Þjóðmál - 01.12.2018, Side 65
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 63
Sömuleiðis Alberts vinar míns Guðmunds-
sonar, en ég hafði stillt mér upp fyrir framan
ráðherrakontórinn hans og sagt:
„Á bak við þessar luktu dyr er Albert sem
neitar að tala við fréttastofuna.“
Að svo mæltu – nánast – birtist Albert í
dyrunum og gekk út án þess að segja orð.
Það þótti mikil óskammfeilni þegar ég stillti
mér upp fyrir framan kontórinn.
Þá nefni ég að samband okkar Jóns Baldvins
var afar gott í ferð til Eystrasaltsríkjanna
skömmu síðar og allar götur síðan, sem og
Ólafs Ragnars Grímssonar. Við Óli Kr. Sigurðs-
son hittumst á skákmóti ekki löngu eftir
fréttir mínar um Olís. Ég sagði:
„Þú sagðist ætla að reka ofan í mig vitleysuna.“
Við kímdum báðir. Sumarið 1992 lést Óli Kr.
Sigurðsson á bökkum Norðurár í Borgarfirði.
Og svo var það svanurinn Kári og Dröfn Ösp
Snorradóttir sem Kári tók ástfóstri við. Saga
þeirra af Tjörninni var líkt og úr ævintýri og
vakti óskipta athygli landsmanna. Kári hafði
festst í ís og voru fjaðrir klipptar úr væng
hans svo hann var um tíma ófleygur. Þá í
umkomuleysi Kára, hafnað af eigin tegund,
hófst vinátta Kára og Drafnar. Ári síðar uxu
honum vængir og hann sást síðast á Raufar-
höfn.
Með Jóni Baldvin í frelsisför
Páll Magnússon bað mig að taka við erlend-
um fréttum á Stöð 2, kannski til að róa
pólitíkina og eigendur Stöðvar 2. Þá voru
fjötrar A-Evrópu að trosna, Berlínarmúrinn
að hrynja, Ceausescu leiddur fyrir aftökusveit
og hið illa heimsveldi Sovétríkjanna í andar-
slitrunum.
Í kjölfar ódæðisverka Rauða hersins í útjaðri
Vilnius í janúar 1991 – dagana sem stríð
braust út við Persaflóa – fór ég með Jóni
Baldvin til Litháen, Lettlands og Eistlands.
Það var að sönnu hetjuför ráðherra. Sovéskir
skriðdrekar voru í útjaðri Vilnius eftir að 13
manns höfðu fallið við sjónvarpsturn Vilnius.
Jón Baldvin hitti frelsishetjuna Vytautas
Landsbergis í vígbúnu þinghúsi Vilnius og úti
fyrir stóð fólk vaktina við varðelda og beið
þess sem verða vildi. Það var angist í augum
fólks.
Frá Vilnius fórum við til Riga í Lettlandi, þar
sem skjalataska ráðherra hvarf við dular-
fullar aðstæður að hætti KGB. Tveir sovéskir
kollegar á hótelinu í Riga voru skotnir til
bana af leyniskyttum eftir að við höfðum
hraðað okkur út í bílalestina og haldið til
Tallinn í Eistlandi. Þeir voru í anddyrinu þegar
við hlupum út í bílana. Í Tallinn kom ég Jóni
Baldvin og Lennart Meri í samband við CNN
til þess að upplýsa um ástandið eftir að hafa
Á myndinni hér til vinstri sést Hallur flytja fréttir fyrir utan
höfuðstöðvar Olís um það að til stæði að bola Óla Kr.
Sigurðssyni, eiganda Olís, út úr félaginu. Á efri myndinni
sjást þeir Hallur og Óli Kr. takast í hendur. Hallur skrifaði
síðar sögu félagsins.