Þjóðmál - 01.12.2018, Side 72

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 72
70 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Rannsóknir Hannes Hólmsteinn Gissurarson Erlendir áhrifaþættir bankahrunsins 2008 Íslenskur útdráttur úr skýrslu Félagsvísindastofnunar 1. Beiting hryðjuverkalaganna bresku 8. október 2008 gegn Landsbankanum, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu var ruddaleg og óþörf aðgerð. Hún var Bretum til skammar, sagði Mervyn King lávarður, fyrrverandi seðlabankastjóri Breta, skýrslu höfundi, Hannesi H. Gissurarsyni. Því markmiði að koma í veg fyrir ólöglega fjármagnsflutninga mátti ná með tilskipun sem breska Fjármálaeftirlitið gaf út til útibús Landsbankans í Lundúnum 3. október 2008. 2. Ekki hafa fundist nein merki um ólöglega fjármagnsflutninga bankanna frá Bretlandi til Íslands fyrir bankahrun, þótt breskir ráðherrar hafi haldið því fram í samtölum við íslenska ráðamenn. Rannsóknir á íslensku bönkunum í Bretlandi hafa ekki leitt neitt ólöglegt fram- ferði í ljós. Megnið af breskum innlánum var notað í fjárfestingar í Bretlandi, sem veittu hátt í 100 þúsund manns vinnu. 3. Bresk stjórnvöld björguðu öllum breskum bönkum með aðgerðum sínum í októberbyrjun 2008 nema þeim tveimur sem voru í eigu Íslendinga, Heritable og KSF. Þeim var neitað um fyrirgreiðslu og lokað með tilskipunum. Með því mismunuðu stjórnvöld á grundvelli þjóðernis, sem gengur gegn reglum um innri markað Evrópu. Samt var það mál ekki tekið upp af Framkvæmdastjórn ESB. 4. Tvær aðgerðir skiptu miklu máli um þá keðjuverkun sem varð í bankahruninu: Danske Bank neitaði Glitni um fyrirgreiðslu í september 2008, þegar hann ætlaði að selja hinn norska banka sinn, með þeim afleiðingum að Glitnir varð að leita til Seðla- bankans um neyðarlán. Það setti af stað bankahrunið. Breska fjármálaeftirlitið lokaði KSF 8. október með þeim afleiðingum að móðurfélagið á Íslandi, Kaupþing, féll, því að lánalínur voru háðar áframhaldandi rekstri KSF. Það olli falli síðasta bankans sem eftir stóð. 5. Bankarnir tveir sem bresk stjórnvöld lokuðu, Heritable og KSF, reyndust báðir við uppgjör hafa traustan fjárhag. Lánardrottnar endurheimtu nánast allt sitt fé þrátt fyrir gífurlegan kostnað við endurskoðendur og lögmenn. Hins vegar virtust bankar sem bresk stjórnvöld björguðu, sérstaklega RBS, varla eiga fyrir skuldum. 6. Margar hugsanlegar skýringar eru á hinni ruddalegu og óþörfu framkomu breskra stjórnvalda, lokun Heritable og KSF og beitingu hryðjuverkalaganna. Ein er að Gordon Brown og Alistair Darling, sem báðir eru frá Skotlandi, hafi viljað sýna Skotum hvaða áhætta væri fólgin í því fyrir Skota að slíta sambandinu við England. Önnur er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, afhenti fjármála ráðherra fyrr í haust skýrslu um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins. Skýrslan var unnið sam- kvæmt samningi fjármálaráðuneytisins og félagsvísinda stofnunar Háskóla Íslands. Skýrslan var skrifuð á ensku og ber heitið The 2008 Icelandic Bank Collapse: Foreign Factors. Hér eru birtar helstu niðurstöður skýrslunnar í íslenskri þýðingu.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.