Heilsuvernd - 01.12.1993, Side 49
Það eru margar aðferðir brúklegar til þess að slappa af.
Ef þú notar þessa er ráðlegast að skorða stólinn vel og
loka hurðinni því ef einhver kemur að þér í þessari
stellingu er hætt við að sá hinn sami héldi að þú værir
orðinn vitlaus.
sérstaklega nefna að talið er að lykt af einiberjum
og rósum hafi góð áhrif á fólk. Sterk ilmefni hafa
hins vegar minna að segja nema þá helst til þess
að eyða tóbaksfnyk úr loftinu.
10. REYNDU AÐ HREYFA ÞIG
OGSLAKAÁ
Sumir telja að það séu bestu starfsmennirnir
sem sitja rígfastir við skrifborðið sitt og líta ekki
upp frá tölvuskjánum eða pappírunum. Slíkt er
engan veginn einhlítt því hætt er við að fólk missi
einbeitingu og atorku ef það hvílir sig ekki öðru
hverju frá þeim verkefnum sem það er að vinna að.
Það er því ágætt ráð að standa upp öðru hverju,
jafnvel í miðjum klíðum, labba um og hreyfa sig. A
íslandi, og raunar víða annars staðar, drekka
menn mikið kaffi í vinnunni - sækja sér gjarnan
bolla og hafa hann á skrifborðinu sínu. Ef fólk er
stressað er slíkt ekki talið það hollasta. Það er
betra að fá sér tesopa eða heitt vatn og það er sagt
gott ráð gegn stressi að setja tvo til þrjá dropa af
kamillu eða neroli, sem er appelsínvökvi, út í teið
eða vatnið.
SOLCAR
SútSX/f947
H^atural oceanic-
CAROTENj
Ooo
0*
IU
D. salina
oÆNttiral Beta Caf°wn«
! y From Oceanic Vefl**"
SALT AND STABCH
60 CAPSULES
■m' i
°°K, N.Y. 11563 For:
SOLGAR
vítamín og bætiefni
GULLTRYGGÐ GÆÐI
HEILSUBÚÐIN SF. Reykjavíkurvegi 62,
Hafnarfirði, s: 652233
49