Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 74

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 74
72 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 12. Siðferðileg greining á framkomu stjórn- valda og kaupsýslumanna sem hirtu eignir bankanna sýnir að þeir nýttu sér neyð Íslendinga á óréttmætan hátt. Ekki var um eðlileg markaðsviðskipti að ræða. 13. Hugsanlega hefði íslenska bankakerfið átt fyrir skuldum ef það hefði ekki hrunið í október 2008. Ef miðað er við þá forsendu var tapið af fallinu 38,1 milljarður evra. Þetta tap lenti aðallega á herðum erlendra lánar- drottna bankanna, en að nokkru leyti íslensks almennings vegna mistaka við sölu FIH banka í Danmörku, sem ollu tapi að upphæð 514 milljónir evra, eða 66 milljarðar íslenskra króna. 14. Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við banka hruninu voru skynsamleg; að reisa varnarvegg um Ísland (e. ring-fencing) og forðast það að ríkissjóður tæki að sér skuldir einkaaðila. Þess í stað var innstæðueigendum veittur forgangur í bú bankanna, og hefur sú regla verið tekin upp í Evrópu síðan, ef til vill að fordæmi Íslendinga. 15. Íslendingar mismunuðu ekki á grund- velli þjóðernis þegar þeir settu neyðarlögin 6. október 2008. Breskir innstæðueigendur nutu sama forgangs og íslenskir. Íslenska þjóðin bar hvorki lagalega né siðferðilega ábyrgð á skuldbindingum bankanna. Mál- flutningur Breta í Icesave-deilunni var því ekki á rökum reistur, og bresk stjórnvöld skulda íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni vegna beitingar hryðjuverkalaganna og framgöngunnar í Icesave-málinu. 16. Einn almennan lærdóm fyrir Evrópu og raunar allan heim má draga af viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við bankahruninu; með því að gera innstæðueigendur að forgangs- kröfuhöfum í bú banka verður óþarft að veita bönkum ríkisábyrgð, og þannig minnkar freistnivandi (e. moral hazard) banka. 17. Gögn sýna að Seðlabankinn varaði ráðamenn margsinnis í kyrrþey við útþenslu bankanna, og til að takmarka áhættu þjóðar- innar lagði hann m.a. til: 1) að Icesave- reikningar yrðu fluttir úr útibúi í dótturfélag; 2) að Glitnir seldi hinn norska banka sinn; 3) að Kaupþing flytti höfuðstöðvar sínar úr landi. Jafnframt beitti Seðlabankinn í banka hruninu sér fyrir varnarveggshugmyndinni (e. ring-fencing) og takmörkun skuld bindinga ríkissjóðs. 18. Rannsóknarnefnd Alþingis um banka- hrunið komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni 2010 að bankarnir hefðu vaxið of hratt og orðið of stórir. Sú niðurstaða er ekki röng en segir ekki alla sögu. Stærð bankakerfisins var nauðsynlegt skilyrði fyrir bankahruninu en ekki nægilegt skilyrði fyrir því. Skýra þarf hvers vegna hætt komnir bankar eins og UBS í Sviss, Danske Bank í Danmörku og RBS í Skotlandi féllu ekki eins og íslensku bankarnir. Það var vegna þess að þeir fengu þá lausafjárfyrirgreiðslu sem Íslendingum var neitað um. 19. Ekkert bendir til þess að eignir íslensku bankanna hafi almennt verið lakari en erlen- dra banka. Íslensku bankarnir gerðu hins vegar margvísleg mistök sem voru til þess fallin að vekja andúð og vantraust á þeim erlendis, meðal annars: 1) Kaupþing reyndi að kaupa hollenskan banka haustið 2007, eftir að fjármálakreppan var skollin á; 2) Landsbankinn hóf vorið 2008 að safna inn- lánum í útibúi í Hollandi í stað dótturfélags; 3) bankarnir allir lánuðu einum hópi meira en 5,5 milljarða evra samtals, eða hátt í þúsund milljarða króna. 20. Það reyndist að sumu leyti blessun frekar en bölvun að Íslendingum var neitað um lausafjárfyrirgreiðslu, svo að þeir gripu til eigin ráða. Aðrar Evrópuþjóðir hafa enn ekki tekið á þeim skuldavanda sem Íslendingar urðu að leysa við bankahrunið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.