Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 76

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 76
74 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Vel teflt einvígi Einvígið var afar vel teflt, sennilega best teflda heimsmeistaraeinvígi sögunnar en þó ekki besta einvígi sögunnar. Báðir tefldu varfærnislega og tóku litla áhættu. Magnús var nærri sigri í fyrstu skákinni. Caruana átti vinningsleið í sjöttu skákinni sem var varla fyrir mannlegan mátt að finna þótt tölvurnar hafi fundið einstigi til sigurs. Caruana kom almennt betur undirbúinn til leiks og fékk heimsmeistarinn aldrei neitt út úr byrjuninni þegar hann hafði hvítt. Skákirnar þegar Magnús hafði svart voru skemmtilegri. Lokaskákin var t.d. æsispennandi en svo bauð Carlsen allt í einu jafntefli, mörgum til mikillar undrunar, með betri stöðu og meiri tíma. Norðmaðurinn virtist ekki vilja taka neina áhættu og virtist telja sig vera í góðum málum ef það yrði jafnt. Þá er nefnilega teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma. Heimsmeistarinn var mikið gagnrýndur fyrir ákvörðunina. Meðal annars lét Garrí Kasparov hann heyra það og lýsti því yfir að hann teldi hann ekki lengur sigurstranglegri því hann virtist vera að fara á taugum. Carlsen svaraði því heldur betur við skákborðið því hann einfaldlega rúllaði yfir Bandaríkjamanninn í bráðabananum, þar sem tefld var atskák, 3-0. Spurður um ummæli Kasaparov sagði hann heimsmeistarann fyrrverandi hafa rétt á því að hafa heimskulegar skoðanir. Það virðist enginn standast Norðmanninum snúning þegar umhugsunartíminn styttist. Eftir á lýsti Magnús því yfir að hann hefði ekki teflt aftur heimsmeistaraeinvígi hefði hann tapað, sem skýrir kannski eitthvað varfærni hans við skákborðið. Breytt fyrirkomulag? Eftir einvígið hefur mikið verið í umræðunni að breyta þurfi fyrirkomulaginu. Sá sem þetta ritar er ekki sannfærður. Einvígið vakti mikla athygli í heimspressunni og komst t.d. á forsíðu Financial Times. Stærstu sjónvarps- stöðvar Bandaríkjanna fylgdu sínum manni yfir Atlantshafið. Norska ríkissjónvarpið, NRK, var allan tímann á staðnum og tók meðal annars viðtal við Þröst Þórhallsson, sem var fyrsti stórmeistarinn sem Magnús náði jafn- tefli gegn, en þá var Magnús aðeins 10 ára. Það er ekki nýtt að mörg jafntefli verði í heimsmeistaraeinvígi þegar tveir sterkir skák- menn tefla. Kasparov og Karpov gerðu eitt sinn 17 jafntefli í röð. Jafntefli eru líkleg úrslit þegar tveir afar sterkir skákmenn mætast. Aðrir eru ósáttir við að úrslitin ráðist í skákum með styttri tímamörkum. Áður var það þannig að heimsmeistarinn hélt jafntefli á jöfnu og hafa sumir viljað taka það upp. Benda þeir að þá sé meiri pressa á áskor- andann, sem þurfi að vinna skák. Taki hann hins vegar áhættu og tapi þarf hann að vinna tvær skákir, sem getur verið nánast ógerlegt. Umræðan verður örugglega mikil á komandi mánuðum. Næsta heimsmeistaraeinvígi fer fram árið 2020. Fjallað var um einvígið á forsíðu Financial Times. Norðmaðurinn Magnús Carlsen kátur í mótslok.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.