Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 72
70 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Rannsóknir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Erlendir áhrifaþættir bankahrunsins 2008
Íslenskur útdráttur úr skýrslu Félagsvísindastofnunar
1. Beiting hryðjuverkalaganna bresku
8. október 2008 gegn Landsbankanum,
Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu
var ruddaleg og óþörf aðgerð. Hún var
Bretum til skammar, sagði Mervyn King
lávarður, fyrrverandi seðlabankastjóri Breta,
skýrslu höfundi, Hannesi H. Gissurarsyni.
Því markmiði að koma í veg fyrir ólöglega
fjármagnsflutninga mátti ná með tilskipun
sem breska Fjármálaeftirlitið gaf út til útibús
Landsbankans í Lundúnum 3. október 2008.
2. Ekki hafa fundist nein merki um ólöglega
fjármagnsflutninga bankanna frá Bretlandi til
Íslands fyrir bankahrun, þótt breskir ráðherrar
hafi haldið því fram í samtölum við íslenska
ráðamenn. Rannsóknir á íslensku bönkunum
í Bretlandi hafa ekki leitt neitt ólöglegt fram-
ferði í ljós. Megnið af breskum innlánum var
notað í fjárfestingar í Bretlandi, sem veittu
hátt í 100 þúsund manns vinnu.
3. Bresk stjórnvöld björguðu öllum breskum
bönkum með aðgerðum sínum í októberbyrjun
2008 nema þeim tveimur sem voru í eigu
Íslendinga, Heritable og KSF. Þeim var neitað
um fyrirgreiðslu og lokað með tilskipunum.
Með því mismunuðu stjórnvöld á grundvelli
þjóðernis, sem gengur gegn reglum um innri
markað Evrópu. Samt var það mál ekki tekið
upp af Framkvæmdastjórn ESB.
4. Tvær aðgerðir skiptu miklu máli um þá
keðjuverkun sem varð í bankahruninu:
Danske Bank neitaði Glitni um fyrirgreiðslu
í september 2008, þegar hann ætlaði að
selja hinn norska banka sinn, með þeim
afleiðingum að Glitnir varð að leita til Seðla-
bankans um neyðarlán. Það setti af stað
bankahrunið. Breska fjármálaeftirlitið lokaði
KSF 8. október með þeim afleiðingum að
móðurfélagið á Íslandi, Kaupþing, féll, því að
lánalínur voru háðar áframhaldandi rekstri
KSF. Það olli falli síðasta bankans sem eftir
stóð.
5. Bankarnir tveir sem bresk stjórnvöld
lokuðu, Heritable og KSF, reyndust báðir við
uppgjör hafa traustan fjárhag. Lánardrottnar
endurheimtu nánast allt sitt fé þrátt fyrir
gífurlegan kostnað við endurskoðendur og
lögmenn. Hins vegar virtust bankar sem
bresk stjórnvöld björguðu, sérstaklega RBS,
varla eiga fyrir skuldum.
6. Margar hugsanlegar skýringar eru á hinni
ruddalegu og óþörfu framkomu breskra
stjórnvalda, lokun Heritable og KSF og
beitingu hryðjuverkalaganna. Ein er að
Gordon Brown og Alistair Darling, sem báðir
eru frá Skotlandi, hafi viljað sýna Skotum
hvaða áhætta væri fólgin í því fyrir Skota
að slíta sambandinu við England. Önnur er
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, afhenti fjármála ráðherra
fyrr í haust skýrslu um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins. Skýrslan var unnið sam-
kvæmt samningi fjármálaráðuneytisins og félagsvísinda stofnunar Háskóla Íslands.
Skýrslan var skrifuð á ensku og ber heitið The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign
Factors. Hér eru birtar helstu niðurstöður skýrslunnar í íslenskri þýðingu.