Þjóðmál - 01.12.2018, Side 73

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 73
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 71 að þeir hafi viljað leiða athyglina frá hinum stórfelldu útgjöldum til að bjarga breskum bönkum. Hin þriðja er að þeir hafi viljað sýna kjósendum að þeir gættu breskra hagsmuna af hörku, en sú sýning kostaði þá lítið þegar Ísland átti í hlut. Hin fjórða er að þeir hafi viljað bæta vígstöðu sína í væntanlegri Icesave-deilu. 7. Þegar leið fram á árið 2007 veðjuðu vogunar sjóðir og sumir bankar, þar á meðal Danske Bank, á móti íslenskum bönkum og íslensku krónunni. Ólíkt því sem gerðist í Hong Kong 1998 tókst ekki að hrinda áhlaupi þeirra. 8. Bandaríkjamenn neituðu Íslandi um lausa- fjárfyrirgreiðslu en veittu ríkjum sem aldrei hafa verið bandamenn þeirra, til dæmis Svíþjóð og Sviss, slíka fyrirgreiðslu. Stór- bankinn UBS í Sviss hefði fallið án þess, en hann reyndi að eyða gögnum um innstæður gyðinga frá stríðsárunum, aðstoða viðskipta- vini við skattaundanskot og hagræða ólög lega vöxtum á millibankamarkaði. Bankakerfið í Sviss nam tífaldri landsfram- leiðslu og var því stærra hlutfallslega en hið íslenska fyrir bankahrun. 9. Meginskýringin á því að bandarísk stjórn- völd neituðu Íslandi um fyrirgreiðslu er líklega sú að Ísland var ekki lengur hernaðar- lega mikilvægt í þeirra augum. Gjaldeyris- skiptasamningur við Bandaríkin hefði hugsanlega gert Seðlabankanum kleift að hafa stjórn á atburðarásinni og fara „sænsku leiðina“, sem sænski seðlabankinn markaði í fjármálakreppunni í Svíþjóð 1991–1992. 10. Rússalánið svonefnda var raunhæfur möguleiki, en Rússar hurfu frá því að veita það þegar þeir fréttu af því að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn væri í viðræðum við íslensk stjórnvöld. Eftir að Íslendingar leituðu á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins beittu Bretar og Hollendingar áhrifum sínum innan sjóðsins í því skyni að neyða Íslendinga til að viðurkenna greiðsluskyldu í Icesave-deilunni. 11. Ýmsar erlendar eignir bankanna voru hirtar á smánarverði, oft með fulltingi stjórn- valda, til dæmis í Noregi, Finnlandi og Dan- mörku. Samanlagt tap af þessum útsölum kann að hafa numið 4,3 milljörðum evra, eða 558 milljörðum íslenskra króna. Aðalhöfundur skýrslu Félagsvísindastofnunar, dr. Hannes H. Gissurarson prófessor, afhendir hana Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra 25. september 2018. Þrír samstarfsaðilar hans við rannsóknina voru dr. Eiríkur Bergmann prófessor, dr. Ásgeir Jónsson dósent og dr. Birgir Þór Runólfsson dósent. Þeir Eiríkur og Ásgeir hafa báðir gefið út bækur á ensku um bankahrunið. Skýrsla Félagsvísindastofnunar er á ensku og aðgengileg á vef fjármálaráðuneytisins. Ljósm. Haraldur Guðjónsson.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.