Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Page 151
Úr fjársjóði minninganna
hugmynd um hvar Digranesvegur var, hvað
þá númer 42 við Digranesveg. En þetta varð
að duga í bráð og svo var bara að sjá hvemig
gengi að fmna þennan stað þegar suður kæmi.
Ferðalagið suður gekk vel og ef ég man
rétt þá komum við ekki mjög seint heim um
kvöldið og mér gekk vel að fínna nýja heim-
ilið okkar. En heimkoman var nú svolítið
öðmvísi en ég hafði búist við. Þegar ég kom
heim var Fanney fárveik í rúminu og gat varla
nokkra björg sér veitt, hvað þá að hún gæti
sinnt strákunum okkar tveimur sem þá vom
fæddir, þeim Frímanni og Eiríki.
Tvísýnt ferðalag
Þegar ég kom suður var Segull búinn að taka
að sér að leggja raflagnir í nokkra bæi austur
í Eiðaþinghá og þess vegna þurfti að koma
bílunum austur áður en gerði ófært yfir fjöllin.
Það vom ekki margir starfsmenn sem höfðu
áhuga á þessari vinnu og ég var einn af þeim.
En það fór nú samt svo, að ég lét tilleiðast að
fara með útgerðina austur og sjá um vinnuna
þar. Fyrst núna eftir allan þennan tíma, þegar
ég er að setja þessar minningar á blað, er ég að
átta mig á því að alla þá erfiðleika sem þessu
fylgdu tók ég að mér án þess að fá nokkra
aukagreiðslu fyrir og kaupið var rétt og slétt
sveinskaup, lægsti taxti punktur og basta.
Við lögðum af stað úr Reykjavík þrír
starfsmenn Seguls á tveimur bílum, gömlum
strætisvagni fullum af þungu efhi til raflagna
og gömlum Dodge herbíl með drifi á öllum
hjólum. Samferðamennimir vom þeir Þorkell
Hjálmarsson skrifstofustjóri Seguls og Páll
Jóhannsson rafvirki. Þetta var hinn þriðja
desember og var ætlunin að vera samferða
stórum og öflugum bíl frá Flugmálastjóm,
sem var að fara austur í Egilsstaði. Ég vissi
ekki betur en þetta væri ákveðið og þeir hefðu
lofast til að aðstoða okkur á leiðinni austur.
Verkstæðisbíll Seguls hf. Bíllinn var á árunum 1956-1959 notaður við rafvœðingu sveitabýla. A því tímabili lagði
vinnuflokkur frá Segli raflagnir í fjölmarga sveitabœi, kirkjur og félgasheimili, m. a. gamla torfbœi á Norður og
Austurlandi. 1 bílnum var fullkomið verkstæði með Ijósavél, rafknúnum verkfærum og öllu efni til raflagna. Við
bílinn standa talið frá vinstri: Þorkell Hjálmarsson, Jóhannes Vilbergsson og Bjarni Guðmundsson. Þorkell og
Bjarni voru ferðafélagar greinarhöfundar til Austurlands í hinu erfiða ferðalagi sem sagt er frá í grein þessari.
Myndin er fengin úr Rafvirkjatali útgefnu af Þjóðsögu hf. 1995.
149