Þjóðmál - 01.12.2018, Page 90

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 90
88 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Það fer vel á því að Borgþór Kjærnested skuli nú hafa tekið saman sögu Finnlands á íslensku. Fáir Íslendingar þekkja jafnvel til í Finnlandi og hann. Þegar á 18. aldursári, árið 1961, hélt hann þangað til náms. Í Finnlandi átti hann eftir að dvelja um áratugaskeið þar sem hann starfaði m.a. sem blaðamaður. Þjóðskrá segir að hann búi þar enn þó ég hafi reyndar nýlega rekist á hann í Reykholti í Borgar firði, en Borgþór ólst upp á þeim slóðum, nánar tiltekið í Ásum í Stafholts- tungunum. Borgþór hefur á síðustu árum starfað nokkuð við ritstörf og þýðingar, og má í því sambandi rifja upp að hann vann fyrir nokkrum árum það þakkarverða verk að snúa prýðilegri ævisögu Napóleóns Bónapartes eftir sænska blaðamanninn Herman Lindqvist yfir á íslensku. Á 74. aldursári sínu sendi Borgþór svo frá sér í lok síðasta árs, þetta ríflega 400 síðna stór- virki sem hér um ræðir. Þar rekur hann sögu Finnlands frá því um 12. öld og fram til okkar tíma. Ég viðurkenni fúslega að hafa opnað þessa bók með nokkurri eftirvæntingu. Ég gerði mér grein fyrir því að um sögu Finna vissi ég fátt, nema þá kannski einhverjar glefsur um Vetrarstríðið og annað úr seinni heimsstyrjöldinni. Þegar ég hóf lesturinn skynjaði ég þó skjótt að ég vissi nánast ekki neitt um merka sögu þessa lands. Saga Finnlands var reyndar samtvinnuð sögu Svíþjóðar framan af enda heyrði landið undir sænsku krúnuna. Flækjustigið í sögu Finna er þannig hátt gegnum allar miðaldirnar. Svíar stóðu í endalausum skærum, bæði innan ríkis síns sem utan þess. Borgþór S. Kjærnested flutti erindi í Snorra stofu í Reykholti í nóvember 2017 um dagbækur Kristjáns konungs, sem hann skrifaði á árunum 1908­1932 og sneru að Íslandi og samskiptum hans við Íslendinga. Borgþór fékk sérstakt leyfi Margrétar drottningar, afabarns Kristjáns, til að lesa dagbókarfærslurnar og skrá efni þeirra. Myndin er tekin af vef Snorrastofu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.