Þjóðmál - 01.12.2018, Page 59

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 59
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 57 Hef gaman af rökræðum Af öllu framangreindu má sjá að Sigríður er óhrædd við að fara gegn straumnum. Þá liggur beint við að spyrja Sigríði hvort hún sé almennt óhræddur stjórnmálamaður, óhrædd við að taka umdeilda slagi eða erfiða umræðu? „Það er miklu auðveldara í bráð og lengd að tala hreint út en að bögglast með málin. Mér þykir það mikill kostur, fyrir bæði mig og aðra, að menn viti hvar ég stend. Það þýðir ekkert að fara hræddur í gegnum lífið, og hvað þá í stjórnmálum þar sem oft þarf að gera fleira en gott þykir,“ segir hún og brosir. „Ég skil þó vel að fólk hafi skoðanir á mínum störfum en ég finn það líka að fólk kann að meta að sumir hlutir séu sagðir hreint út og að fólk þarf ekki að velkjast í vafa um það hvaða skoðanir maður hefur. Ég held að það skipti máli fyrir stjórnmálamann, því það eru jú skoðanir hans sem skipta fólkið í landinu máli. En þótt ég veigri mér ekki við að ræða ýmis mál þá auðvitað getur maður ekki tekið alla slagi, því tíminn er takmarkaður og maður þarf að velja þau mál sem maður vill taka fyrir. En ég hef gaman af rökræðum og er iðulega tilbúin til þess að taka þátt í þeim.“ En hreyfir gagnrýni ekki við þér? „Hún getur alveg gert það ef hún er réttlát. Ég hef alveg skipt um skoðun og málefnaleg gagnrýni er auðvitað bara jákvæð,“ segir Sigríður. „En ómálefnaleg gagnrýni hreyfir ekki við mér og ég veiti henni sjaldnast athygli. Ég tel að gagnrýni sem rekin er af annarlegum hvötum styrki undantekningarlítið þann stjórnmálamann sem fyrir henni verður. Stóryrði og skítkast lýsa uppgjöf og ósigri þeirra sem slíkt stunda. Mér þykir miður þegar ég veit að menn eru ekki heilir í sinni gagnrýni þótt ég taki það ekki nærri mér. Ég hef aftur á móti fundið til með fólki sem hallar vísvitandi réttu máli, því ég veit að það er þá eitthvað annað þar að baki. Það má nefna sem dæmi að í sumum af þessum málum sem ég hef fengist við í minni ráðherratíð hefur fólk lýst því yfir á torgum að það hafi engin svör fengið hjá mér og ráðuneytinu við sínum málum, þrátt fyrir að ég hafi setið fundi með þeim og embættismönnum til þess eins að veita greinagóð svör og upp- lýsingar eins og lög leyfa." Sigríður bætir við að fjölmiðlaumfjöllunin sé þó yfirleitt nokkuð fyrirsjáanleg. „Sumir fjölmiðlar kjósa að hamast í tilteknum málum á meðan aðrir flytja fréttir af málum," segir Sigríður. „Ég hef hins vegar reynt að svara alltaf öllum spurningum sem vakna hvort sem það er hjá blaðamönnum, þingnefndum eða öðrum, það er það eina sem maður getur gert. Ég mæti alls staðar þar sem eftir því er óskað til þess að ræða hlutina og hef farið fram á að sem mest af því sé í beinni útsendingu til að fólk geti sjálft dregið sínar ályktanir en þurfi ekki að treysta á klippivald fjölmiðlanna. Ég held að maður geti ekki gert neitt meira. Maður þarf að vera tilbúin til þess að standa fyrir máli sínu og um leið að hlusta á aðra.“ Hvernig metur þú framtíð þína í pólitík? „Ég nýt þeirra verkefna sem ég sinni hér og heyra undir dómsmálaráðuneytið. Ég hef líka mjög gaman af því að vera í þinginu og naut þess að vera óbreyttur þingmaður í þann stutta tíma sem það var. Á meðan það er kallað eftir kröftum mínum þá er ég tilbúin að sinna þessum verkefnum,“ segir Sigríður að lokum. gislifreyr@thjodmal.is

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.