Þjóðmál - 01.12.2018, Side 70

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 70
68 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Hugmyndafræði Chelsea Follett Miðstýring var verst fyrir konur Mikill hvítþvottur á sögunni hefur átt sér stað samhliða því að hundrað ár eru liðin frá rússnesku byltingunni. Mögulega er þó að finna fáránlegasta hvítþvottinn í nýlegri grein í New York Times þar sem því er haldið fram að konur í kommúnistaríkjunum hafi „notið margvíslegra réttinda og fríðinda sem á þeim tíma voru óþekkt í lýðræðisríkjum“. Raunveruleikinn er sá að þrátt fyrir fagur- galann um jafnrétti kynjanna leiddi miðstýringin af sér skelfilegt kynjamisrétti. Þegar enginn markaðshvati er fyrir hendi til að uppfylla þarfir fólks eru það konurnar sem gleymast fyrst. Verksmiðjur kommúnista létu meira að segja hjá líða að framleiða vörur sem mættu grunn- þörfum kvenna. „Á öllum þessum árum gat kommúnismi ekki einu sinni framleitt einföld dömubindi, sem konur hafa brýna þörf fyrir,“ skrifar Slavenka Draculić. Í bók sinni How We Survived Communism and Even Laughed segir hún frá þeirri daglegu vanvirðingu sem konur bjuggu við í Ungverjalandi, Póllandi, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu, Austur-Þýskalandi og heimalandi sínu, Júgóslavíu. Venjuleg dömubindi urðu eftirsóttur varningur á svarta markaðnum og flestar konur þurftu sætta sig við að þurfa að útbúa eitthvað til að nota í staðinn. Skipuleggjendur hagkerfisins beindu fram- leiðslunni frá öllu því sem taldist kvenlegt og þar af leiðandi hégómlegt og smáborgara- legt. Draculić segir að „í miðstýringu sem karlar stýrðu var vitaskuld ekkert rúm fyrir smámuni á borð við andlitsfarða“. Konur saumuðu gjarnan sinn eigin fatnað eða út bjuggu fegrunarmeðul úr því sem var að finna í eldhússkápunum þrátt fyrir að konur sem litu of vel út „gætu þótt grunsamlegar og þyrftu jafnvel stundum að sæta rannsókn“.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.