Þjóðmál - 01.12.2018, Page 77
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 75
Aðstæður í Lundúnum
Greinarhöfundur fór í fyrsta skipti á heims-
meistaraeinvígi. Teflt var í miðborg Lundúna,
á Holborn-svæðinu. Keppendur tefldu bak
við hljóðeinangrað glervegg. Áhorfendur
gátu þaðan horft á þá og haft aðgang að
símum. Judit Polgar var með skákskýringar
á skákstað og gerði það vel. Þeim var sjón-
varpað um netið.
Rýmið var hins vegar þröngt og lentu
áhorfendur í því að fá t.d. aðeins klukkutíma
inni í skáksal. Alþjóða skáksambandið hefur
búið við krísuástand undanfarin ár, sem
hefur meðal annars orðið til þess að dag-
setningar hafa legið seint fyrir á stórum
skákviðburðum. Bundnar eru vonir við að nýr
forseti þess, Arkady Dvorkovitsj, muni takast
að breyta stöðu skákhreyfingarinnar.
HM í Reykjavík árið 2022?
Einvígi aldarinnar fór fram í Reykjavík árið
1972. Árið 2022 verður því hálf öld síðan það
var haldið í Laugardalshöll, en það var ein
mesta landkynning sem landið hefur fengið
fyrr eða síðar. Minnast þarf þeirra tímamóta,
og hvernig væri það betur gert en einmitt
með nýju heimsmeistaraeinvígi hérlendis?
Ísland getur sennilega boðið upp á einn
glæsi legasta vettvang í heimi, Hörpu. Þar er
allt til staðar. Landkynningin yrði gríðarleg.
Til London kom fjöldi gesta víðs vegar frá í
heiminum. Blaðamennirnir voru í hundraðavís.
Ekki yrði það minna ef einvígið yrði haldið hér.
Áhuginn á Íslandi og einvíginu er gríðarlegur.
Hægt væri að minnast einvígisins með opnun
sýningar um einvígi aldarinnar, fara með
gesti að leiði Fischers og sýna einvígisborðið
sem nú er geymt í Þjóðminjasafninu. Rétt
væri að hafa einhverja viðburði í Laugardals-
höllinni, t.d. upphafsblaðamannafundinn.
Það yrði svo algjör happdrættisvinningur ef
Bandaríkjamaður tefldi hérlendis. Gæti það
gerst að Bandaríkjamaður endurtæki afrek
Fischers 50 árum síðar – einnig í Reykjavík?
Sá sem þetta ritar ræddi málið á meðan á
heimsmeistaraeinvíginu í Lundúnum stóð
við Arkady Dvorkovitsj, nýkjörinn forseta
FIDE, sem leist vel á hugmyndina. Hann hefur
þegar staðfest komu á GAMMA Reykjavíkur-
skákmótið í apríl næstkomandi og er
reiðubúinn að hitta íslenska ráðamenn.
Að halda heimsmeistaraeinvígi er ekki
ókeypis. Aðeins verðlaunafé, skattar og
þóknun til FIDE er um tvær milljónir evra.
Það er ljóst að slíkt einvígi yrði ekki haldið
hérlendis án veglegs stuðnings ríkis, borgar
og einkaaðila, þá bæði innlendra og erlendra.
Að mati undirritaðs á hér að tefla til sigurs!
Þetta yrði stærsti viðburður sem Ísland hefur
staðið fyrir um áratugaskeið.
Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.
Greinarhöfundur ræðir við Dvorkovich í London. Þröstur í viðtali á NRK.