Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 86

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 86
84 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Ef til vill með friðarráðstefnu til þess að finna lausn á vanda málum Evrópu og öðrum vanda málum. Við slíkar aðstæður er afar mikilvægt að staða Íslands sem raunverulega og að formi til frjáls og óháðs ríkis sé ótvíræð. Að öðrum kosti yrðu vandamál Íslands sett skör lægra á slíkri ráðstefnu og „Íslendingar óska ekki eftir því" - eins og Ólafur Thors forsætisráðherra orðaði það - „að land þeirra verði rekald á friðarráðstefnu." 10 Þótt ókleift hafi verið að koma á beinum við- ræðum milli þjóðanna vorið 1944, var ekkert sem hindraði að Danir kæmu orð sendingum til ríkisstjórnar Íslands í símskeytum frá utan- ríkisráðuneytinu. Það var líka gert. Annars vegar var með þeim hætti af hálfu Dana mótmælt áformum Íslendinga um að slíta sambandinu og hins vegar reynt að telja Íslendinga á að bíða þess að beinar viðræður við Dani yrðu mögulegar - en án árangurs. Þegar ljóst varð vorið 1944 að Íslendingar vildu slíta sambandinu án þess að bíða eftir viðræðum við Dani, vakti það megna reiði Dana í garð Íslendinga og því er ekki að leyna að konungur reiddist því að Íslendingar skyldu vilja láta til skarar skríða strax. Þessi tilfinningaviðbrögð voru eðlileg og skulu ekki átalin. Fyrir konung, sem ríkir yfir tveimur sambandsríkjum, hlýtur það að sjálfsögðu að vera ákaflega móðgandi og særandi að vera hafnað af öðru þeirra. Síðustu dagana fyrir 17. júní hefur konungur sjálfsagt verið mjög á bíðum áttum um hvort hann ætti að senda heillaóskaskeyti eða ekki. En þegar stundin rann upp og til átti að taka sigraðist hann á tilfinningum sínum og ákvað að senda heillaóskaskeyti sitt. Konungur hefði sjálfur getað gefið frá sér að senda skeytið, því að þá hefði ekki verið um að ræða stjórnarathöfn samkvæmt stjórnarskránni. En konungur sá að þetta væri hyggileg stjórnmálaákvörðun og hagaði gjörðum sínum samkvæmt því. Íslendingar slitu ekki sambandinu við Dani fyrr en umþóttunartímanum var lokið, þegar þeir hefðu við eðlilegar aðstæður getað sett fram kröfu um sambandsslit - og hefðu eflaust gert það. Ýmsir Danir, sem höfðu skilning á afstöðu Íslendinga, töldu þetta nokkrar málsbætur, út frá sjónarmiðinu: Nauðsyn brýtur lög. Hefðu sambandsslitin átt sér stað fyrir lok umþóttunartímans, hefði það vafalaust aukið reiði Dana í garð Íslendinga. Það er enginn vafi á því að símskeytið frá konungi hafði þau áhrif að slaka á spennunni og menn drógu andann léttar, bæði í Danmörku og á Íslandi. Þeir fjölmörgu Danir sem höfðu móðgast „fyrir hönd konungs" þegar ljóst varð að Íslendingar mundu slíta sambandinu einhliða, sáu nú að þeir höfðu verið „plus royaliste que le Roi" (konung- hollari en konungurinn sjálfur). Og skeytið hlýtur að hafa verið mikill léttir fyrir þá mörgu Íslendinga sem vissulega höfðu viljað fullt sjálfstæði Íslands en höfðu verið í vafa um hvort rétt væri að slíta sambandinu einhliða. Þeir gátu nú með góðri samvisku tekið þátt í hátíðarhöldum hins nýja þjóðhátíðardags. Bein viðbrögð við skeyti konungs var svar- skeytið sem ríkisstjórnin sendi um hæl. Það hljóðaði svo: Ríkisstjórnin færir Hans Hátign Kristjáni X hjartanlegar þakkir fyrir þær heillaóskir til íslensku þjóðarinnar, sem bárust frá konunginum 17. júní. Forsætisráðherra birti kveðjuna þegar í stað í heyranda hljóði að Þingvöllum fyrir miklum mannfjölda, sem fagnaði boðskapnum með innilegasta þakklæti. - Þegar forsætisráðherra bar fram óskir um heill og blessun fyrir konung, drottningu og fjölskyldu konungs, tók mannfjöldinn undir með hrifningu.11 Þakkarskeytið var ósjálfráð tjáning um fögnuð og gleði, þakklæti og létti. Sjaldan hafa orð nokkurs konungs haft slík áhrif. Þetta var ekkert venjulegt þakkarskeyti. Þetta voru ósjálfráð fagnaðarviðbrögð íslensku þjóðarinnar yfir því að Hans Hátign konungurinn og þar með konungsríkið Danmörk höfðu – þrátt fyrir allt - sætt sig með umburðarlyndi við að aðskilnaður landanna tveggja var orðinn staðreynd. Í svari Íslendinga við heillaóskum konungs má ef til vill einnig greina nokkra hryggð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.