Þjóðmál - 01.12.2018, Side 76
74 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Vel teflt einvígi
Einvígið var afar vel teflt, sennilega best
teflda heimsmeistaraeinvígi sögunnar en
þó ekki besta einvígi sögunnar. Báðir tefldu
varfærnislega og tóku litla áhættu. Magnús
var nærri sigri í fyrstu skákinni. Caruana átti
vinningsleið í sjöttu skákinni sem var varla
fyrir mannlegan mátt að finna þótt tölvurnar
hafi fundið einstigi til sigurs.
Caruana kom almennt betur undirbúinn til
leiks og fékk heimsmeistarinn aldrei neitt út
úr byrjuninni þegar hann hafði hvítt. Skákirnar
þegar Magnús hafði svart voru skemmtilegri.
Lokaskákin var t.d. æsispennandi en svo
bauð Carlsen allt í einu jafntefli, mörgum til
mikillar undrunar, með betri stöðu og meiri
tíma. Norðmaðurinn virtist ekki vilja taka
neina áhættu og virtist telja sig vera í góðum
málum ef það yrði jafnt. Þá er nefnilega teflt
til þrautar með styttri umhugsunartíma.
Heimsmeistarinn var mikið gagnrýndur fyrir
ákvörðunina. Meðal annars lét Garrí Kasparov
hann heyra það og lýsti því yfir að hann teldi
hann ekki lengur sigurstranglegri því hann
virtist vera að fara á taugum. Carlsen svaraði
því heldur betur við skákborðið því hann
einfaldlega rúllaði yfir Bandaríkjamanninn í
bráðabananum, þar sem tefld var atskák, 3-0.
Spurður um ummæli Kasaparov sagði hann
heimsmeistarann fyrrverandi hafa rétt á því
að hafa heimskulegar skoðanir. Það virðist
enginn standast Norðmanninum snúning
þegar umhugsunartíminn styttist.
Eftir á lýsti Magnús því yfir að hann hefði ekki
teflt aftur heimsmeistaraeinvígi hefði hann
tapað, sem skýrir kannski eitthvað varfærni
hans við skákborðið.
Breytt fyrirkomulag?
Eftir einvígið hefur mikið verið í umræðunni
að breyta þurfi fyrirkomulaginu. Sá sem
þetta ritar er ekki sannfærður. Einvígið vakti
mikla athygli í heimspressunni og komst t.d.
á forsíðu Financial Times. Stærstu sjónvarps-
stöðvar Bandaríkjanna fylgdu sínum manni
yfir Atlantshafið. Norska ríkissjónvarpið, NRK,
var allan tímann á staðnum og tók meðal
annars viðtal við Þröst Þórhallsson, sem var
fyrsti stórmeistarinn sem Magnús náði jafn-
tefli gegn, en þá var Magnús aðeins 10 ára.
Það er ekki nýtt að mörg jafntefli verði í
heimsmeistaraeinvígi þegar tveir sterkir skák-
menn tefla. Kasparov og Karpov gerðu eitt
sinn 17 jafntefli í röð. Jafntefli eru líkleg úrslit
þegar tveir afar sterkir skákmenn mætast.
Aðrir eru ósáttir við að úrslitin ráðist í skákum
með styttri tímamörkum. Áður var það
þannig að heimsmeistarinn hélt jafntefli
á jöfnu og hafa sumir viljað taka það upp.
Benda þeir að þá sé meiri pressa á áskor-
andann, sem þurfi að vinna skák. Taki hann
hins vegar áhættu og tapi þarf hann að vinna
tvær skákir, sem getur verið nánast ógerlegt.
Umræðan verður örugglega mikil á komandi
mánuðum. Næsta heimsmeistaraeinvígi fer
fram árið 2020.
Fjallað var um einvígið á forsíðu Financial Times. Norðmaðurinn Magnús Carlsen kátur í mótslok.