Þjóðmál - 01.12.2018, Side 78

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 78
76 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Hér er birt ávarp sem Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og stjórnar formaður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) flutti á hinum árlega SFF-degi sem fram fór 4. desember 2018. Fundurinn í ár var helgaður þeim breytingum sem hafa orðið á fjármálageiranum undanfarin áratug og sjónum beint að þeim áskorunum og tækifærum sem hann stendur frammi fyrir við dögun fjártæknibyltingarinnar. Höskuldur H. Ólafsson Hlutverk og samkeppnis- umhverfi fjármálafyrirtækja Fjármálafyrirtæki gegna mikilvægu og í raun margþættu hlutverki í samfélaginu og eitt af hlutverkum Samtaka fjármálafyrirtækja er að stuðla að upplýstri umræðu um fjármála- geirann og hlutverk hans í framþróun efna- hagslífsins. Stuðla að umræðu um mikilvægi ábyrgrar stjórnunar fjármála heimila, fyrir tækja og samfélagsins alls. Þannig er það hlutverk samtakanna að upplýsa og fræða viðskiptavini fjármálafyrirtæja – fólkið í landinu. Áhersla á fjármálafræðslu Samtökin eru með fjölbreytt verkefni á sinni könnu. Við erum sérlega stolt af verkefni sem nefnist Fjármálavit og snýst um fjármála- fræðslu ungmenna í grunnskólanum. Á þeim fimm árum sem Fjármálavit hefur verið starfrækt hafa ríflega 400 starfsmenn aðildarfélaga SFF heimsótt um 14 þúsund nemendur í grunnskólum um land allt og leiðbeint þeim við úrlausn verkefna sem efla fjármálalæsi þeirra. Þetta er mikilvægt og vísast væri gott að gera enn betur og draga fleiri að borðinu. Nýleg frétt um Umboðsmann skuldara fjallaði um að verkefni þeirra sem þar starfa snéru að miklu leyti að því að leiðbeina og hjálpa ungu fólki sem hefur lent í ógöngum við að fóta sig með sín fjármál. En það er ekki nóg að efla fjármálalæsi ungu kynslóðarinnar. Við þurfum líka að tryggja þekkingu starfsfólks fjármálafyrirtækja. SFF hafa í samstarfi við hið opinbera og háskólasamfélagið staðið að námi til vottunar fjármálaráðgjafa og vátryggingaráðgjafa. Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til slíkra ráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Verkefnið á sér norska fyrirmynd en slík vottunarferli hefur verið að ryðja sér til rúms í nágrannalöndum okkar á undanförnum árum. Nú hefur náðst sá árangur að nánast allir framlínustarfsmenn í ráðgjöf til einstaklinga hafa hlotið slika vottun. Fjármálamarkaðir

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.