Þjóðmál - 01.12.2018, Side 77

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 77
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 75 Aðstæður í Lundúnum Greinarhöfundur fór í fyrsta skipti á heims- meistaraeinvígi. Teflt var í miðborg Lundúna, á Holborn-svæðinu. Keppendur tefldu bak við hljóðeinangrað glervegg. Áhorfendur gátu þaðan horft á þá og haft aðgang að símum. Judit Polgar var með skákskýringar á skákstað og gerði það vel. Þeim var sjón- varpað um netið. Rýmið var hins vegar þröngt og lentu áhorfendur í því að fá t.d. aðeins klukkutíma inni í skáksal. Alþjóða skáksambandið hefur búið við krísuástand undanfarin ár, sem hefur meðal annars orðið til þess að dag- setningar hafa legið seint fyrir á stórum skákviðburðum. Bundnar eru vonir við að nýr forseti þess, Arkady Dvorkovitsj, muni takast að breyta stöðu skákhreyfingarinnar. HM í Reykjavík árið 2022? Einvígi aldarinnar fór fram í Reykjavík árið 1972. Árið 2022 verður því hálf öld síðan það var haldið í Laugardalshöll, en það var ein mesta landkynning sem landið hefur fengið fyrr eða síðar. Minnast þarf þeirra tímamóta, og hvernig væri það betur gert en einmitt með nýju heimsmeistaraeinvígi hérlendis? Ísland getur sennilega boðið upp á einn glæsi legasta vettvang í heimi, Hörpu. Þar er allt til staðar. Landkynningin yrði gríðarleg. Til London kom fjöldi gesta víðs vegar frá í heiminum. Blaðamennirnir voru í hundraðavís. Ekki yrði það minna ef einvígið yrði haldið hér. Áhuginn á Íslandi og einvíginu er gríðarlegur. Hægt væri að minnast einvígisins með opnun sýningar um einvígi aldarinnar, fara með gesti að leiði Fischers og sýna einvígisborðið sem nú er geymt í Þjóðminjasafninu. Rétt væri að hafa einhverja viðburði í Laugardals- höllinni, t.d. upphafsblaðamannafundinn. Það yrði svo algjör happdrættisvinningur ef Bandaríkjamaður tefldi hérlendis. Gæti það gerst að Bandaríkjamaður endurtæki afrek Fischers 50 árum síðar – einnig í Reykjavík? Sá sem þetta ritar ræddi málið á meðan á heimsmeistaraeinvíginu í Lundúnum stóð við Arkady Dvorkovitsj, nýkjörinn forseta FIDE, sem leist vel á hugmyndina. Hann hefur þegar staðfest komu á GAMMA Reykjavíkur- skákmótið í apríl næstkomandi og er reiðubúinn að hitta íslenska ráðamenn. Að halda heimsmeistaraeinvígi er ekki ókeypis. Aðeins verðlaunafé, skattar og þóknun til FIDE er um tvær milljónir evra. Það er ljóst að slíkt einvígi yrði ekki haldið hérlendis án veglegs stuðnings ríkis, borgar og einkaaðila, þá bæði innlendra og erlendra. Að mati undirritaðs á hér að tefla til sigurs! Þetta yrði stærsti viðburður sem Ísland hefur staðið fyrir um áratugaskeið. Höfundur er forseti Skáksambands Íslands. Greinarhöfundur ræðir við Dvorkovich í London. Þröstur í viðtali á NRK.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.