Þjóðmál - 01.12.2018, Page 81

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 81
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 79 Það er með öllu óásættanlegt að önnur fyrirtæki sem veita sambærilega þjónustu og bankarnir búi við annarskonar skatta umhverfi. Jafnréttismál í öndvegi Jafnréttismál eru ofarlega á baugi í samfélag- inu og innan fjármálgeirans. Fjármálageirinn státar af því að nokkuð jöfn kynjaskipting er innan stjórna og framkvæmdastjórna bankanna og vátryggingafélaganna. En við getum gert enn betur og þurfum hvert og eitt að einsetja okkur að ná meiri árangri innan okkar fyrirtækja hvað jafnrétti varðar – og þá jafnrétti í sem víðustum skilningi. Öryggismál og varnir gegn fjársvikum Tölvuglæpir og netárásir eru nöturleg staðreynd hins stafræna veruleika. Ísland er ekki eyland í þessum efnum en nánast öll bankaviðskipti hér á landi eru rafræn. Þrátt fyrir að fyrirtæki geti varið sig gegn slíkri ógn með öryggiskerfum þá halda þau ekki vörnum gegn ákveðinni tegund slíkra glæpa. Það eru svokölluð stjórnendasvik en þau felast í því að fjársvikamenn villa á sér heimildir og þykjast vera stjórnendur í fyrirtækinu sem svikatilraunin beinist gegn og senda trúverðug fyrirmæli á starfsfólk um að millifæra fé með hraði. Því miður þá millifærðu stjórnendur í íslenskum fyrirtækjum umtalsverðar fjárhæðir út af reikningum fyrirtækja sinna á síðustu tólf mánuðum eftir að hafa fallið í gildrur fjársvikamanna. Fjármálafyrirtækin geta stundum endurheimt það sem millifært var – en ekki alltaf. SFF sinna samstarfi sérfræðinga aðildar- félaganna í netöryggismálum og eiga í góðu samstarfi við lögregluyfirvöld þegar kemur að baráttunni gegn slíkum glæpum. Það má segja að fjármálafyrirtæki séu í fremstu víglínu þegar kemur að baráttunni gegn þessari vá. Það sama er upp á teningnum þegar kemur að vörnum gegn peningaþvætti. Þar eiga aðildarfélög SFF í nánu samstarfi við stjórn- völd. Aðilar á fjármálamarkaði sem og stjórn- völd og alþjóðlegar stofnanir þurfa að vinna þétt saman í þessum efnum. Þetta varpar ljósi á mikilvæg og margþætt hlutverk sem fjármálageirinn leikur í sam- félaginu en sjaldan er talað um. Hvetjandi samkeppnisumhverfi Það er markmið allra aðiladarfélaga SFF að þjóna sínum viðskiptavinum vel og með ábyrgum og nútímalegum hætti. Til að svo megi vera er mikilvægt að bæði fjármála- fyrirtækin sjálf sem og stjórnvöld leggi sig fram um að byggja hér á landi upp öflugan fjármálamarkað og hvetjandi samkeppnis- umhverfi. Ávarp flutt á hinum árlega SFF-degi sem fram fór 4. desember 2018. Bankaskatturinn er skattur á markaðsfjármögnun banka um tugi prósenta. Skattur sem að endingu leggst á kjör almennings og fyrirtækja – og kemur líklega harðast niður á minni fyrirtækjum.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.