Heilsuvernd - 01.03.1994, Side 22
KVEF
gegn kvefveirunum minni og því er
nauðsynlegt að huga vel að því að
vera vel búinn þegar farið er út í
kulda. Sérstalega ætti fólk að huga að
þessu þegar það fmnur að það er að
kvefast.
En þótt kvefpestir séu oftast svo
vægar að fólk vinni sjálft bug á þeim
og í flestum tilvikum sé óþarft og í
raun tilgangslaust að leita læknis þá
er vert að huga að því að til eru mörg
gömul og ágæt húsráð sem geta hjálp-
að og ýmist komið í veg fyrir að fólk
fái kvef eða þá gert pestina vægari og
léttbærari.
Klæddu þig vel
Fyrsta boðorðið er að láta sér ekki
verða kalt. Eins og áður segir orsakar
kuldi ekki kvef en mótstöðuafl líkam-
ans getur minnkað verulega ef fólki er
kalt og þar með eiga kvefveirurnar
greiðari aðgang og geta vaknað til lífs-
ins. Ef fólk er að fara út í kulda er alltaf
sjálfsagt að klæða sig vel en þó eink-
anlega ef kvefpestir eru að ganga eða
fólk fmnur að það er að byrja að kvef-
ast. Þá er um að gera að klæða sig í
nokkrar flíkur, hverja utan yfir aðra.
Loft á milli fatanna gerir það að verk-
um að betri hiti helst á líkamanum. Þá
er vert að minna á það að þannig
Minnkaðu
smit-
hættuna
* Reyndu að komast hjá
snertingu við það fólk
sem er kvefað.
* Taktu ekki um hluti eða
annað það sem kvefað
fólk hefur haldið á.
* Reyndu að forðast að
heilsa þeim sem er kvef-
aður með handabandi. í
mjög mörgum tilvikum
smitast kvef einmitt á
þann hátt.
* Þvoðu þér oft um hendur
og andlit.
Þegar þú
ert að
kvefast
* Hægðu ferðina. Reyndu
að komast hjá miklu
álagi í vinunni og á heim-
ili þínu.
* Reyktuekkiogreynduað
forðast staði þar sem aðr-
ir reykja.
* Drekktu mikið af heitum
vökva, t.d. jurtate, hun-
angste og sítrónusafa.
* Settu strax í gang „áætl-
un“ um hvernig þú ætlar
að komast hjá því að
verða veik/ur af kvefinu.
llllllllli
kemst einnig raki, sem líkaminn
myndar, betur út. Flestir svitna
þegar þeir eru úti að ganga, þótt ekki
sé gengið nema á milli húsa, og ef
svitinn eða líkamsrakinn á greiða leið
út er síður hætta á að fólki verði kalt.
Ef fólk klæðir sig þannig er líka síður
hætta á því að því verði of heitt eins
og getur skeð ef það klæðir sig í eina,
efnismikla flfk.
Að bregðast skjótt við.
Það er um að gera að bregðast
skjótt við ef fólk finnur að það er að
kvefast. Bíðið ekki með aðgerðir uns
kvefið hefur náð sér á strik. Um leið
og fyrstu einkenna verður vart er
sjálfsagt að setja „hernaðaráætlun" í
gang því þannig getur fólk jafnvel
kveðið kvefveirumar algjörlega nið-
ur.
Hvernig væri að
borða hvítlauk
Það hefur löngum þótt gott ráð
gegn kvefi að borða hvítlauk. Sumum
finnst raunar hvítlaukur vondur og
lyktin af honum þannig að það sé ekki
hægt að neyta hans en það eru ýmis
ráð til jafnvel fyrir þá sem ekki teljast
hvítlauksætur.
Ahrifamest er talið að taka 3-4 hvít-
lauka og jafnvel enn fleiri, pressa
laukana eða mala og blanda þeim út í
glas með heitri mjólk eða hunan-
gsvatni. Sjálfsagt er að fá sér þannig
hvítlauksseiði að minnsta kosti tvisv-
ar á dag.
Ef fólk getur ekki hugsað sér að
borða hvítlauk á þennan hátt er vert
að benda á að til eru hvítlaukspillur
sem ekki er mikil lykt af. Til þess að
pillumar geri sama gagn og hvítlauks-
kássan, sem áður er minnst á, þarf að
taka margar pillur daglega.
Sítrónusafi
C-vítamín hefur löngum verið talið
virkasta „meðalið“ gegn kvefi og
sjálfsagt er að auka verulega notkun
þess ef kvef er að sækja að fólki.
C-vítamínið er talið styrkja slímhúð í
nefi og hálsi og því eiga kvefveirurnar
ekki eins greiðan aðgang að slímhúð-
inni.
Gott ráð getur verið að drekka að
minnsta kosti sex glös af hreinum sí-
22