Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 85

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 85
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 83 komulagi milli ríkjanna og setningu danskra og íslenskra laga og var það gert með hinum samhljóða sambandslögum frá 30. nóv. 1918. Helsta ákvæði sambandslaganna er að Ísland öðlast algert frelsi og sjálfstæði þannig að löndin eru einungis í persónusambandi. Um það segir svo í 1. grein: „Danmörk og Ísland eru frjáls og fullvalda ríki í sambandi um einn og sama konung og um samning þann er felst í þessum sambandslögum." Síðan koma ýmis ákvæði um jafnan rétt íslenskra og danskra ríkisborgara í sambands- ríkjunum, um fiskveiðar og eftirlit með fiskveiðum, um siglingar og bestu kjör með tilliti til tolla o.s.frv., um sérfræðiaðstoð frá Dönum við framkvæmd utanríkisstefnu Íslands, um stofnun dansk-íslenskrar ráðgjafa- nefndar sem m.a. átti að fjalla um hver af lögum annars ríkisins snertu hitt, o.s.frv., Að lokum má nefna mikilvægt ákvæði í 18. grein sem miðaði að hugsanlegum sambands- slitum. Fyrst er þar kveðið á um að sambandið skuli gilda út árið 1940. Þá geti hvor aðilinn um sig krafist gagnkvæmra samningaviðræðna um hvort halda eigi sambandinu áfram eða slíta því. Hafi ekki náðst samkomulag þremur árum eftir að krafan um samningaviðræður sé sett fram, geti hvor aðilinn um sig krafist þess að sambandinu sé slitið. Vel má líta á þetta 22 ára tímabil, sem sambands - lögin áttu að gilda óbreytt, sem reynslutíma þar sem aðilar áttu að íhuga þróun sambandsins og taka afstöðu til áframhaldandi sambands, e.t.v. í breyttu formi, eða sambandsslita. Í sambands- lagasamningnum kemur mjög greinilega fram að til sambands slita geti komið. Það er víst óhætt að segja að sambandslaga- samningurinn reyndist ágætlega á reynslu- tímanum, bæði varðandi sambandið milli aðildarríkjanna innbyrðis og afstöðu þeirra til annarra ríkja. Sú staðreynd að Danir og Íslendingar höfðu ekki sameiginlega utan- ríkisstefnu á sambands lagatímabilinu stafaði af því að þetta voru tvö sjálfstæð ríki (Danir voru að þessu leytinu einungis eins konar framkvæmdar aðili fyrir hönd Íslendinga). Munurinn á utanríkisstefnu ríkjanna var meðal annars tilkominn vegna þess að Danir voru aðilar að Þjóðabandalaginu en Íslendingar ekki. Þegar Ítalir réðust inn í Eþjópíu árið 1935, samþykkti Þjóðabanda- lagið að setja viðskiptabann á Ítalíu. Þessi samþykkt var bindandi fyrir Danmörku sem aðildarríki en ekki Ísland. Íslendingar gátu því á þessum tíma, með aðstoð utanríkis- þjónustu Dana, rætt við Ítali og gert samning við þá um útflutning a fiski. Ef eðlilegar stjórnmálaaðstæður hefðu ríkt þegar reynslutímanum lauk, hefðu Íslendingar eflaust strax krafist viðræðna við Dani um sambandslagasamninginn og að öllum líkindum hefðu Íslendingar alveg frá upphafi slíkra viðræðna krafist fullkomins sjálfstæðis. Í júnímánuði árið 1944 var Danmörk ennþá hernumin af Þjóðverjum og Ísland háð hinum vestrænu stórveldum. Því varð engum viðræðum milli Dana og Íslendinga við komið. Rök Íslendinga fyrir einhliða sambands slitum voru sem hér segir: Enginn veit hvernig styrjöldinni lýkur. Nils Thomas Svenningsen (1894 ­ 1985)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.