í því. Þá veit ég ekki alveg hvernig við eigum að ræða þessi mál.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.