Þjóðmál - 01.12.2018, Side 82

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 82
80 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Fullveldi Íslands í 100 ár Þegar Danmörk kvaddi Ísland Símskeyti konungs 17. júní 1944 Þann 1. desember sl. voru liðin 100 ár frá því að Íslands var frjálst og fullvalda ríki. Af því tilefni er hér birt grein sem Nils Svenningsen, fv. ráðuneytisstjóri danska utanríkisráðuneytisins, skrifaði í Berlingske Tidende í maí 1984. Greinin var birt í Sögu, tímariti Sögufélagsins, sama ár í íslenskri þýðingu að viðbættum inngangi frá Ólafi Egilssyni sendiherra (inngangurinn er hér örlítið styttur). Því er gjarnan haldið fram að Íslendingar hafi fært sér í nyt hernám Danmerkur til að losna undan danska konungsdæminu. Eins og fram kemur í greininni er málið ekki alveg svo einfalt. Inngangur eftir Ólaf Egilsson sendiherra Næst lýðveldisstofnuninni sjálfri á Þingvöllum 17. júní 1944 var það áreiðanlega stærsta stund hátíðarinnar þegar þangað barst síðla dags símskeyti með árnaðaróskum Kristjáns X konungs sem þá sat í Kaupmannahöfn hernuminni. Konungur hafði staðið mjög eindregið gegn lýðveldisstofnuninni vegna styrjaldar- ástandsins og hinn 2. maí lýsti hann yfir: „Vér getum ekki á meðan núverandi ástand varir viðurkennt þá breytingu á stjórnarforminu, sem Alþingi Íslands og ríkisstjórn hafa ákveðið án samningaviðræðna við Oss.“1 En Íslendingar voru staðráðnir í að halda sínu striki og fór þjóðaratkvæðagreiðsla um málið fram 20-23. maí með þeirri niðurstöðu að 95,06% vildu stofna lýðveldi en aðeins 1,43% voru á móti breytingu á stjórnarforminu. Nær allir sem atkvæðisrétt höfðu tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Línurnar voru ennþá skýrari varðandi vilja þjóðarinnar til að segja upp sambandslagasamningnum frá 1918. Þegar Jón Krabbe, sendifulltrúi Íslands í Kaupmannahöfn, flutti Kristjáni X niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar hinn 3. júní bar hann konungi einnig í trúnaði þau skilaboð frá Birni Þórðarsyni forsætisráðherra að hann teldi að þjóðin mundi „verða djúpt snortin af því, ef konungurinn sæi sér fært að þýðast þann þjóðarvilja, sem svo ótvírætt hefur verið látinn í ljós, en það myndi í framtíðinni styrkja og varðveita þá virðingu og vináttu sem Hans Hátign nýtur nú. Hið sama myndi og gilda um dönsku þjóðina."2 Krabbe sótti illa að konungi. Hann var sárþjáður af ólæknandi beinbroti eftir að hafa fallið af hestbaki. Nú bættist það við að sjá fram á Ísland ganga undan sér. Eins illa og ástatt var fyrir konungi, segist Krabbe ekki hafa getað sett það fyrir sig „þótt hann léti í ljós vanþóknun sína í viðtali okkar án þess að hafa vegið orðin.“ Fjórum dögum síðar komu líka opinber skilaboð frá konungi um það að hann „óskaði ekki að aðhafast neitt" í tilefni af því sem lagt hafði verið fyrir hann.3 Svona var því ástatt um afstöðu konungs 11 dögum fyrir lýðveldisstofnun og hann þekktur að skoðanafestu.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.