Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 44
FRETTIR
IIIÍIllliÍSÍIillllÉlllliiilíÍÉllll
SKYLDU-
NOTKUN
REIÐHJÓLA-
HJÁLMA
A Alþingi hefur verið
lagt fram lagafrumvarp
sem gerir ráð fyrir að
börnum 12 ára og yngri
verði gert að skyldu að
nota hjálma þegar þau
eru á reiðhjólum. I grein-
argerð með frumvarpinu
kemur fram að tíðni
höfuðáverka vegna hjól-
reiðaslysa hefur aukist
verulega hérlendis á síð-
ustu árum en talið er
sannað hjálmanotkun
geti komið í veg fyrir al-
varleg höfuðmeiðsli. Lög,
sem kveða á um notkun
reiðhjólahjálma, hafa nú
víða tekið gildi og hefur
hjálmanotkunin allstað-
ar dregið úr meiðslum.
Ekki er gert ráð fyrir
neinum viðurlögum gegn
brotum á þessum lögum
öðrum en þeim að lög-
reglunni er heimilt að
——
taka hjól af börnum sem
ekki nota hjálma og af-
henda þau forráðamönn-
um barnanna.
TEYGJU-
STÖKK
SKAÐLEG
FYRIR
SJÓNINA?
Á undanförnum árum
hafa teygjustökk notið
mikilla vinsælda víða um
lönd enda finnst sumum
að með þeim geti þeir
sannað hugrekki sitt og
dug. Teygjustökkin hafa
til þessa verið talin skað-
lítil og þótt þau virðist
heldur glæfraleg hafa
sárasjaldan orðið alvar-
leg slys við þau. Nú hefur
það hins vegar komið í
ljós að teygjustökkin
geta haft skaðvænleg
áhrif á sjón manna er þau
iðka og hafa bresku
læknasamtökin séð
ástæðu til þess að vara
við stökkunum. I lækna-
tímaritinu Lancet birtist
nýlega grein þar sem sagt
var frá því að vitað væri
um nokkur tilvik þar sem
teygjustökk hefðu orsak-
að blæðingar í augum og
viðkomendur hefðu hlot-
ið af varanlegan skaða.
HERÖR GEGN
ÁREITNI
Evrópuþingið hefur
ákveðið að gera aðildar-
ríkjum sínum það skylt
að skera upp herör gegn
kynferðislegri áreitni á
vinnustöðum. Er gert ráð
fyrir því að fyrirtæki
verði skylduð til þess að
bjóða starfsfólki sínu upp
á ráðgjöf á þessu sviði og
einnig er gert ráð fyrir því
að þeir, sem sýna slíka
áreitni, sæti ábyrgð og
fjársektum. Fram kemur
í áliti Evrópuþingsins að
kynferðisleg áreitni á
vinnustöðum fari vaxandi
og sé sumstaðar að verða
að hálfgerðri plágu. And-
mælendur slíkra fullyrð-
inga halda því hins vegar
fram að nú sé svo komið
að allt sé kallað kynferð-
isleg áreitni og fólk af
gagnstæðu kyni megi
helst ekki tala saman,
hvað þá snerta hvort ann-
að.
OF MIKIÐ
OFBELDI OG
KYNLÍF
Italska kvikmynda-
leikkonan Sophia Loren
hefur nú ákveðið að
leggja þeim lið sem berj-
ast gegn ofbeldi í kvik-
myndum. Á kvikmynda-
hátíðinni, sem haldin var
í Berlín á dögunum, flutti
Loren ræðu þar sem hún
sagðist taka undir þau
sjónarmið að ofbeldi í
kvikmyndum gætu haft
mjög skaðvænleg áhrif á
börn og unglinga. Sagði
Loren í ræðu sinni að
kvikmyndaframleiðend-
ur virtust leggja æ meiri
áherslu á ofbeldi og kynlíf
í myndum sínum og oft
snerust myndirnar um
þessi tvö atriði ein. Loren
sagði ennfremur að
fyllsta ástæða væri til
þess að kanna nánar en
gert hefur verið hvaða
áhrif ofbeldiskvikmyndir
hefðu á sálarlíf barna og
unglinga sem sætu oft lon
og don yfir slíkum mynd-
um.
FORDÆMI
KOMIÐ
Héraðsdómur í Flórída
í Bandaríkjunum kvað
nýlega upp dóm yfir
manni nokkrum og hefur
dómurinn vakið heimsat-
hylgi. Maðurinn, sem er
smitaður af alnæmi,
rændi ungum dreng og
nauðgaði honum. Þótt
drengurinn slyppi við að
smitast af alnæmi var
maðurinn fundinn sekur
um morðtilraun og
dæmdur samkvæmt því.
Með dómi þessum er í
raun kveðið á um að ef al-
næmissmitaður einstakl-
ingur hefur samræði án
þess að gera grein fyrir
sjúkdómi sínum megi
hann búast við því að vera
ákærður fyrir morðtil-
raun.
REYKINGAR
GETA YALDIÐ
HEYRNAR-
SKAÐA
Kanadískar rannsókn-
ir hafa leitt í ljós að líkur
á því að börn fái í eyrun og
verði fyrir heyrnarskaða
síðar á ævinni eru langt-
um meiri ef mæður þeirra
reykja á meðgöngutíman-
um. Ástæðan er sú að
nikótínið í tóbakinu virk-
ar á hárfrumur sem eru í
völundarhúsinu í eyrum
barnanna. Hættan á
heyrnarskaða er talin í
réttu hlutfalli við það hve
mikið hin verðandi móðir
reykir á meðgöngutíman-
um.
44