Morgunblaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 38
38 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 2. deild karla ÍR – Kári ................................................... 4:1 Leiknir F. – Magni ................................... 0:1 Staðan: Þróttur V. 18 11 5 2 36:17 38 KV 19 10 4 5 35:28 34 Völsungur 18 10 3 5 40:32 33 Magni 19 8 6 5 38:32 30 Njarðvík 18 7 8 3 42:23 29 ÍR 19 7 7 5 35:27 28 KF 18 8 4 6 34:28 28 Reynir S. 19 7 5 7 39:38 26 Haukar 18 5 4 9 31:37 19 Leiknir F. 19 5 3 11 25:42 18 Fjarðabyggð 18 2 5 11 13:44 11 Kári 19 1 6 12 25:45 9 2. deild kvenna Hamrarnir – Hamar................................. 1:6 Lokastaðan: FHL 12 10 1 1 71:13 31 Völsungur 12 9 2 1 28:12 29 Fjölnir 12 8 2 2 42:13 26 Fram 12 8 1 3 31:13 25 KH 12 8 0 4 37:13 24 ÍR 12 6 1 5 46:26 19 Sindri 12 6 1 5 27:26 19 Hamar 12 4 3 5 23:25 15 Einherji 12 3 4 5 22:22 13 Hamrarnir 12 3 2 7 24:32 11 Álftanes 12 3 0 9 15:24 9 SR 12 1 1 10 18:38 4 KM 11 0 0 11 1:128 0 _ Fjögur efstu liðin leika til úrslita um tvö sæti í 1. deild. 4. deild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Hamar – Kría............................................ 1:1 Kormákur/Hvöt – Álftanes ..................... 0:0 Árborg – Vængir Júpíters ....................... 2:2 Ýmir – KH................................................. 0:0 Ítalía Udinese – Venezia ................................... 3:0 - Arnór Sigurðsson kom inn á hjá Venezia á 71. mínútu en Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hópnum. Verona – Inter Mílanó ............................. 1:3 B-deild: Pisa – Alessandria ................................... 2:0 - Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Pisa. Tyrkland Adana Demispor – Konyaspor............... 1:1 - Birkir Bjarnason kom inn á hjá Adana Demispor á 75. mínútu. Holland B-deild: Jong Ajax – Excelsior ............................. 1:2 - Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 60 mínúturnar með Jong Ajax. Danmörk B-deild: Nyköbing – Esbjerg ................................ 1:1 - Andri Rúnar Bjarnason kom inn á hjá Esbjerg eftir 84 mínútur en Ísak Óli Ólafs- son var ekki í leikmannahópnum. Spánn Mallorca – Espanyol ................................ 1:0 Valencia – Alavés...................................... 3:0 Þýskaland Dortmund – Hoffenheim ......................... 3:2 >;(//24)3;( Þýskaland Bikarkeppnin, 1. umferð: Pforzheim – Gummersbach ............... 20:25 - Hákon Daði Styrmisson skoraði 7 mörk fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars- son skoraði 2 mörk og gaf stoðsendingu. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Origo-völlur: Valur – Stjarnan ......... L19.15 Greifavöllur: KA – ÍA ............................. S16 Meistaravellir: KR – Leiknir R ............. S17 Kaplakriki: FH – Víkingur R................. S17 Kórinn: HK – Keflavík....................... S19.15 Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik ...... 19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Ólafsvík: Víkingur Ó. – Selfoss.............. L14 Varmá: Afturelding – Þróttur R ........... L14 Grindavík: Grindavík – Kórdrengir...... L14 Framvöllur: Fram – Grótta ................... L14 SaltPay-völlur: Þór – Fjölnir................. L16 2. deild karla: Húsavík: Völsungur – Þróttur V ........... L14 Ólafsfjarðarvöllur: KF – Njarðvík........ L14 Ásvellir: Haukar – Fjarðabyggð........... L14 3. deild karla: Sindravellir: Sindri – Tindastóll............ L13 Skessan: ÍH – KFS................................. L14 Þorlákshöfn: Ægir – Einherji ............... L14 Würth-völlur: Elliði – Víðir.................... L15 Fagrilundur: Augnabl. – Höttur/Hug... S13 Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – KFG ......... S16 2. deild kvenna, undanúrslit, fyrri leikir: Extra-völlur: Fjölnir – Völsungur ........ L14 Framvöllur: Fram – Fjarð/Hött/Leikn S14 UM HELGINA! Már Gunnarsson hafnaði í þrett- ánda sæti í fyrstu grein sinni á Ól- ympíumóti fatlaðra í Tókýó í gær- morgun en þá tók hann þátt í 50 metra skriðsundi í flokki blindra. Már synti á 29,30 sekúndum, aðeins undir sínum besta tíma sem er 28,74 sekúndur. Fjórtán af sextán skráð- um keppendum luku sundinu. Már sagði við Morgunblaðið að þetta hefði verið góð upphitun fyrir aðal- grein sína, 100 metra baksundið, en þar hóf hann keppni eldsnemma í morgun. Nánar um keppnina í Tók- ýó á Ólympíuvef mbl.is. Hitaði upp í skriðsundinu Ljósmynd/ÍF Tókýó Már Gunnarsson keppir í fjórum greinum á Ólympíumótinu. Eftir að Juventus lét þau boð út ganga að portúgalski knatt- spyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo væri falur fyrir rétt verð gerðust hlutirnir hratt. Atburðarásinni lauk í gær þegar Manchester United til- kynnti að Ronaldo væri að ganga í raðir félagsins á ný, tólf árum eftir að hann fór frá United til Real Madríd. Talið var að Manchester City væri í viðræðum við Juventus en fé- lagið bauð aldrei í Ronaldo. United greiðir um 13 milljónir punda fyrir leikmanninn samkvæmt BBC. Ronaldo til United á ný AFP Old Trafford Cristiano Ronaldo í leik með Man Utd árið 2008. Í TÓKÝÓ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Arna Sigríður Albertsdóttir verður síðust Íslendinganna sex á Ólympíu- móti fatlaðra í Japan til að hefja keppni en handahjólreiðarnar, henn- ar grein, er á dagskrá á þriðjudag og miðvikudag. Hún er líka fjarri hinum íslensku keppendunum því hjólreiðafólkið dvelur við Fuji-kappakstursbrautina í Oyama, rétt hjá hinu fræga Fuji- fjalli í um 80 kílómetra fjarlægð norður af höfuðborginni Tókýó. Arna hefur dvalið í Fuji síðan á miðvikudag en hafði áður verið með íslenska hópnum frá komunni til Japans 15. ágúst, og sagði við Morgunblaðið að undirbúningurinn hefði gengið ágætlega. „Ég er glöð yfir því að hafa komið hingað snemma. Hitinn og rakinn setja smá strik í reikninginn. Ég bjóst alveg við því en það er mjög erfitt að æfa í þessum hita og raka. En ég kannast við þetta eftir að hafa keppt við svipaðar aðstæður á HM á Ítalíu fyrir nokkrum árum.“ Öll aðstaðan er frábær Arna segir að þær hafi gert ráð- stafanir til að laga sig að aðstæðum. „Við fórum til Mallorca og vorum þar í tvær vikur í svipuðum hita en þar var ekki jafnmikill raki. En það var gott að komast hingað strax 15. ágúst, vera hérna og prófa strax að hjóla og vinna með því gegn ferða- þreytunni og tímamismuninum.“ Arna og aðstoðarkona hennar, Ragnheiður Eyjólfsdóttir, sem sjálf keppir í hefðbundnum hjólreiðum, eru komnar ágætlega á veg í und- irbúningi sínum á Fuji-svæðinu. „Ég hjólaði í fyrsta sinn á keppn- isbrautinni í dag. Hún er töluvert erfiðari en ég átti von á, mikið af brekkum sem ég er hæg upp en mjög hröð niður. Þetta er erfið en skemmtileg braut og það verður stórt verkefni að keppa á henni,“ sagði Arna við Morgunblaðið í gær. „Það hefur verið keppt á þessari braut í formúlu-1 og ég held að hún sé núna notuð í formúlu tvö eða þrjú og Grand-Prix-kappakstri þannig að þetta er nokkuð fræg braut. Ég skoðaði hana talsvert fyrir fram og var fyrir löngu búin að fá hæðarkort af henni. Þetta er óvenjuleg braut fyrir keppni hjá okkur en hún er tæknilega mjög erfið og mikið af beygjum. Þá er töluvert meira af brekkum en í flestum keppnum hjá okkur. Áherslan á tímatökunni Arna keppir í tveimur greinum, fyrst í tímatöku þar sem einn og einn fer í einu og hjólar 17 kíló- metra, og síðan í götuhjólreiðum þar sem hjólaðir eru 27 km. Sú sem nær bestum árangri í tímatökunni byrjar fremst í þeirri síðari. Arna segir að sín áhersla verði á tímatökunni. „Já, ég er frekar reynslulítil í keppni á götu miðað við flestar stelpurnar sem eru hérna. Ég er sú eina sem stunda þessa íþrótt á Ís- landi og hef ekki þessa reynslu af því að vera með öðrum í hóp. Tímatakan ætti því að vera mín grein en það verður ótrúlega gaman að prófa götuhjólreiðarnar því það hjálpar sérstaklega mikið að vera fyrir aftan einhvern sem klýfur vindinn fyrir þig. Þá sparast tugir prósenta af orku.“ Arna kveðst kannast við flesta keppinautana þótt hún þekki þá ekki mikið. „Þær sömu hafa verið í þessu lengi, þetta er úthaldssport og fólk er lengi að og meðalaldurinn er mjög hár. Ég er með þeim yngstu þótt ég sé orðin þrítug.“ Hún hefur þurft að bíða lengi eftir því að geta keppt vegna kórónu- veirufaraldursins. „Já, ég hef ekki keppt síðan 2019. Ég hef verið óheppin, það er mikið fyrirtæki að fara í ferðir erlendis á tímum kór- ónuveirunnar á meðan þær sem búa á meginlandi Evrópu geta frekar farið á milli landa og keppt. Ég hef hvorki þorað né getað farið út. Ég renni því mjög blint í sjóinn en er ekki sú eina sem er í svona óvenju- legri stöðu. Ég hef heyrt í Karen Darke frá Bretlandi, fyrrverandi ól- ympíumeistara í mínum flokki, og hún sagði að keppnin væri mjög opin. Það ættu í raun allir möguleika vegna þess hve óvissuþættirnir væru margir, sem var gott að heyra. Brautin er óvenjuleg svo það á margt eftir að koma í ljós.“ Frábært að geta sýnt að íþróttin sé til Arna Sigríður, sem varð fyrir mænuskaða í skíðaslysi sextán ára gömul og er bundin við hjólastól, er brautryðjandi í íþróttinni hér á landi þar sem hún er fyrst Íslendinga til að keppa í henni á Ólympíumóti. Hún kveðst mjög stolt af því. „Þetta er búið að vera ótrúlega gaman og frábært tækifæri. Það var alltaf markmiðið að komast á þetta mót en eftir vandræðin síðustu tvö ár átti ég ekki sérstaklega von á því að fá keppnisrétt. Þar sem ég var sú fyrsta til að fara í þessi mót í handa- hjólreiðum hefur mikill tími farið í að kynna sér reglurnar og fleira slíkt. En að sama skapi er það frá- bært tækifæri að geta sýnt Íslend- ingum að þessi íþrótt sé til. Handa- hjólreiðar eru stór hluti af hjólreiðum fatlaðra en það eru margar fleiri greinar innan þeirra sem væri gaman að sjá heima á Ís- landi,“ sagði Arna Sigríður. Fuji-brautin er erfið en samt mjög skemmtileg - Arna Sigríður býr sig undir keppni á frægri kappakstursbraut við rætur Fuji Ljósmynd/Kristín Linda Kristinsdóttir Fuji Arna Sigríður Albertsdóttir og Ragnheiður Eyjólfsdóttir, aðstoðarkona hennar á Ólympíumótinu, á svæðinu við Fuji-kappakstursbrautina í gær. Jónatan Ingi Jónsson, kantmaður FH-inga, var besti leikmaðurinn í 18. um- ferð úrvalsdeildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Jónatan átti stórleik, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark að auki síðasta laugardag þegar FH vann stórsigur á Keflavík á útivelli, 5:0. Jónatan fékk tvö M fyrir frammistöðu sína og þá einkunn fengu einnig í umferðinni Víkingarnir Viktor Örlygur Andrason og Sölvi Geir Ottesen og Blikinn Gísli Eyjólfsson. Auk leik FH og Keflavíkur tilheyrðu umferðinni fyrri leikur Breiðabliks og KA, toppslagur Vals og Víkings, Stjarnan gegn Fylki, Leiknir R. gegn HK og ÍA gegn KR. Úrvalslið 18. umferðarinnar má sjá hér fyrir ofan. 18. umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Haraldur Björnsson Stjarnan Pablo Punyed Víkingur R. Jónatan Ingi Jónsson FH Pálmi Rafn Pálmason KR Baldur Logi Guðlaugsson FH Viktor Örlygur Andrason Víkingur R. Emil Atlason Stjarnan Viktor Örn Margeirsson Breiðablik Sölvi Geir Ottesen Víkingur R. Gísli Eyjólfsson Breiðablik Bjarki Aðalsteinsson Leiknir R. 2 2 2 2 2 2 3 3 4 Jónatan bestur í 18. umferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.