Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 38
FLUGHRÆÐSLA
Listin
að
slappa
af
□ Við spennumst upp
þegar við erum hrædd
og afleiðingin er enn
óþægilegri líðan. Til-
einkaðu þér því nokkur
atriði til þess að geta
slappað af. Eftirfarandi
atriði er gott að hafa í
huga þegar farið er í
ferðalag með flugvél.
Þau hjálpa þér að slappa
af bæði andlega og lík-
amlega. Æfðu þig
heima.
□ Lokaðu augunum og
andaðu rólega.
□ Krepptu annan hnefann
eins fast og þú getur og
slakaðu síðan á. Andaðu
frá frá þér.
□ Farðu síðan í ferðalag
um líkamann. Spenntu
hvern vöðvahópinn á
fætur öðrum og slakaðu
svo á: Fætur, leggi,
læri, sitjanda, magann,
hrygginn, handleggi og
axlir.
□ Láttu líkamann síðan
slappa fuilkomlega af
þegar þú ert búinn að
spenna hvern vöðvahóp
um sig. Andaðu djúpt og
rólega... Það er ótrúlega
gott...
líður í flugvél. Hugsanagangur eins og
hér er lýst er ágætis æfing í því. Þjálf-
aðu hæfileikann til jákvæðrar hugsun-
ar. Þegar þú er kominn það langt að
þú getur hugsað til flugferðar án þess
að fyllast af skelfingu hefur stórt skref
verið stigið.
Flugið verður æ tæknivæddara og það þýðir um leið aukið öryggi. Tæknin
sér til þess að flugmennirnir „sjái gegnum holt og hæðir“ ef því er að skipta.
Brjóttu upp gamla
hugsanaferlið
Mikilvægt er að bijóta það hugs-
anaferli og spennu sem gera það að
verkum að þú finnur til flughræðslu.
Ekki hugsa á þann hátt sem þú hefur
gert áður.
Þegar þú ert kominn inn í flugvélina
og finnur óttann gagntaka þig skaltu
spyrja sjálfan þig við hvað þú sért
hræddur. Kannski svarar þú spuring-
unni þannig að þú hafir á tilfinningunni
að flugvélin muni hrapa. Hún hristist
svo einkennilega. Þá skaltu rifja upp
að slíkt sé mjög óvenjulegt og að
hristingurinn, sem þú finnur, eigi sér
mjög eðlilegar skýringar. Ef þér
gengur illa að sannfæra sjálfan þig
skaltu spyrja flugfreyju.
Reyndu einnig að komast að raun
um það hvort flughræðsla þín tengist
nokkuð því að fljúga. í mörgum tilfell-
um er svo ekki og þá verður þú að
brjóta upp gamla hugsanaferlið til
þess að komast yfir hræðsluna.
Einnig er möguleiki á því að ómeð-
vitað tengir þú það að fljúga við eitt-
hvað annað, eitthvað sem gerir þig
órólegan og spenntan. Það getur
verið hvað sem er, t.d. erfiðleikar í
viðskiptum, ástarsorg o.s.frv. Van-
Kðan af ýmsum toga getur verið
grundvöllur flughræðslu þinnar. Þú
verður að brjóta þetta hugsanaferli til
þess að losna við óttann. Óþægilegu
aðstæðurnar, sem eitt sinn voru og
leiddu til flughræðslu, kunna að hafa
verið tímabundnar og ekki í gildi leng-
ur. Hættu því að hugsa um þær.
Styrkur hugans
Hugsanirnar stjóma tilfinningunum
og þær leggja einnig grunninn að þeim
tilftnningum sem þú hefur. Þú getur
lært að hugsa á ákveðinn hátt, um
ákveðið málefni eða að dreifa hugan-
um. Styrkur hugans er ótrúlegur.
Þú getur stjómað hugsunum þín-
um. Prófaðu sjálfur á eftirfarandi hátt:
— Hugsaðu um eitthvað þægilegt
sem gerðist í gær. Hugsaðu um fal-
legt hús eða um stað sem þér líður vel
á. Skoðaðu öll smáatriði myndarinnar
sem þú dregur fram í hugann.
— Hugsaðu síðan um eitthvað
sem hefur vakið athygli þína, t.d.
fréttir í útvarpi, sjónvarpi eða blöð-
um. Einbeittu þér að þessu um stund.
Hvað var það aftur sem stjórnmála-
maðurinn sagði? Hvað var í fréttunum
um daginn um ástandið í Suður-Am-
eríku, Englandi, eða í einhverju öðm
landi?
— Hugsaðu síðan um einhveija
íþrótt sem þér finnst gaman að, góða
bók sem þú hefur nýlega lesið eða
eitthvað annað sem gefur þér þægi-
lega tilfinningu.
38