Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 27
KULNUN
stödu þinni
i nei. Ræddu
g reyndu að
:olMl trassi í einn
it il því að það
di.i
og skemmti-
erum stoougf að na
ákveðnum markmiðum. '
Ráð: Settu þér eigin markmic
hlutamarkmið. Fylgdu þeim eftir og
athugaðu stöðuna mánaðarlega, hvað
var vel gert og hvað hefði betur mátt
fara. Haltu svo upp á það.
5. Fáðu yfirsýn yfir vinnuna
í umönnun verða bráðatilfelli oft
ofan á og þá gleymast oft aðalatriðin.
Ráð: Farðu þér hægar og skoðaðu
á hvaða leið þú ert. Skipulegðu starfið
reglulega, jafnvel þótt því sé ekki
fylgt í öllu. Lærðu á klukkuna, þ.e. að
meta hve langan tíma hvert verkefni
tekur en ekki vanmeta það. (Ekki
segja sem svo að þetta eða hitt ætti
ekki að taka svo langan tíma þannig að
best sé að bæta öðru verkefni við...)
6. Tryggðu að þú getir hlaðið
rafhlöðurnar
Ef við eigum að geta starfað við
umönnun o.þ.h. verðum við stöðugt
að hlaða eigin rafhlöður. Við erum
sífellt að gefa, veita uppörvun, um-
hyggju o.s.frv.. En hvað með okkur
sjálf og þarfir okkar?
Ráð: Þorðu að viðurkenna að þú
hafir líka þörf fyrir uppörvun, að víkka
sjóndeildarhringinn og annað það er
styrkir sjálfstraust þitt og sjálfsálit.
Gerðu kröfur í þessu sambandi. Þú
getur t.d. krafist leiðsagnar, nám-
skeiða eða annars sem styrkir þig. En
gleymdu samt ekki starfsfélögunum.
Góð aðferð til þess að styrkja sjálfs-
traustið er að fá vissu sína stöðugt
staðfesta.
7. Taktu ábyrgð í hófi
Þetta er einnig erfitt. Við verðum
að finna jafnvægi milli hlutdeildar okk-
ar í starfinu (sem getur orðið of mikil)
og vellíðunar okkar sjálfra.
ayfirmömmunni/
Yfirmamman
|il að taka ábyrgð
jert. Það er alltaf
hún sem :!|fe%ur áilrá því að „það sé
eins gott að hún'gfeáahlutina sjálf“.
Hún óttast að annars veroll&gjkefnin
ekki leyst rétt eða nógu
hendi og er treg til að leyfa öðrum'ai
reyna. Þorðu að fela öðrum verkefni
eða að sleppa þeim. Ræddu þennan
þátt við aðra.
8. Leitaðu valkosta
Þú átt á hættu að kulna ef þú óttast
nýjungar. Oft er haldið í gamla vinnu-
tilhögun sem aðeins leiðir til auka-
vinnu og leiðinda. Hugtakið „þannig
hefur það alltaf verið og þannig verð-
ur það áfram“ ræður allt of oft ferð-
inni.
Ráð: Þorðu að brjóta gamlar reglur
og láttu heyrast í þér. Gefðu þér og
vinnufélögunum tfina til þess að mis-
takast og reyna aftur uns þið dettið
niður á eitthvað sem léttir dagleg
störf. Athugaðu hvemig aðrir leysa
verkefnin.
9. Trúðu á sannfæringu þína
og stattu fast á henni
Hér gildir að launa sálinni erfiðið.
Öll höfum við sannfæringu sem getur
verið það mikilvæg að okkur líður illa
ef við neyðumst til að brjóta gegn
henni. Þetta á t.d. við um það hvernig
koma eigi fram við sjúkling/skjól-
stæðing eða rétta aðferð við
námshvatningu.
Ráð: Komstu að raun um af-
stöðu þína — hvað það sé sem
fyllir þig starfsstolti. Láttu aðra
vita um afstöðu þína. Sýndu hvar
þú stendur þannig að þú öðlist
virðingu fyrir sjálfum/sjálfri þér.
Láttu í þér heyra ef einhver treður
þér um tær.
10. Leitaðu uns þú finnur
réttan stað í tilverunni
Ef þú hefur reynt að breyta
vinnutilhögun þinni og hugað að
eigin persónugerð en líður samt
illa skaltu skipta um starf. Vinnu-
staðurinn kann að vera ómöguleg-
ur og við því er ekkert að gera.
Þrjóskastu ekki áfram. Mörgum
okkar finnst við verða að afreka
eitthvað sérstakt í lífinu og þá til-
finningu á að taka alvarlega. Allir
hafi sinn háttinn á og hver um sig
:r einstnkur. Rétt og rangt í því
efni er ekki til.
Ráð: Það kann að vera erfitt að
finna nýtt starf en það má reyna
lengi ef valkosturinn er 20 ára van-
líðan. Gerðu áætlanir, sparaðu,
skiptu tímabundið um verkefni ef
það getur orðið að liði, minnkaðu
við þig vinnuna, taktu frí, farðu í
nám — reyndu hvað sem er til
þess að komast í burtu. Ef allt
kemur fyrir ekki, reyndu þá að
hafa frístundirnar eins fjölbreyttar
og auðið er. Umfram allt — ekki
gefast upp fyrirfram.
Gangi þér vel og minnstu þess
að þú getur breytt högum þínum.
Bækur:
Bronsberg/V estlund: Bránn
inte ut dig. Forum.
Christina Maslach: Utbrand —
en bok om omsorgens pris. Natur
och kultur.
Bonnie Freudenberger: Att
inte rácka till — utbrándhet den
nutida kvinnans dilemma.
A. Kirsta: Allt om stress och
stresshantering. ICA-förlaget.
27