Þjóðmál - 01.12.2018, Side 68

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 68
66 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Önnur túlkun á húsnæðisskorti er að erfitt er fyrir sumar fjölskyldur að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Ástæðan getur verið of lágar tekjur (eða of hátt húsnæðisverð) eða að sparifé þeirra dugir ekki til þess að þær geti fengið bankalán. Í þessum hópi eru ungar fjölskyldur hlutfallslega flestar. Með tímanum hefur einfaldlega orðið æ erfiðara að komast inn á húsnæðismarkaðinn, alltént fyrir fólk sem vill eiga heimili sitt. Í skýrslu frá því í júlí á þessu ári kemur fram hjá Íbúða- lánasjóði að meðalaldur kaupenda að fyrstu íbúð hefur frá því á áttunda áratugnum hækkað úr 22 árum og 28 ár. Á sama tíma hefur því fólki sem fær aðstoð frá foreldrum sínum fjölgað jafnt og þétt. Við sjáum þetta sama mynstur í Svíþjóð, en með áhuga- verðum snúningi. Ungir Íslendingar sem ekki hafa tök á að fjármagna íbúðarkaup geta farið á leigu- markaðinn en sá valkostur er ungum Svíum að miklu leyti lokaður. Ég hef áður skýrt ástæðu þess, en hún er þak á húsaleigu sem komið var á árið 1942. Ungir Svíar sem vilja búa í áhugaverðum borgum hafa því neyðst til að kaupa sér húsnæði. Þar sem stórum hluta þjóðarinnar hefur þannig verið ýtt út af leigumarkaðnum, sem hann myndi mögu- lega vilja vera á, hefur húsnæðisverð að öllum líkindum hækkað meira en það hefði annars gert. Þetta hefur kallað á viðbrögð ríkisvaldsins. Leyfið mér að segja ykkur stutta sögu af afskiptum af húsnæðismarkaðnum og beina athyglinni að tengslum þessara afskipta og hvernig þau hafa, hvert af öðru og í sameiningu, gert aðstæðurnar vonlausar fyrir unga Svía. Í tilraun til að draga úr verulegri hækkun húsaleigu í kjölfar minni byggingafram- kvæmda í miðri síðari heimsstyrjöldinni valdi Svíþjóð, eins og mörg önnur ríki, að setja þak á húsaleigu. Afleiðingarnar voru nokkurn veginn þær sem hagfræðikenningar segja okkur að þær verði. Verulega dró úr ný byggingum sem varð til þess að ríkisstjórnin greip til þess að beita niðurgreiðslum. Dreifingaráhrif sem eru innbyggð í verðið voru bönnuð og í staðinn komu biðraðir. Í Stokkhólmi eru nú helmingi fleiri í biðröð en allir íbúar Íslands. Viðhaldi var haldið í lágmarki sem varð til þess að stór hverfi voru jöfnuð við jörðu á sjöunda áratugnum. Á fyrstu áratugum hámarkahúsaleigu var einnig sett þak á verð eignaríbúða til að koma í veg fyrir breytingar leigufyrirkomulagi. Verðlagseftirlitið var lagt niður árið 1969 og sú aðgerð hratt af stað mikilli bylgju flutninga úr leiguíbúðum í eigin íbúðir og hún stendur enn yfir. Þar sem leigumarkaðnum hafði verið lokað voru fjölskyldur, sem ekki höfðu tíma til að bíða, neyddar til að kaupa sér húsnæði og það varð sennilega til þess að fasteigna- verð hækkaði. Þetta á sér vitaskuld líka rætur í flutningi til borga, hækkandi launa og sílækkandi vaxta. Kaupgetuvandinn er ekki bundinn við Svíþjóð, hann er líka útbreiddur í mörgum öðrum löndum. Hækkandi fasteigna- verð leiðir að öðru jöfnu til aukinna skulda heimilanna. Það hefur gert ríkisstjórnina órólega. Á síðustu fjórum ártugum hafa þrjár stefnur í fasteignamálum breytt möguleikum ungra fjölskyldna enn meira.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.