Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 65

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 65
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 63 Sömuleiðis Alberts vinar míns Guðmunds- sonar, en ég hafði stillt mér upp fyrir framan ráðherrakontórinn hans og sagt: „Á bak við þessar luktu dyr er Albert sem neitar að tala við fréttastofuna.“ Að svo mæltu – nánast – birtist Albert í dyrunum og gekk út án þess að segja orð. Það þótti mikil óskammfeilni þegar ég stillti mér upp fyrir framan kontórinn. Þá nefni ég að samband okkar Jóns Baldvins var afar gott í ferð til Eystrasaltsríkjanna skömmu síðar og allar götur síðan, sem og Ólafs Ragnars Grímssonar. Við Óli Kr. Sigurðs- son hittumst á skákmóti ekki löngu eftir fréttir mínar um Olís. Ég sagði: „Þú sagðist ætla að reka ofan í mig vitleysuna.“ Við kímdum báðir. Sumarið 1992 lést Óli Kr. Sigurðsson á bökkum Norðurár í Borgarfirði. Og svo var það svanurinn Kári og Dröfn Ösp Snorradóttir sem Kári tók ástfóstri við. Saga þeirra af Tjörninni var líkt og úr ævintýri og vakti óskipta athygli landsmanna. Kári hafði festst í ís og voru fjaðrir klipptar úr væng hans svo hann var um tíma ófleygur. Þá í umkomuleysi Kára, hafnað af eigin tegund, hófst vinátta Kára og Drafnar. Ári síðar uxu honum vængir og hann sást síðast á Raufar- höfn. Með Jóni Baldvin í frelsisför Páll Magnússon bað mig að taka við erlend- um fréttum á Stöð 2, kannski til að róa pólitíkina og eigendur Stöðvar 2. Þá voru fjötrar A-Evrópu að trosna, Berlínarmúrinn að hrynja, Ceausescu leiddur fyrir aftökusveit og hið illa heimsveldi Sovétríkjanna í andar- slitrunum. Í kjölfar ódæðisverka Rauða hersins í útjaðri Vilnius í janúar 1991 – dagana sem stríð braust út við Persaflóa – fór ég með Jóni Baldvin til Litháen, Lettlands og Eistlands. Það var að sönnu hetjuför ráðherra. Sovéskir skriðdrekar voru í útjaðri Vilnius eftir að 13 manns höfðu fallið við sjónvarpsturn Vilnius. Jón Baldvin hitti frelsishetjuna Vytautas Landsbergis í vígbúnu þinghúsi Vilnius og úti fyrir stóð fólk vaktina við varðelda og beið þess sem verða vildi. Það var angist í augum fólks. Frá Vilnius fórum við til Riga í Lettlandi, þar sem skjalataska ráðherra hvarf við dular- fullar aðstæður að hætti KGB. Tveir sovéskir kollegar á hótelinu í Riga voru skotnir til bana af leyniskyttum eftir að við höfðum hraðað okkur út í bílalestina og haldið til Tallinn í Eistlandi. Þeir voru í anddyrinu þegar við hlupum út í bílana. Í Tallinn kom ég Jóni Baldvin og Lennart Meri í samband við CNN til þess að upplýsa um ástandið eftir að hafa Á myndinni hér til vinstri sést Hallur flytja fréttir fyrir utan höfuðstöðvar Olís um það að til stæði að bola Óla Kr. Sigurðssyni, eiganda Olís, út úr félaginu. Á efri myndinni sjást þeir Hallur og Óli Kr. takast í hendur. Hallur skrifaði síðar sögu félagsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.