Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 44

Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 Avant-garður nefnist verkefni sem þrjár bekkjarsystur úr myndlistar- deild Listaháskóla Íslands, þær Margrét Helga Sesseljudóttir, Solveig Thoroddsen og Ingibjörg Edda, komu á fót skömmu eftir útskrift 2010. „Avant-garður er myndlistarverkefni þar sem sýn- ingarnar standa aðeins yfir í fáein- ar klukkustundir og eru sýningar- staðir óhefðbundnir og oft utan dyra. Að þessu sinni er sýningin haldin í undirgöngum undir Miklu- braut við Lönguhlíð,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Edda búi nú erlendis, en Margrét og Solveig buðu fjórum öðrum bekkjarfélögum úr LHÍ að vera með að þessu sinni. Það eru þau Ragnhildur Jóhannsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Unnur Óttars- dóttir og Þórarinn Ingi Jónsson. Sýningin fer fram í dag, laugar- dag, milli kl. 16 og 19. Avant-garður í undirgöngum í dag Listakonur Margrét Helga og Solveig. Sýning á kirkjulistaverkum Sigrún- ar Jónsdóttur (1921-2021) verður opnuð í Seltjarnarneskirkju að lok- inni guðsþjónustu á morgun sem hefst kl. 11. Með sýningunni er þess minnst að fyrr í þessum mánuði voru 100 ár liðin frá fæðingu lista- konunnar. Sigrún lauk handavinnu- kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1947 og útskrifaðist sem meistari úr textíldeild Slöjdfören- ingens-skóla. „Sigrún kynnti fyrir Íslendingum ævaforna listgrein, batik. Batikskermar og batikdúkar sem hún gerði nutu mikilla vin- sælda. Segja má að hún sé með fyrstu kirkjulistakonum Íslendinga og er líklega mikilvirkust þeirra allra í kirkjulist þar sem vefnaður og saumur koma við sögu,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur í mánuð og er aðgangur ókeypis. Kirkjulistakonu minnst með sýningu Hökull Skreyting á hökli eftir Sigrúnu. Söngkonurnar Kristjana Stefánsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir koma fram ásamt hljómsveit á tvennum tónleikum þar sem tvær spunastefnur mætast. „Það er í eðli listarinnar að leita stöðugt að nýjum snertiflötum, þróa nýjar aðferðir en ekki síður að byggja á eldri grunni. Á þessum tónleikum mætast tvær spunastefnur, djass og barokk. Þar gefst bæði áheyrendum og hljóð- færaleikurum einstakt tækifæri til að víkka út sjóndeild- arhring sinn og upplifa/flytja tónlist, sem við erum vön að heyra í ákveðnu samhengi, í algjörlega nýjum bún- ingi og aðstæðum,“ segir í tilkynningu. Hljómsveitina skipa Kjartan Valdemarsson á píanó og harmonikku, Eyþór Ingi Jónsson á orgel og sembal, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Pétur Grétarsson á slagverk. Fyrri tónleikarnir eru í Akureyrarkirkju á morgun, sunnudag, kl. 17 og seinni tónleikarnir, sem eru hluti af Jazz- hátíð Reykjavíkur, í Fríkirkjunni í Reykjavík 2. september kl. 12. Stefnumót forms og spuna Kristjana Stefánsdóttir Önnur sýning nefnist sýning á verkum Kees Vissers sem opnuð verður í Úthverfu á Ísafirði í dag, laugardag. kl. 16. „Kees Visser hélt síðast einkasýningu í þessu sama rými árið 1990 sem Myndlistarfélagið á Ísafirði rak og hét þá Slunkaríki. Á sýningunni verða tíu nýleg verk, blýantsteikning með bleki og vatnslitum og akrílmálverk unnin á 105 g shiragiku-pappír og mengei. Listamaður- inn verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður upp á sýningarspjall af því tilefni. Sýningin, sem stendur til 19. september, er opin fimmtudaga og föstu- daga milli kl. 16 og 18 og eftir samkomulagi. Kees Visser sýnir í Úthverfu á Ísafirði Verk eftir Kees Visser Vinir Saltfiskmóans standa fyrir hverfishátíð á Rauðarárholti á morgun, sunnudag. Klukkan 11 verður í samvinnu við hópinn Sumar Yoga boðið upp á útijóga í Saltfiskmóanum, sem staðsettur er í hverfisgarðinum norðvestan við Sjómannaskól- ann. Klukkan 14 flytur söngvaskáldið Teitur Magnússon lög af ferli sínum og kl. 15 leikur Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt undir listamannsnafninu Lay Low, eigin tónlist. Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og gæta að persónubundnum sóttvörnum. Nánari upplýsingar á facebook-síðunni Saltfiskmóinn. Hátíðin er styrkt af Reykjavíkurborg gegnum Borgina okk- ar. Aðgangur er ókeypis. Jóga og tónlist undir berum himni Lay Low Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Við vildum gera tilraunir með sam- félag og við vildum veita því athygli hvernig við getum komið inn í ís- lenska listastofnun og tekið pláss þar með fólki með ólíkan bakgrunn,“ segir Hubert Gromny sem ásamt Wiolu Ujazdowska stýrir haustsýn- ingu Hafnarborgar, Samfélag skynj- andi vera. Sýningin verður opnuð í dag, laugardaginn 28. ágúst, milli kl. 12 og 17 og voru sýningarstjórarnir í óðaönn að setja hana upp þegar blaðamaður náði tali af þeim. Alls eiga yfir tuttugu listamenn verk á sýningunni. „Við vildum setja upp sýningu þar sem væru saman- komnir virtir og reyndir íslenskir listamenn, íslenskir listamenn af yngri kynslóðum og erlendir lista- menn sem eru búsettir hér eða hafa sterka tengingu við Ísland. Þá vakna spurningar um það hvernig við get- um í sameiningu búið til frásögn, hvernig verkin okkar tala saman.“ Yfir tuttugu listamenn Listamennirnir eru auk Wiolu og Huberts þau Agata Mickiewicz, Agnieszka Sosnowska, Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir, Angela Rawlings, Anna Wojtynska, Dans Afríka Iceland, Freyja Eilíf, Gígja Jónsdóttir, Hildur Ása Henrýsdótt- ir, Kathy Clark, Katrín Inga Jóns- dóttir Hjördísardóttir, Melanie Ubaldo, Michelle Sáenz Burrola, Nermine El Ansari, Pétur Magn- ússon, Rúnar Örn Jóhönnu Mar- inósson, Styrmir Örn Guðmundsson og Ufuoma Overo-Tarimo. Heiti sýningarinnar Samfélag skynjandi vera vekur spurningar um hvað það er að vera skynjandi vera. „Sumir hugsa um dýr, aðrir um anda,“ segir Hubert og Wiola skýtur inn í: „Eða plöntur,“ og heldur áfram: „Við erum að rannsaka hvað það er að vera lifandi vera og hvað það er að skynja. Við reynum líka að vera opin um hugmyndina um sam- félag. Við höfðum áhuga á þeirri hugmynd að hugsa í sameiningu. Þess vegna buðum við svona mörg- um listamönnum að vera með.“ Hubert tekur við: „Við erum að búa til samfélag hugmynda. Fólk svarar kalli okkar um það hvernig við tölum um hina skynjandi veru og við erum forvitin um það hvað þau hafa til málanna að leggja. Þau hafa öll mismunandi sögur og konsept og ég held að það verði mjög áhugavert fyrir áhorfandann að sjá hversu margar ólíkar leiðir er hægt að fara að efninu. Ný nálgun á sýningarstjórn Það er mikilvægt að þessi skynjun er líka skyld skilningi, skilningi sem fæst með næmi frekar en vits- munum. Það er svo stór hluti um- ræðunnar um hið félagslega sem er byggt á vitsmunum, tölfræði, pen- ingum og svo framvegis,“ segir Hubert og Wiola segir þau hafa vilj- að stíga út fyrir það. Hann heldur síðan áfram: „Við er- um að leita að tilfinninganæmi sem við kannski skiljum ekki en höfum á tilfinningunni að hafi samt áhrif á okkur. Það er spennandi og getur bætt upplifun manns af hversdeg- inum.“ Wiola segir að nálgun þeirra Hub- erts á hlutverk sýningarstjórans hafi verið ólík þeirri sem tíðkist. „Við vildum komast út fyrir þetta valdakerfi. Við erum líka að sýna verk þarna og vildum vera jafn- ingjar hinna listamannanna. Við vildum prófa þessa hugmynd um samfélag og samvinnu við gerð sýn- ingarinnar.“ Þau segjast hafa viljað vera opin fyrir hugmyndum hinna listamannanna og að þau líti á það sem sitt hlutverk að finna leiðir til þess að láta verk þessara ólíku lista- manna eiga í samtali. Listamennirnir sem koma að sýn- ingunni hafa allir ólíkan bakgrunn og nálgast listina á sinn hátt en sýn- ingarstjórarnir segjast hafa skapað frásagnir sem eru gegnumgangandi á sýningunni og tengja verkin. „Fólk getur komið oftar en einu sinni á sýninguna og fundið nýja þræði í hvert sinn. Við viljum bjóða fólki að koma og taka því sem það skilur ekki, því óþekkta, opnum örmum,“ segir Hubert. Samvinna og samfélag hugmynda í Hafnarborg - Sýningin Samband skynjandi vera verður opnuð í dag Morgunblaðið/Eggert Sýningarstjórar „Við viljum bjóða fólki að koma og taka því sem það skilur ekki, því óþekkta, opnum örmum,“ segir Hubert sem hér er ásamt Wiolu. Samtímaóperan Ekkert er sorglegra en manneskjan, eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson, í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar, snýr aft- ur í Tjarnarbíó. Næstu sýningar eru annað kvöld, á miðvikudag og sunnu- dag, kl. 20 öll kvöld. Sýningin hlaut sjö tilnefningar til Grímunnar 2021 og hlaut verðlaunin fyrir tónlist ársins (Friðrik Margrét- ar-Guðmundsson) og söngvara ársins (María Sól Ingólfsdóttir). Aðrir söngvarar uppfærslunnar eru Dagur Þorgrímsson, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir og Ólafur Freyr Birkis- son. Samtímaópera snýr aftur í Tjarnarbíó Sorglegt Úr uppfærslunni á Ekkert er sorglegra en manneskjan. s/fo sa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.