Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 130
Múlaþing
Rúningsfólk í Rana sumarið 1964. Talið frá vinstri: Þorsteinn Þórarinsson frá Víðivöllum Ytri 11, Hallgrímur
Kjartansson frá Glúmsstöðum II, Þórarinn Lárusson, þáyflr fjárbúinu á Skriðuklaustri, Pétur Gunnarsson fjár-
maður á Skriðuklaustri (einn Egilsstaðasystkina í Fljótsdal), Guðborg Jónsdóttir unnusta Þórarins, Pétur Þór
Jónasson, Péturssonar, Hrafnkell A. Jónsson frá Klausturseli, Sigurður Elíasson, gestkomandi, tilraunastjóri
Tilraunabúsins á Reykhólum (orti kvœðið um „Litlu jluguna “ sem Sigfús Halldórsson gerði síðar frœgt lag við).
Aðalsteinn I. Jónssonfrá Klausturseli, Jón Jónsson bóndi í Klausturseli, Pétur Þorsteinsson, bóndi í Bessastaða-
gerði og Jónas Pétursson, alþingismaður og fyrrverandi tilraunastjóri á Skriðuklaustri (1949-1962). Eigandi
myndar: Þórarinn Lárusson.
að gegna. En þetta hreppamót þeirra Jökul-
dælinga hefír þó nokkuð skipt um hlutverk
með breyttum tímum. Má segja að nú sé þetta
eins konar peningaspil. Þar eru greidd ýmis
gjöld, svo sem fyrir sjúkrasamlög, tekið á
móti bótum fyrir almannatryggingar, greitt
fyrir göngur og refaveiðar, kannske vinnu í
hreppnum o.s.frv. Þannig róla peningar, ávís-
anir, reikningar og tölur aftur á bak og áfram
og veitir ýmsum betur. Og svo er kannske
gripið í lomber líka. Sem sagt: Töluleikur
nútímans hefír lagt undir sig landið frá ystu
nesjum til innstu dala. Og það er hyggilegt
af Jökuldælingum að taka dag í slíkt uppgjör
og ljúka því sem mest.
Næsta morgun var veður stillt, bjart og
fagurt, og dálítill frostkeli. Við fórum frá
Klausturseli kl. 6.30 og rákum ærnar út
úr girðingunni á Brattagerði kl. 8. Var þá
orðið bjart af degi. Sóttist vel suður og upp
brekkumar, og rákum við rólega meðan sótt
var í fangið. Er upp á hálsinn kom fór ég
fram á það við Kjartan, að fara nú enn inn
í Ranann, a.m.k. inn á móti Eiríksstöðum
og leita. Atti ég erfítt með að trúa því, eftir
öllum málavöxtum, að ekki myndu leynast
einhversstaðar kindur þær er vant var, og
þó einkum forustuhjúin, þar sem þau vom
í hópnum við smölunina um miðjan nóv-
ember. Fékk Kjartan nú Glóa, hest Jónasar,
ljósrauðan dugnaðargrip og spordrjúgan, en
hann keypti ég fyrir nokkmm ámm af Júlíusi
á Vífilsstöðum í Tungu.
Þarna uppi á hálsinum eru rennisléttir
melar, sem væru kjörin flugbraut með því
að ijarlægja allmkið af staksteinum, sem
upp úr standa á víð og dreif. Mér þótti undra
fagurt þama að horfa inn yfír Ranann, í mynni
Hrafnkelsdals, inn Jökuldalinn og inn á Brúar-
dali. Snæfell reis sem fyrr, tignarlegt yfír
umhverfíð, og blámóða ijarlægðar lá yfír
Brúardölum. Kirkjan á Eiríksstöðum reis
128