Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 18
fjöldi einstakra fæðutegunda er og allir, sem
minnstu löngun hafa til þess að losna við auka-
kílóin, ættu að byrja á því að glugga í slíka töflu.
Það kemur mörgum á óvart hversu margar góm-
sætar fæðutegundir innihalda skynsamlegt magn
af hitaeiningum, sérstaklega þegar tekið er mið af
verstu venjum okkar. Með verstu venjum er t.d.
átt við kokkteilsósu, smjör eða hvítlauksolíur
sem svo vinsælar eru með pizzum um þessar
mundir, svo eitthvað sé nefnt.
3. RÉTT HLUTFÖLL ORKUEFNA
Reyndu að ná hlutföllunum á milli kolvetna,
prótíns og fitu sem næst eftirfarandi: Kolvetni
55-65%, prótín 20-25% og fita 15—25%. Það er
mjög erfitt að komast þetta neðarlega með fituna,
sérstaklega þar sem margir Islendingar borða
nærri 50% fitu um þessar mundir. Þetta háa hlut-
fall fitu í mataræði er ekki einungis ein af
ástæðunum fyrir hjarta- og kransæðasjúkdómum
og ýmsu krabbameini heldur hægir fita einnig á
efnaskiptunum. Efnaskiptin segja mikið til um
það hversu miklu líkaminn brennir af hitaeining-
um. Það er fita í flestum fæðutegundum þannig að
eina ráðið er að lesa utan á pakkningar og umbúð-
ir eða vera búinn að kynna sér næringarefnatöfl-
una áður en farið er að versla. Til þess að ná
þessum hlutföllum ætti diskurinn þinn að bjóða
Mikils er um vert að borða góðan morgunverð og með því
að neyta þá trefjaríkrar fæðu er hægt að slá tvær flugur í
einu höggi.
upp á u.þ.b. 2/3 kolvetnaríkrar fæðu eins og korn,
pasta, kartöflur, hrísgrjón, ávexti og grænmeti.
Þessi þriðjungur, sem eftir er, ætti að koma úr
prótínríkum fæðutegundum eins og fiski, kjúkl-
ingi, eggjahvítum eða öðrum úrvals fæðutegund-
um.
4. BORÐAÐU OFT OG MINNA
I hvert skipti, sem þú borðar, örvast efnaskipti
þannig að líkaminn brennir meiru. Það að borða
4-6 sinnum á dag tryggir að þú belgir þig ekki út og
nýtir öll efni betur. Þetta heldur blóðsykrinum í
jafnvægi og matarlystin helst stöðugri. Borðaðu
þar til þú ert hæfilega mettur, tyggðu vel og borð-
aðu hægt þar sem það hjálpar til við meltinguna.
Það að borða oft heldur blóðsykrinum líka stöðug-
um. Ef blóðsykurinn sveiflast mikið til fá menn
svokölluð græðgisköst og borða allt sem fýrir
verður og mikið af því. Kaffi og sætindi saman
hafa slæm áhrif á blóðsykurinn. Einfaldur sykur,
eins og er í flestum sætindum, veldur því að blóð-
sykurinn hækkar snögglega og mönnum líður
ágætlega í stutta stund en síðan fellur hann
18