Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Side 107
Um byggingu Snæfellsskála 1970 og ævintýraferð austur á Hraun
Bílalestin á leið til Snæfells, sem blasir hér við. Ljósmynd: HG.
skálanum alls 13 km. og unnið að frágangi
skálans. Vistir og sjúkragögn skilin eftir og
hann á annan hátt búinn undir veturinn. -
Bókfærður kostnaður við skálann var um
áramót um 81.000,oo kr. Þar ekki taldar
gjafir, t. d. efni, vinna og flutningur á efni.
Vorið 1970 leit ég við á trésmíðaverkstæðinu
hjá Völundi og fylgdist með áformum um
byggingu Snæfellsskála og síðar einnig skál-
ans í Kverkfjöllum. Virtist mér fyrirhuguð
bygging við Snæfell sumarið 1970 geta auð-
veldað mér að komast á innanverð Hraun og
ákvað því að slást í för með leiðangrinum
sem flytti efni í skálann.
Það var síðdegis föstudaginn 7. ágúst 1970
að lagt var upp frá Egilsstöðum á um tug
bifreiða, þar á meðal var hertrukkur Eðvalds
Jóhannssonar sem flutti tilsniðið efni í vænt-
anlegan skála. Haldið var upp eftir Jökul-
dal og inn í Hrafnkelsdal þar sem gist var
í tjöldum í kyrru en svölu veðri á grundum
innan við Aðalból. Einn var þó sá í hópnum
sem ekki skreið í tjald, heldur lagði sig í svefn-
poka undir berum himni. Þetta var Steinþór
Eiríksson vélsmiðurog listmálari, sem sagðist
jafnan hafa þennan hátt á í svipuðum ferðum.
Fyrsta ferð með bíla upp úr Hrafnkelsdal og
inn að Snæfelli og Vatnajökli var farin sumarið
1969 til að greiða götu flugbjörgunarsveitar
úr Reykjavík og vatnamælingamenn fóru með
skúr að Laugará sumarið 1970.
Eftir morgunverk laugardaginn 8. ágúst
lagði hópurinn upp úr Hrafnkelsdal eftir brattri
slóð upp frá Laugahúsum. Reyndi þar mest á
trukkinn með efnið í skálann, m.a. tilsniðið
þak á væntanlegt hús. Dalbotninn liggur í um
400 m hæð yfir sjó, en þegar upp er komið
á Ytra-Kálfafell er hæð yfir sjó um 760 m.
Þar blasti við hásléttan suður undir Snæfell
þangað sem slóðin þræðir lengi vel fram
með Hölkná sem á upptök sín í Sveinsjökli
(nýnefni) norðan í Snæfelli.1 A þessum tíma
var þetta eina akfæra slóðin að Snæfelli, þar
eð vegurinn upp úr Fljótsdal á Grenisöldu og
þaðan inn eftir heiði var fyrst ruddur um og
eftir 1975 í tengslum við fyrirhugaða Bessa-
staðaárvirkjun.
Eg hafði 1968 eignast Landrover-jeppa
með hálendisferðir í huga og reyndist hann
vel. Samferðamaður minn og ferðafélagi
þetta sumar var Magnús Gunnarsson Olafs-
Nafnið Sveinsjökull er valið til minningar um Svein Pálsson
lækni og náttúrufræðing (1762-1840), sem fór fyrir fyrsta skráða
leiðangrinum sem hugðist klífa Snæfell. (Sveinn Pálsson, 1945).
105