Þjóðmál - 01.12.2018, Page 94

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 94
92 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Bókarýni Björn Jón Bragason Ríki meðal ríkja, þjóð meðal þjóða* Hinir útvöldu: Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918 Höfundur: Gunnar Þór Bjarnason Útgefandi: Sögufélag í samstarfi við Afmælis- nefnd aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands Reykjavík, 2018 404 bls. Afi minn veiktist í spænsku veikinni en náði blessunarlega fullum bata og kenndi sér vart meins eftir það. Mér eru minnisstæðar sögur sem hann sagði mér frá árinu 1918, frosta vetrinum mikla, Kötlugosinu og síðast en ekki síst þeim viðburði þegar Ísland varð sjálfstætt, frjálst og fullvalda konungsríki. Fyrir mér runnu þessir stórviðburðir ársins 1918 saman í eitt. „Frostaveturinn mikli“ stóð þó aðeins yfir í um hálfsmánaðarskeið í janúar 1918, en tíðarfar var óvenju gott um vorið og haustið milt. Þegar hin skæða drep- sótt barst til landsins var sem betur fer ekki sá fimbulkuldi sem landsmenn höfðu fengið að finna fyrir í byrjun ársins. Viðburðir ársins 1918 eru raktir í nýútkominni bók Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings Hinir útvöldu, en meginviðfangsefni bókar- innar er vitaskuld sigurstund sjálfstæðis- baráttunnar. Fremst í bókinni birtist hin fræga mynd af athöfninni við Stjórnarráðshúsið 1. desember 1918 sem landsmönnum hefur fram til þessa fundist drungaleg og tengt við hörmungar ársins. En eins og Gunnar bendir á er glaðasólskin þennan dag og Magnús Ólafsson ljósmyndari á í mesta basli með að taka myndina. Birtan er svo mikil að Magnús nær ekki styttunni af Jóni Sigurðssyni með á myndina, en hún stóð á þeim tíma þar sem nú er minnismerki Hannesar Hafstein. Fjöldi fólks var saman kominn neðst í Bankastræti og sömuleiðis á Lækjartorgi. Líklega hafa mun fleiri fylgst með viðburðinum heldur en athöfninni sem haldin var á sama stað á aldarafmælinu 1. desember 2018 - í nístandi norðankulda! *Undirrituðum finnst rétt að koma á framfæri að hér birtast margvíslegar útleggingar á efni bókarinnar, svo þetta eru ekki allt tilvísanir til hennar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.