Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 9

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 9
Vésteinn Ólason Ágrip af búskaparsögu hálfrar aldar r g ætla að rekja hér stiklur úr búskapar- sögu afa míns Guðmundar Arna- sonar, sem fæddist í Breiðdal árið 1871 og átti hér heima lengst af ævinnar, en dó á Eskifirði 1966 hálftíræður. Efnið tengist í upphafí búskap föður hans og að lokum sonar. Heimildir mínar eru ýmislegt sem Guðmundur skrifaði hjá sér á langri ævi. Mér finnst fróðlegt að kynnast búskaparsögu þessara kappsömu bænda, ekki aðeins vegna skyldleikans, heldur er lærdómsríkt að fylgjast með hvorutveggja, þróun atvinnuhátta og breytingu félagshátta. Saga Guðmundar sýnir framfarahug og atorku, en líka þær þröngu skorður sem bóndanum voru settar; hann lifði framfaraskeið, en það fór afar hægt af stað. I annan stað bregða skrif Guðmundar upp mynd af þjóðfélagsgerð með aldagamlar rætur og hugarheimi, mótuðum af arfi og aðstæðum 19. aldar. Hvort tveggja er nálægt okkur í tíma en í óraijarlægð frá þeim sem nú vaxa úr grasi á íslandi, hvort heldur er í þéttbýli eða dreifbýli. Segja má að Guðmundur Ámason, og þess vegna við sum, sem hér erum stödd, hafi verið af flóttamönnum kominn, því að Ragnheiður amma hans, kölluð átján bama móðir, kom frá Mýmm við Ilornafjörð árið 1845 og leitaði skjóls og lífsviðurværis í Breiðdal með tvö yngstu börn sín, eftir að hún hafði misst tvo menn, þann seinni í sjóinn, og gat ekki lengur séð fyrir barnaskaranum. Ámi Jónsson var yngstur barna hennar, fæddur 1842. Ragn- heiður dó hjá Áma í Fagradal 1887. Ekki byrjaði Ámi ævistarf sitt með arf eða auð í búi. Hann kvæntist Steinunni Gunnlaugsdóttur frá Þorgrímsstöðum (f. 1836), og þau hófu búskap á Ásunnarstöðum um 1870, þar sem börn þeirra, Guðmundur og Guðlaug, fæddust 1871 og 1872. SíðanbjóÁmi4áráInnri-Kleif, 11 í Fagradal, en þar dó Steinunn 1887; 9 ár bjó hann á Þorvaldsstöðum, og síðustu 8 árin á Gilsárstekk í félagi við Guðmund son sinn. Hann lést þar 1909, á 67. aldursári. Á vinnumannsárum í æsku hefur Árni byrjað að koma sér upp bústofni, og eitthvað hefur Steinunn sjálfsagt lagt til, en bústofn- inn var rýr í upphafi. Guðmundur skrifar: „Bústofnsbyrjun föður míns var 1 kýr, 2 hross, 16 ær og ein leiguær- sauðir og gemlingar til saman eithvað fleiri en ærnar. Heimilis- fólkið 6 menn.“ Bágt er nú að skilja hvernig 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.