Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 79

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 79
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 77 Aukin samkeppni og innreið fjártækninnar Fjölmargir þátttakendur eru á íslenskum fjármála- og lánamarkaði og þeim fer fjölgandi. Lífeyrissjóðirnir eru umsvifamiklir lánveitendur á fasteignamarkaði ásamt því að vera fyrirferðarmiklir fjárfestar á verðbréfa- mörkuðum. Erlendir bankar eru umsvifa miklir í lánveitingum og ýmissi tengdri þjónustu til stærri fyrirtækja og stofnana og keppa þar við íslenska banka. Erlend trygginga félög eru einnig með stóra hlutdeild á trygginga- markaði. Þá hefur innreið fjártækninnar galopnað samkeppnismarkaðinn þegar kemur að neytendalánum, greiðslumiðlun og annarri fjármálaþjónustu. Á fundi sem SFF stóð fyrir með Fjártækniklasanum um kortlagningu íslenska fjártæknilandslagsins kom þetta bersýnilega í ljós. Fjöldi fyrirtækja á fjármála- markaðnum er meiri en umræðan gefur til kynna. Umtalsverður fjöldi fyrirtækja starfar á mörgum sviðum fjármálaþjónustu og keppa þau sín á milli með beinum og óbeinum hætti. Þessum fyrirtækjum á eftir fjölga samhliða framrás fjártækninnar og það á eflaust eftir að leiða til þess að samkeppnin í fjármála- þjónustu einstaklinga fari í vaxandi mæli fram þvert á landamæri. Stafræn þjónusta felur í sér hagræði Aðildarfélög SFF sitja ekki með hendur skauti þegar kemur að nýsköpun og fjártækni. Það má segja að fjármálafyrirtækin sjálf hafi verið í fararbroddi fjártækninnar hér á landi. Í fjártækninni og stafrænni þjónustu felast mikil tækifæri til að svara kalli viðskiptavina um stöðugt betri og skilvirkari þjónustu. Stafrænar lausnir hafa leitt til mikils hagræðis á íslenskum fjármálamarkaði, bæði fyrir viðskiptavini og fjármálafyrirtækin sjálf. Nú geta viðskiptavinir sinnt nánast öllum viðskiptum með stafrænum hætti. Þetta hefur leitt til þess að útibúum hefur fækkað mikið á undanförnum árum og sjálfvirkni og sjálfsafgreiðsla færist í vöxt í þeim útibúum sem enn eru til staðar. Sú gagnrýni sem oft birtist í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum þegar tilkynnt er um slíkar hagræðingaaðgerðir endurspeglar ágætlega þversagnakennda umræðu um fjármálageirann. Á sama tíma og kostnaður fjármálakerfisins er gagnrýndur þá er kvartað yfir hagræðingaraðgerðum. Það er mikilvægt að halda staðreyndum til haga í þessum málum, ekki síst vegna þess að fyrirsjáanlegt er að þróunin verði áfram í þessa átt og fjármálaþjónusta verði í æ ríkari mæli stafræn. Það er jafnframt mikilvægt að hafa í huga að innreið stafrænna þjónustuleiða samhliða fækkun útibúa hafa á heildina litið falið í sér betri þjónustu fyrir viðskiptavini. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og stjórnarformaður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.