Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 39

Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 39
FRETTIR Þungarokkið skaðlegt Ef marka má niður- stöður úr rannsókn- um, sem fram fóru við Boston háskólann í Bandaríkjunum, getur það verið beinlínis heilsuspillandi að hlusta of mikið á þungarokk. Sjúkdóm- urinn lýsir sér í því að sjúklingurinn fær mjög slæm höfuð- verkjaköst og ósjálf- ráða taugakippi, bæði í höfði og í útlimum. Það, sem varð til þess að farið var að kanna þetta mál sérstaklega, var að umræddur sjúk- dómur virtist einkum herja á ungmenni og þá ekki síst unglinga á aldrinum 13-18 ára. Þegar farið var að kanna umhverfi sjúkl- inganna kom í ljós að þeir áttu það allir sam- eiginlegt að hlusta mikið á þungarokk og stilla hljómflutnings- tæki sín hátt. Sjúk- dómseinkennin gátu varað frá þremur og upp í fimm daga og telja sérfræðingamir að hætta sé á varanleg- um skaða ef sjúkling- amir haldi uppteknum hætti í rokkhlustun sinni. Heilsuspillandi leiðindi Er þingmennska heilsuspillandi at- vinna? Og ef svo er - af hverju? Að undanfömu hafa orðið nokkrar um- ræður í dönskum fjöl- miðlum um mál þetta eftir að þingkonan Lilli Gyldenkilde vakti máls á því að danska þingið væri svo leiðinlegur vinnustaður að þar væri vart verandi og oftsinnis kæmi það fyrir að þingmenn sofn- uðu hreinlega undir löngum og innihalds- lausum ræðuhöldum. Sálfræðingar, sem látið hafa heyra í sér um málið, virðast nokkuð sammála þingkonunni og benda á það að vinnustaðir, þar sem andrúmsloft er þvingað og menn taka sjálfa sig of hátíðlega, geti virkað mjög neikvætt á sálarlíf viðkomandi og smátt og smátt beint því í þann farveg að menn verði viljalitlir og kjarklaus- ir. Benda þeir á að þorri danskra þingmanna láti lítið fyrir sér fara og berist með straumnum. Það séu helst þingkosn- ingar sem veki þing- mennina upp af blund- inum. Segja þeir að Gyldenkilde hafi mikið til síns máls þegar hún segir að hressa þurfi upp á andrúmsloftið í þinginu og gera störf þar áhugaverðari og markvissari. Sennilega gilda svipuð lögmál hér á Islandi og hjá frænd- um vorum. Allavega virðist Alþingi okkar vera vinnustaður þar sem glaðværð eða frumkvæði eru lítt ríkj- andi. HREYFING BEST í HÓFI Allir vita hversu hollt það er að stunda líkams- rækt og hreyfa sig mik- ið. Að margra mati er slíkt í raun lykillinn að bættri eða góðri heilsu. En það er mikill munur á hollum líkamshreyfing- um og alltaf fara ein- hverjir yfir strikið í við- leitni sinni til að verða hraustari. f breska læknatímaritinu Lancet birtist nýlega grein þar sem fram kom að ekki sé óalgengt að fram komi hjartaveilur hjá mara- þonhlaupurum. í um- ræddri grein er því líka slegið föstu að keppnis- íþróttafólk hafi yfirleitt minna mótstöðuafl gegn ýmsum sjúkdómum en þeir sem stunda venju- legar líkamsæfingar. Keppnisíþróttafólkið fær oftar kvef, hálsbóigu og hósta. Þá hefur það einnig sýnt sig að of- þjálfun ungra kvenna getur orðið til þess að óregla kemst á blæðing- ar þeirra og þær verða ófrjórri en ella. Síðast en ekki síst má nefna það að miklar eróbikk- æfingar geta líka skaðað liðbönd og liðamót. Lær- dómurinn, sem Lancet segir að draga megi af umræddum niður- stöðum, er einfaldur: Þjálfaðu þig og haltu þér í góðu líkamlegu formi - en gættu hófs í því sem þú ert að gera eða ætlar þér að gera. Talið er að hæfilegt sé að fólk stundi líkamsrækt á þennan hátt í 30-60 mín- útur 2-3 sinnum í viku. 39

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.