Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 34
FLUGHRÆÐSLA
það er stórt skref stigið og þá getur
þú farið að taka á vandanum.
Þú kemst sennilega að raun um að
það séu margir þættir sem gera þig
flughræddan, t.d. skortur á þekkingu
á því hvernig flugvélin vinnur, innilok-
unarkennd, lofthræðsla, vamarleysi,
óþægilegar minningar frá fyrri flug-
ferðum, spenna og óróleiki yfir því
hvað bíði þín við ferðalok, og svo and-
stæðan - spenna og óróleiki yfir því
sem þú skildir eftir við upphaf ferðar.
Einn þáttur flughræðslunnar er
hæfileiki mannsins til þess að sann-
færa sjálfan sig um eitthvað. Þú
ákveður að þú sért hræddur við að
fljúga. Þú segir við sjálfan þig að þú
sért flughræddur og hafir alltaf verið
það. Hugsir þú á þessum nótum er
öruggt að þú verður hræddur þegar á
hólminn er komið.
Martröð flughræddra hefst fyrir alvöru þegar stigið er um borð í vélina.
Vélin virðist risavaxin að utan en þegar inn er komið er allt svo þröngt og
lokað. Hjá sumum er innilokunarkennd hluti af hræðslunni og vanlíðaninni.
Hvað orsakar
flughræðslu?
Við skulum aðeins líta á ofan-
greinda þætti sem orsaka flug-
hræðslu.
Óvissa um það hvemig flugvélin
vinnur: Þú skilur ekki hvernig unnt er
að halda flugvél á lofti. Þér fmnst við
hljóta að brjóta öll náttúrulögmálin
þegar við setjumst upp í flugvél sem
hefur sig svo á loft. Þú ert viss um að
eitthvað sé að þegar hin og þess hljóð
taka að heyrast og að lofttæmd svæði
Að losna
við flug-
hræðslu
□ Gerðu þér grein fyrir því
hvers vegna þú ert
hræddur.
□ Gerðu þér grein fyrir
þeim aðstæðum sem
vekja hjá þér flug-
hræðslu.
□ Hugsaðu um eitthvað
annað og jákvætt þegar
þú finnur fyrir flug-
hræðslu.
□ Mundu að þú getur
stjórnað hugsanaflæð-
inu og þar með náð tök-
um á flughræðslu.
□ Ekki örvænta þótt þú
náir ekki strax árangri.
Þú verður að sýna þolin-
mæði og æfa þig til þess
að losna við flughræðsl-
una.
34