Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 59
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 57
Hef gaman af rökræðum
Af öllu framangreindu má sjá að Sigríður er
óhrædd við að fara gegn straumnum. Þá
liggur beint við að spyrja Sigríði hvort hún
sé almennt óhræddur stjórnmálamaður,
óhrædd við að taka umdeilda slagi eða erfiða
umræðu?
„Það er miklu auðveldara í bráð og lengd
að tala hreint út en að bögglast með málin.
Mér þykir það mikill kostur, fyrir bæði mig og
aðra, að menn viti hvar ég stend. Það þýðir
ekkert að fara hræddur í gegnum lífið, og
hvað þá í stjórnmálum þar sem oft þarf að
gera fleira en gott þykir,“ segir hún og brosir.
„Ég skil þó vel að fólk hafi skoðanir á mínum
störfum en ég finn það líka að fólk kann að
meta að sumir hlutir séu sagðir hreint út og
að fólk þarf ekki að velkjast í vafa um það
hvaða skoðanir maður hefur. Ég held að það
skipti máli fyrir stjórnmálamann, því það eru
jú skoðanir hans sem skipta fólkið í landinu
máli. En þótt ég veigri mér ekki við að ræða
ýmis mál þá auðvitað getur maður ekki tekið
alla slagi, því tíminn er takmarkaður og
maður þarf að velja þau mál sem maður vill
taka fyrir. En ég hef gaman af rökræðum og
er iðulega tilbúin til þess að taka þátt í þeim.“
En hreyfir gagnrýni ekki við þér?
„Hún getur alveg gert það ef hún er réttlát.
Ég hef alveg skipt um skoðun og málefnaleg
gagnrýni er auðvitað bara jákvæð,“ segir
Sigríður.
„En ómálefnaleg gagnrýni hreyfir ekki við
mér og ég veiti henni sjaldnast athygli. Ég
tel að gagnrýni sem rekin er af annarlegum
hvötum styrki undantekningarlítið þann
stjórnmálamann sem fyrir henni verður.
Stóryrði og skítkast lýsa uppgjöf og ósigri
þeirra sem slíkt stunda. Mér þykir miður
þegar ég veit að menn eru ekki heilir í sinni
gagnrýni þótt ég taki það ekki nærri mér.
Ég hef aftur á móti fundið til með fólki sem
hallar vísvitandi réttu máli, því ég veit að það
er þá eitthvað annað þar að baki. Það má
nefna sem dæmi að í sumum af þessum málum
sem ég hef fengist við í minni ráðherratíð
hefur fólk lýst því yfir á torgum að það hafi
engin svör fengið hjá mér og ráðuneytinu
við sínum málum, þrátt fyrir að ég hafi setið
fundi með þeim og embættismönnum til
þess eins að veita greinagóð svör og upp-
lýsingar eins og lög leyfa."
Sigríður bætir við að fjölmiðlaumfjöllunin sé
þó yfirleitt nokkuð fyrirsjáanleg.
„Sumir fjölmiðlar kjósa að hamast í tilteknum
málum á meðan aðrir flytja fréttir af málum,"
segir Sigríður.
„Ég hef hins vegar reynt að svara alltaf öllum
spurningum sem vakna hvort sem það er hjá
blaðamönnum, þingnefndum eða öðrum,
það er það eina sem maður getur gert. Ég
mæti alls staðar þar sem eftir því er óskað til
þess að ræða hlutina og hef farið fram á að
sem mest af því sé í beinni útsendingu til að
fólk geti sjálft dregið sínar ályktanir en þurfi
ekki að treysta á klippivald fjölmiðlanna. Ég
held að maður geti ekki gert neitt meira.
Maður þarf að vera tilbúin til þess að standa
fyrir máli sínu og um leið að hlusta á aðra.“
Hvernig metur þú framtíð þína í pólitík?
„Ég nýt þeirra verkefna sem ég sinni hér og
heyra undir dómsmálaráðuneytið. Ég hef líka
mjög gaman af því að vera í þinginu og naut
þess að vera óbreyttur þingmaður í þann
stutta tíma sem það var. Á meðan það er
kallað eftir kröftum mínum þá er ég tilbúin
að sinna þessum verkefnum,“ segir Sigríður
að lokum.
gislifreyr@thjodmal.is