Heilsuvernd - 01.12.1993, Page 9

Heilsuvernd - 01.12.1993, Page 9
hafi bæði öðlast reynslu og menntun tO að geta starfað þar. Þar eru því íþróttafræðingar, íþróttakennarar, læknar, sjúkraþjálfarar og næringar- fræðingar. Offita er að verða vaxandi vanda- mál hjá íslendingum og því meiri ástæða er fyrir okkur að hrista af okk- ur slenið og fara að huga að líkams- þjálfun. Þeir, sem eru of þungir, reka sig líka fljótt á að það nægir ekki að fara í hvem megrunarkúrinn á fætur öðrum eða lesa bækur um megrun. Þess í stað verður algjörlega að breyta um lífsstíl. Þegar feitt fólk fer að hreyfa sig finnur það líka tilfinnan- lega fyrir því að það er ekki þægilegt að hafa of mörg aukakíló utan á sér.“ Hilmar segir að síðastliðið haust hafi Máttur í fyrsta sinn boðið upp á þriggja mánaða námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 11-16 ára sem voru ýmist fyrir ofan eða neðan kjör- þyngd. „Þar lærðu þau ýmislegt um hreyfingu og mataræði og var kennt að vinna með líkamann. Fjölskyldur þeirra tóku líka þátt í námskeiðinu enda er mikilvægt að þær styðji við bakið á þeim. Arangurinn lét ekki á sér standa og þau 30 ungmenni, sem þátt tóku í námskeiðinu, léttust samtals um 103 kíló. Sá, sem léttist mest, missti alls 11 kíló. Það var mjög spennandi að fylgjast með breytingunum sem urðu á hópnum. Aðalatriðið er þó að hverj- um og einum takist að breyta lífs- mynstrinu og ég efast ekki um að stór hluti hans á eftir að halda áfram að huga að hreyfingu og mataræði." En allt er best í hófi og svo er einnig með íþróttir. „Það er hægt að ofbjóða líkamanum og margar keppnisíþróttir eru til dæmis ekki hollar,“ segir Hilm- ar. „Stundum sjást dæmi þess að fólk, sem stundar of mikla líkams- rækt, sé farið að finna fyrir lystar- stoli. Slit getur einnig verið algengt hjá þessu fólki en hluti þjálfunarinnar á að vera sá að fólk hvílist vel á milli. Þótt líkamsræktarstöðvarnar geti verið mjög góðar eru þær ekki aðal- atriðið frekar en hvaða íþróttir fólk stundar. Það er einfaldlega mikilvæg- ast að fólk hreyfi sig og þá skiptir ekki máli hvort það syndir 200 metra eða mokar snjóinn af útidyratröppunum." Rósa Björg Karlsdóttir, 25 ára íþróttakennari: F æðingarleikfimi á að vera þægileg „Ég kenni þolfimi 2-3 tíma á dag þó að ég sé komin 7 mánuði á leið. Ég hef alltaf stundað íþróttir og er viss um að það er mjög gott fyrir ófrískar konur. Ég þakka íþróttaiðkun minni að það tók mig ekki meira en klukkutíma að fæða mitt fyrsta bam. Ég var líka mjög fljót að jafna mig. Fjómm vikum eftir fæðinguna var ég byrjuð að æfa á nýjan leik. Margar þeirra kvenna sem ég hef kennt fæð- ingarleikfimi hafa sömu sögu að segja. Brjóstagjöf gengur líka betur ef við hreyfum okkur því við slökum betur á eftir á og mjókurstreymið verður betra. Líkamsþjálfun getur ekki skaðað fóstrið ef konan er hraust. Það er þó nauðsynlegt að hún fylgist vel með blóð- þrýstingnum og gæti þess að fá nóg súrefni. Ófrískum konum hentar mjög vel að fara í sund, göngur og að lyfta léttum lóð- um. Fæðingarleikfimi á fyrst og fremst að vera þægileg og til heilsubótar fyrir konuna. Oft lengjast æfingatímarnir líka von úr viti því við tölum svo mikið saman. En það er okkur líka nauðsynlegt. Það er engin ástæða til þess að við setjumst í helgan stein þótt við eigum von á okkur.“ ;■ f f 9

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.