Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Side 95

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Side 95
Farið á Skessu 1957, við Bóas Emilsson framkvæmdastjóra Byggingafélagsins Snæfells sem byggði þá línu. Það viðtal er mjög skemmtilegt og lýsir Bóas þar tæpitungulaust all nýstárlegum aðferðum við þá línubyggingu. Stuðlaheiðar- lína var því tæplega tuttugu ára þegar hér var komið sögu og var vírinn á henni orðin lélegur og margteigður eftir ísingu liðinna vetra. Til að fara yfír atburðina eins og þeir gerðust þá er, samkvæmt upplýsingum úr dagbókum Gísla og dagblöðum, upphafíð að bilunum á raflínum á þessum tíma rakið til austanáttar með nokkrum hlýindum og ísingu ásamt mikilli snjókomu í kjölfarið. Sunnudaginn 23. janúar kl. 10:30 slitn- aði Stuðlaheiðarlína og var strax farinn leið- angur ffá Fáskrúðsfirði á vélsleðum en vegna ófærðar þá strandaði sá leiðangur. Var þá rætt við mig hvort ég treysti mér til að fara gangandi á Stuðlaheiði daginn eftir ef veður gæfi. Uppúr kl. 20:00 um kvöldið þennan dag slitnaði svo Eskifjarðarlína en við það fór allt rafmagn af frá Lagarfoss og Grímsárvirkj- unum til ijarða. Strax hófst undirbúningur að því að komast á bilunarstað sem var í Tungu- dal inn við Eskifjarðarheiði og stjómaði Gísli Sigurðsson þeim leiðangri. Var hann kominn á skaðasvæðið til viðgerðar um kl. 11:00 á þriðjudagsmorgni þann 25. janúar. Það var raunar þekkt snjóflóðasvæði sem þá þurfti að fara inn á og kom í ljós að vegna snjóflóða hafði brotnað þar staurastæða. Að morgni þann 24. janúar kom Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri og hitti eftir- talda línumenn í aðveitustöðinni við Stuðla: Þröst og Börk Stefánssyni frá Egilsstöðum, Börkur var okkar yngstur 17 ára gamall, Guð- mund Olason frá Hauksstöðum á Jökuldal og mig sem var elstur okkar félaga. Var skoðuð ýtarlega sú hugmynd hvort mögulegt væri að fara gangandi Reyðartjarðarmegin upp á Stuðlaheiði. Lýsti Erling Garðar því svo í samtali við mig fýrir nokkm að það hafi ráðið úrslitum hvað ég hefði verið andskoti viljugur Guðmundur Ólason frá Hauksstöðum vinnufélagi greinarhöfundar í báðum ferðunum á Skessu. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands. til fararinnar. Enginn okkar hafði áður farið á þessar slóðir. í þessari för þurfti hver að bera með staura- skó og línubelti en auk þess pressu og hólka til að setja saman vír, keðjutalíur tvær til að geta strekkt vírinn upp ásamt svokölluðum froskum sem eru sérstakar klemmur sem settar eru út á vírinn og strekkjaramir eru kræktir í. Einnig þurftum við að taka með stroffur og verkfæri sem nauðsynleg voru til að strekkja inn vír eftir viðgerð, ásamt sér- stökum áhöldum sem notuð voru til að berja ísingu af vírum. Þá má ekki gleyma 18 tommu skiptilyklum sem voru öllurn línumönnum nauðsynlegir og helst þurfti að hafa tvo ef losa þurfti lásrær. Lögðum við strax af stað eftir fundinn en þá em líkur til að klukkan hafi verið um níuleytið og fómm við stuttan spöl vestur frá aðveitustöðinni að gömlu línunni sem þar lá á þeim tíma upp fjallið með beina stefnu til suðurs á svonefnda Skessugjá. Við hófum gönguna þar upp bratta brekku þar til komið 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.