Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 46
FRETTIR
HVÍLDIN GÓÐ
Sænskar rannsóknir
hafa leitt í ljós að það get-
ur haft mjög mikil áhrif á
konur, sem þjást af alls-
konar streitusjúkdóm-
um, að dveljast um skeið
á heilsustofnunum eða
heilsuhótelum. Rann-
sóknin byggði á athugun-
um á 2.000 konum og
náði yfir tíu ára tímabil.
Helsta niðurstaðan var
sú að þær konur, sem
„fórnuðu“ tíma til þess að
dveljast á heilsustofnun-
um um skeið, voru al-
mennt við betri heilsu en
hinar. Þær þjáðust
sjaldnar af of háum blóð-
þrýstingi og offitu og voru
almennt betur á sig
komnar. Astæðan er talin
einföld. A heilsustofnun-
unum höfðu þær lært ým-
islegt um heilsu sína,
mataræði og líkamsæf-
ingar sem þær síðan
nýttu sér þegar dvölinni
þar lauk.
FÉLAGSLEG
HJÁLP
MIKILVÆG
Nýjar athuganir, sem
framkvæmdar voru hjá
Stanford háskólanum í
Bandaríkjunum, hafa
leitt í ljós að það sé mjög
mikilvægt fyrir konur,
sem fá brjóstakrabba-
mein, að leita ráðlegg-
inga hjá stuðningshópum
sem til eru víða fyrir kon-
ur sem fá þennan sjúk-
dóm. I ljós kom að lífslík-
ur kvenna, sem það gera,
virtust meiri og líðan
þeirra betri meðan á
krabbameinsmeðferðinni
stóð. Og þótt konumar
lifðu ekki sjúkdóminn af
var líftími þeirra, sem
fengu félagslega hjálp, að
jafnaði átján mánuðum
lengri en hinna sem ekki
leituðu sér slíkrar að-
stoðar.
LÁRÉTT
HUGSUN OG
LÓÐRÉTT
Ef fólk vill verða virkt
og hugmyndaríkt er talið
ráðlegt fyrir það að leggj-
ast flatt á gólfið eða í rúm.
Nýlegar bandarískar
rannsóknir hafa leitt það
í ljós að fólk á auðveldara
með að einbeita sér og
virkja hugsun sína ef það
er lárétt heldur en ef það
er lóðrétt. Hins vegar
bendir sama rannsókn til
þess að fólk verði
óákveðnara og eigi erfið-
ara með að taka skjótar
ákvarðanir ef það liggur
fyrir. Því er um að gera að
leggja sig, hugsa málin
en spretta síðan á fætur
og taka ákvörðunina!
KALKTAKA
NAUÐSYNLEG
Margar konur eiga við
úrkölkun í beinum að
stríða, sérstaklega þegar
kemur fram yfir breyting-
araldurinn. Þegar fram-
leiðsla líkamans á östró-
geni minnkar minnkar
kalkinnihald beina. Þetta
leiðir aftur til þess að
beinin verða stökkari og
beinbrot em algengari
hjá rosknum konum en
rosknum körlum og koma
þar lærbrot og handleggs-
brot einkum við sögu.
Miklar rannsóknir á úr-
kölkun hafa átt sér stað
víða um lönd og niður-
stöður þeirra kannana
hafa verið dálítið misvís-
andi. Nú hafa vísinda-
menn í Auckland háskól-
anum birt niðurstöður úr
viðamikilli könnun sem
þeir gengust fýrir. Þeir
gáfu konum, sem vora að
byrja að fá úrkölkun,
stóra kalkskammta og
reyndist það leiða til þess
að úrkölkunin minnkaði
eða hætti hjá flestum. En
til þess að svo stór
skammtur, sem þeir gáfu
(1 gramm af kalsíum á
dag), virkaði þurftu kon-
urnar einnig að taka D-
vítamín sem auðveldaði
líkamanum að vinna úr
kalkinu.
GOTT
SAMBAND
STUÐLAR AÐ
ÖRYGGI
Börn, sem ná ekki góðu
sambandi við foreldra
sína, em almennt talin
kæmlausari en þau sem
tala mikið við foreldrana
og þiggja ráð þeirra.
Kæmleysið kemur fram í
mörgum myndum og þá
ekki síst í því að börnin
nota síður öryggishjálma
þegar þau ferðast á mót-
orhjólum og bílbelti
þegar þau em í bílum.
LYKTNÆMI
Á sumum sviðum
standa konur körlum tví-
mælalaust framar. Það á
a.m.k. við um lyktarskyn
en staðreyndin er sú að
konur hafa mun næmara
lyktarskyn en karlar.
Bæði finna þær daufari
lykt og eins fleiri lyktar-
afbrigði. Talið er að lykt-
arskyn kvenna sé sér-
staklega næmt á þeim
tíma sem egglos verður
hjá þeim.
46