Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 43

Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er dásamleg tilfinning að vera aftur komin hingað eftir stoppið af völdum Covid,“ sagði Sigríður L. Gunnarsdóttir, galleristi í Hverfis- galleríi, þar sem hún stóð á fimmtu- daginn á sýningarsvæði sínu á CHART-myndlistarkaupstefnunni í Charlottenborg í Kaupmannahöfn. Fyrsta daginn af fjórum mæta boðs- gestir, safnarar og innvígðir af ýmsu tagi að skoða hvað galleríin 26 og hinir 11 sýnendurnir í ár hafa fram að færa, og það hafði verið mikill erill hjá Sigríði sem hafði vart undan að svara spurningum áhuga- samra gesta. Og þennan fyrsta dag selst venjulega mest af verkum; blaðamaður gat ekki betur séð en að til að mynda hefðu öll þrjú verkin eftir Loja Höskuldsson sem Hverf- isgallerí sýnir verið seld strax við opnun. Einnig eru þar á veggjum verk eftir Kristin E. Hrafnsson, Hildi Bjarnadóttur og Hrafnkel Sig- urðsson sem líka vöktu athygli. Reynt að styrkja listsamfélagið Áður en dyr CHART að þessum sögufrægu salarkynnum við Ný- höfnina voru opnaðar gestum á fimmtudag, í níunda sinn sem þessi kaupstefna með þátttöku helstu norrænu myndlistargalleríanna er haldin, sagði Nanna Hjortenberg, stjórnandi CHART, að með dagskrá hátíðarinnar í ár væri virkilega reynt að styrkja listsamfélagið en á þessum tímum, þegar tekið væri að rofa til eftir heimsfaraldur, væri mikil þörf á því. „Hátíðin hefur heldur betur vaxið og teygst í ýmsar áttir en við erum mjög ánægð með að þetta er enn þá einstök Kaupmannahafnar- upplifun,“ sagði Hjortenberg. „Nú erum við að koma úr afar erfiðri og einstakri innilokun; í fyrra gátum við ekki haldið kaupstefnuna með hefðbundum hætti vegna veirunnar. Þá hafði verið ákveðið að halda CHART með einungis kvenkyns listamönnum, til að benda á kynja- misréttið í listheiminum, en það var gert í uppákomum á vegum CHART sem voru haldnar í gall- eríunum sjálfum í höfuðborgum Norðurlandanna.“ Íslensku gall- eríin þrjú sem hafa tekið þátt á síð- ustu árum, i8, Hverfisgallerí og BERG Contemporary, sameinuðust þá um sýningu. „Þegar við sáum fram á að geta haldið hátíðina í ár stefndum vð hins vegar á dagskrá sem væri í góðu kynjajafnvægi. Þá fórum við líka að reyna að skapa nýja markaði og möguleika fyrir þau gallerí sem yrðu með,“ segir Hjortenberg. „Faraldurinn hefur reynst mörgum galleríum, rétt eins og söfnum og sýningarsölum, afar erfiður. En nú er kallað eftir gæðum, lífið heldur áfram og galleríin bregðast hér við með því að sýna mikil gæðaverk. Á milli hinna reyndu gallería hér á CHART í ár erum við með nokkur ný og tilraunakenndari og það finnst okkur mikilvægt og gaman; nýliðar og tilraunir við hlið hinna reyndari. Þá setjum við í fyrsta skipti upp bókamessu fyrir útgáfu- samfélagið – það er tilraun, að kanna nýjar leiðir. Við erum alltaf að reyna að auka áhuga fólks á sam- tímamyndlist sem mikilvægum þætti nútímalífs.“ Í tengslum við bókamessuna var fyrrnefndur Loji Höskuldsson feng- inn til að vinna verk í samvinnu við CHART og danska hönnunarfyrir- tækið HAY. Hann saumaði út í tíu metra langan sófa skrautlegt verk sem hefur vakið mjög mikla athygli. „Dolfallið yfir Ólafi“ Ekki hefur áhugann vantað á CHART og með hverju árinu fram að faraldri streymdu sífellt fleiri gestir í Charlottenborg, árið 2019 komu 25 þúsund manns. Hjortenberg sagðist ekki búast við alveg svo mörgum nú – „mikil- vægast er að þeir sem koma upplifi gæði“ – en það kemur blaðamanni samt vissulega á óvart að sjá nánast engan með andlitsgrímu og svona marga samankomna. Handspritt er aðgengilegt alls staðar og spurt er um „kórónupassa“ til að fullvíst sé að gestir séu bólusettir. Börkur Arnarson, galleristi í i8, hefur margoft tekið þátt í CHART. Fyrir faraldur tók gallerí hans þátt í allt að átta listkaupstefnum árlega en í ár ákvað hann að taka ekki þátt í neinni nema CHART. Hvers vegna? „Hún er ólík öllum öðrum kaup- stefnum. Hún er lítil og markviss, með galleríum af þessu svæði. Hér þekkjast allir vel sem sýna og fólkið sem kemur á messuna kemur gjarn- an alla dagana. Það er mikið um að fagfólkið í þessari vinnu okkar hitt- ist hér og ég hef alltaf viljað koma,“ sagði Börkur. Mikill erill hafði líka verið á sýningarsvæði hans, þar sem hann sýndi átta stórar vatnslita- myndir eftir Ólaf Elíasson. Og áhuginn á verkunum var sýnilega mikill. „Fólk er mjög spennt fyrir því sem við erum að gera og ekki síst núna þegar við erum með öll þessi splunkunýju verk eftir Ólaf. Það er vissulega gaman að við séum eina galleríið á Norðurlöndum sem sýnir verk hans.“ Og það hefur gengið frábærlega. „Já – bara ein myndanna á sýning- unni er óseld. Fólk er dolfallið yfir Ólafi og einmitt þessum verkum hér núna. Það er gaman að setja hér upp svona markvissa sýningu með verkum hans eins. Það á eftir að verða kjaftfullt hér um helgina, fólk þyrpist alltaf að til að skoða, áhuginn á CHART er mik- ill. Fólk kemur hér til að njóta þess að skoða myndlist í þessum sögu- frægu sölum. En dagurinn í dag, sá fyrsti, er svolítið helgaður við- skiptum með listina,“ sagði Börkur. „Er ákveðin hátíð“ „Það er einstaklega gleðilegt að vera komin aftur hingað,“ sagði Kristína Aðalsteinsdóttir sem stóð vaktina á sýningarsvæði gallerísins BERG Contemporary en það sýnir verk eftir Doddu Maggý og Huldu Stefánsdóttur. „Eftir stoppið af völdum veirunnar finnst mér mjög gott að byrja hér á CHART, hér þekkir maður mörg andlit og það eru fleiri íslensk gallerí með okkur. Þetta er ákveðin hátíð sem hefur verið gaman að upplifa á hverju ári. Við förum á aðrar stærri messur en það er alltaf gaman að upplifa þær sterku tengingar sem eru hér.“ Kristína sagði blaðamanni og list- unnendum sem komu þar að frá verkunum, meðal annars að Dodda Maggý hefði ákveðnar rætur við danska menningu og hefðu verk hennar til að mynda verið sýnd í Statens Museum for Kunst. „Svo var hún með mjög fína einkasýningu í ARoS-safninu í Árósum og hlaut fyrir „Young Talent Awards“,“ sagði hún og útskýrði líka hvernig áður ósýnd verk Huldu byggðust á rannsóknum hennar á málverkinu og eðli þess. „Rétt eins og minn- ingar eru marglaga fyrirbæri þá eru málverk það líka. Þegar þau koma saman eins og hér verður eitthvað einstakt til fyrir þér sjálfum,“ sagði Kristína. Jákvæð spenna í lofti Það er alltaf áhugavert að berast milli sýningarsalanna á CHART. Í sumum eru stök gallerí með sýning- ar, í öðrum stilla tvö eða þrjú verk- um sínum fram. Fjölbreytileikinn er mikill, verk eftir reynda listamenn sem nýliða; flesta frá Norðurlönd- unum en á milli sýna gallerí verk eftir stjörnur annars staðar að. Það vekur athygli að Specta-galleríð danska sýnir fjölda misstórra mál- verka eftir íslensku listakonuna Þórdísi Aðalsteinsdóttur en beint á móti sýningarrými þess er sýning Hverfisgallerís. Sigríður galleristi dásamaði áhuga gestanna. „Og það er eins og Covid sé ekki til hér í Danmörku! Engir með grímu, engar kvaðir, en maður finnur hvað allir eru ánægðir með að geta komið saman að nýju. Það er einver jákvæð spenna í loft- inu. Svo finnst mér sem messuhald- ararnir hafi tekið einhver aukaskref með útfærsluna og styðji betur við sýnendur en fyrr,“ sagði hún. „Auðvitað var maður hikandi við að fara af stað aftur og ég tók var- færnislega ákvörðun um að koma hingað en er ofboðslega glöð yfir að hafa gert það. Og mér finnst fólk vera að njóta þess enn meira að vera hér en áður,“ sagði Sigríður. Spennandi byrjun Eitt hinna nýju og oft tilrauna- kenndu norrænu gallería sem var boðið að taka þátt í ár er Þula sem Ásdís Þula Þorláksdóttir stofnaði í fyrra og rekur við Hjartagarðinn við Laugaveg. Ásdís sýnir málverk eftir Kristínu Morthens og útskýrði þau af ástríðu fyrir áhugasömum gestum þegar blaðamaður kom að. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í svona alþjóðlegri list- messu og það er ótrúlega spennandi og gaman, að hitta bæði listunn- endur og aðra gallerista. Svo finnst mér mjög ánægjulegt að kynnast hér norrænu listflórunni,“ sagði hún svo. Það er mikið nábýli á sýningum ungu galleríanna á CHART. Hlæj- andi segist Ásdís stundum vera spurð um önnur verk en þau sem hún sé að sýna. „En þau hjá CHART völdu þessi þrjú gallerí hér í þessum sal saman þannig að verk- in myndu tala saman í rýminu. Það finnst mér vel gert og þetta er allt bara mjög gaman.“ „Gleðilegt að vera komin aftur“ - Fjögur íslensk gallerí eru meðal hátt í fjörutíu norrænna gallería sem sýna úrval verka listamanna sinna á CHART-listkaupstefnunni í Kaupmannahöfn um helgina - Kallað eftir gæðum Áhugi Börkur Arnarson og starfsfólk hans í i8 galleríi hafði vart undan á fyrsta degi CHART við að svara spurningum um ný vatnslitaverk Ólafs Elíassonar sem seldust vel. Morgunblaðið/Einar Falur Fjölmenni Sigríður L. Gunnarsdóttir galleristi í Hverfisgalleríi upplýsir hér sýningargest um verk eftir Hrafnkel Sigurðsson. „Það er eins og Covid sé ekki til hér í Danmörku,“ sagði hún. Marglaga Gestir virða fyrir sér málverk eftir Huldu Stefánsdóttur á sýn- ingarsvæði BERG Contemporary en Hulda fæst við eðli málverksins. Nýliði Ásdís Þula Þorláksdóttir, galleristi í Þulu, segir hér gestum frá splunkunýjum málverkunum eftir Kristínu Morthens sem hún sýnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.