Heilsuvernd - 01.12.1993, Side 48

Heilsuvernd - 01.12.1993, Side 48
STRESS 8. RÓANDI LITIR Litir hafa mjög mismunandi áhrif á fólk og því er um að gera að huga að þeim þætti. En það er ekki nóg að vinnuherbergið sé málað eða veggfóðrað í mildum og róandi litum þar sem þú venst litnum fljótlega og hann hættir að hafa þau áhrif sem honum eru ætluð. Heldur er líka ágætt að hafa einhverja hluti í kringum sig sem einfaldlega er hægt að horfa á þegar þreytan sækir að. Þannig hefur appelsínulitur góð og róandi áhrif á fólk og það getur því verið ágætt að hafa nokkrar appels- ínur í skál á borðinu. Grænn litur hefur einnig róandi áhrif á fólk og er talinn sérstaklega æski- legur ef fólk á við of háan blóðþrýsting að etja. 9. GOTTLOFT Það er áríðandi að hafa hreint og ómengað loft á vinnustaðnum. Góð lykt getur líka haft sitt að segja og minnkað eða eytt streitunni. Sem betur fer er reykt á tiltölulega fáum vinnustöðum núorð- ið en þar, sem tóbaksreykingar eru leyfðar, mynd- ast oftast súrt og vont loft sem fólk verður þó furðufljótt samdauna eða hættir að finna. Vonda loftið er eigi að síður til staðar. Gott ráð til þess að bæta loftið á vinnustaðnum er að hafa plöntur í herberginu en auðvitað er þó áhrifaríkast að hafa glugga opna eftir því sem hægt er hverju sinni. Góð lykt getur haft róandi áhrif á fólk og má þar Réttu hendurnar eins hátt upp og þér er mögulegt og kræktu þeim síðan saman. Það er ekki fullt gagn af teygjuæfingum nema að menn „taki á“ eins og þeim er mögulegt. Teygjuæfingar eru mjög góðar til þess að reyna á vöðva sem ella er hætt við að kítist saman við miklar setur yfir skriftum eða tölvum. djúpt andann og horfið síðan upp í loftið. Teljið upp að þremur, andið rólega frá ykkur og látið hökuna síga rólega niður á bringu. Endurtakið þessa æfingu tíu sinnum. 5. AXLAÆFINGIN Látið hendur síga niður með síðum og reynið að slappa vel af í öxlunum. Dragið djúpt andann og reynið síðan að lyfta öxlum alveg upp undir eyru. Teljið rólega upp að fimm áður en þið andið frá ykkur og látið um leið axlirnar falla í fyrri stöðu. Hreyfið síðan axlimar með léttum hreyfingum upp og niður í það minnsta fimm sinnum. Endur- takið þessa æfingu fimm til tíu sinnum. 6. NUDD GEGN HÖFUÐVERK Leggið lófana á ennið og strjúkið þéttingsfast niður á augabrúnir. Haldið þessari æfingu áfram þangað til ykkur fer að hita í húðina á enninu. 7. AUGNHVÍLD Núið höndum hressilega saman. Lokið síðan augunum og leggið lófana yfir þau. Þið munið strax finna hvernig hitinn frá lófunum og myrkrið verkar sem góð hvíld fyrir augun. 48

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.