Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 83

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 83
Héraðsskjalasafn Austfirðinga 1976-2016. Ágrip af 40 ára sögu skylda að taka við. Jafnframt benti Hrafnkell á að huga þyrfti að því hverju safnið tæki við af gögnum á öðru formi en pappír, t.d. tölvu- disklingum, myndbandsupptökum og hljóð- snældum. Hrafnkell vildi einnig leita eftir samvinnu héraðsskjalasafnsins og annarra aðila á Austurlandi sem varðveittu Ijósmynda- söfn, einkum varðandi tölvuskráningu. Hann lagði raunar til að umrædd ljósmyndasöfn yrðu sameinuð undir nafni Ljósmyndasafns Austurlands. Þá tillögu ítrekaði Hrafnkell í starfsskýrslum áranna á eftir. Hún varð þó ekki að veruleika. Skrif Hrafnkels bera með sér að hann taldi safnið standa á tímamótum og framundan væru nýir tímar með nýjum áskorunum, ekki síst varðandi tækniþróun, þjónustu og miðlun safnkostsins. Allt kallaði þetta á endur- skilgreiningu starfsemi héraðsskjalasafnsins sem yrði að fylgja straum tímans og standa undir hlutverki sínu gagnvart samfélaginu. í þessu sambandi vék hann einnig að bókasafns- hluta safnsins, en um hann segir Hrafnkell í áðumefndri starfsskýrslu: „Bókasafnið er síðan sá þáttur starfseminnar sem veldur nokkrum áhyggjum. Sú kvöð sem fylgir varð- andi kaup á bókum mun fýrr en síðar sprengja utan af sér húsnæði safnsins. Fulltrúaráðið verður að taka afstöðu til þessa máls.“21 Ljósmyndasafn Austurlands Héraðsskjalasafnið byggði upphaflega á tveimur meginstoðum - skjalasafni og bókasafni. En strax á fyrsta áratug starf- seminnar byggðist þriðja stoðin smám saman upp. Það er Ljósmyndasafn Austurlands sem er sameign Héraðsskjalasafns Austfirðinga, Minjasafns Austurlands og SSA, en er rekið sem sérstök deild innan héraðsskjalasafnsins. Héraðsskjalasafninu hefur frá stofnun borist umtalsvert af ljósmyndum, þar af mörg stór myndasöfn, og hafa starfsmenn skjalasafnsins haft veg og vanda af skráningu þess, umhirðu og afgreiðslu erinda. í hvoru tveggju á Arndís Þorvaldsdóttir stærstan þátt. Þekking hennar og yfirsýn yfír ljósmynda- safnið hefur reynst mörgum gagnleg, m.a. greinahöfundum í byggðasöguritinu Múlaþingi og tímaritinu Glettingi, sem og austfírskum fræðimönnum sem staðið hafa í útgáfu, að ógleymdum safngestum. Amdís tók við umsjón ljósmyndasafnsins árið 1996. í ársskýrslu héraðsskjalasafnsins íýrir það ár fær ljósmyndasafnið í fyrsta sinn sérstakan kafla. Má af efni hans ráða að mikil vinna hefur verið fýrirliggjandi í skráningu og frá- gangi ljósmynda í vörslu safnsins. A næstu árum var ráðist í átak við að bæta úr þessu. Við það batnaði aðgengi að ljósmyndasafninu mikið og notagildi þess jókst til muna. Árið 2003 fékk ljósmyndasafnið afhent ljósmynda- og fílmusafn vikublaðsins Austra, alls um 20.000 myndir auk fílma. Þetta er stærsta einstaka afhending til ljósmynda- safnsins. Mörg fleiri merk ljósmyndasöfn, bæði frá einstaklingum og félagasamtökum, tilheyra Ljósmyndasafni Austurlands. Frá árinu 2008 hefur verið reglulegt sam- starf milli Austurgluggans og ljósmyndasafns- ins sem byggist á að blaðið birtir óþekktar myndir úr safninu. Lesendur eru hvattir til að koma upplýsingum um myndimar á framfæri við héraðsskjalasafnið. Með þessu hafa fengist mjög góðar upplýsingar um flestar þær myndir sem þannig hafa birtst. Þetta samstarf var raunar hafíð fýrir 2008 en hefur verið næsta samfellt síðan þá. Árið 2010 undirrituðu fulltrúar eigenda Ljósmyndasafns Austurlands samning um safnið. Enginn skriflegur samningur var áður til um safnið og því var umgjörð þess bundin að miklu leyti við þekkingu starfsmanna og þær hefðir sem höfðu skapast. Raunar hafði ávallt ríkt góð sátt um ljósmyndasafnið og því minni hvati að formbinda starfsemi þess. Samningurinn endurspeglaði þá stöðu því hugmyndin að baki hans var að koma á blað þeim meginreglum sem safnið hafði starfað 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.