Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 18
'YTT OG ENDURSAGT: JONINA LEOSDOTTIR
TILFINNIN G AT APP AR
tilfinningar þínar
Losadu
um stífl-
urnar
sem
koma
í veg fyrir
ad þú tjáir
Manneskjur, sem stjórnast
oft fremur af tilfinningunum
en skynseminni, öfunda
stundum „sterku og þöglu“
manngerðina sem hefur, að
því er virðist, takmarkalausa
sjálfsstjórn. Fólk sem er
ávallt yfirvegað og heldur ró
sinni — sama á hverju geng-
ur.
En það er ekki endilega öf-
undsvert að hafa slíkt taum-
hald á tilfinningum sínum,
jafnt í gleði og sorg. Það getur
valdið líkamlegum veikind-
um og jafnvel verið einkenni
sálræns vandamáls sem
nefnt hefur verið „tilfinn-
ingahefting“ (alexithymia).
Fyrr á tímum var það talið mönnum
til tekna ef þeir báru tilfmningar sínar
ekki á torg. Það var talið styrkleika-
merki. Þannig átti fólk að vera — þó
sérstaklega karlmenn.
Karlar áttu ekki að missa stjóm á
sér á almannafæri eða láta lesa sig
eins og opna bók. Þeir áttu ekki að
fella tár, sama á hverju gengi, enda
áttu þeir aldrei að viðurkenna að þeir
væru sorgmæddir eða hræddir. Sönn
karlmenni áttu alltaf að láta sem allt
væri í himnalagi.
Þrátt fyrir gífurlegar þjóðfélags-
breytingar eimir ennþá ótrúlega mik-
ið eftir af þessu viðhorfi. Þess eru
dæmi, enn þann dag í dag, að strákar
fái óbein skilaboð um það í uppvextin-
um að þeir eigi að halda tilfinningum
sínum leyndum. Þeir eigi að harka af
sér þegar þeim líður illa og stilla sig
þegar gleðin grípur þá. Grátur er vit-
Kanntu að
Svaraðu eftirfarandi spurn-
ingum og gefðu þér þrjú stig
fyrir hvert jákvætt svar, tvö
stig fyrir „kannski“ og eitt stig
fyrir neikvætt svar.
1. Þjáist þú af verkjum eða of-
næmi sem engin skýring hefur feng-
ist á?
2. Gerðist eitthvað þegar þú
varst bam að aldri sem þú vilt ekki
horfast í augu við eða kýst að ræða
ekki um.
3. Finnst þér erfitt að segja þín-
um nánustu hvað þér þykir vænt um
tjá þig?
4. Telja vinnufélagarnir þig afar
hæfan starfsmann sem erfitt sé að
slá út af laginu.
5. Ertu metnaðargjöm/gjam og
setur markið hærra en aðrir telja
raunsætt?
6. Var samband þitt við foreldra
þína erfitt í uppvextinum og var tján-
ing á væntumþykju ef til vill dálítið
þvinguð í fjölskyldunni?
7. Álíturðu það asnalegt eða
jafnvel veikleikamerki þegar fólk
hjalar við böm eða dýr?
Stigagjöf bls. 20
18