Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Page 23
Á 14. þinginu voru níu fulltrúor
mœttir, sem setið höfðu stofnþing
samtakanna árið 1959. Starfa þeir
enn af fullum krafti. — Fremri röð:
Theodór, Sigursveinn, Ingibjörg. —
Aftari röð: Trausti, Eggert, Heið-
rún, Hulda, Eiríkur, Sveinn.
Aivinnu- og endurhæf-
ingarmál.
1. Þingið lýsir yfir eindregnum stuðn-
ingi við þingsályktunartillögu Odds Ólafs-
sonar og Ólafs G. Einarssonar, sem sam-
þykkt var á síðasta Alþingi, um bætta
menntunaraðstöðu fjölfatlaðra barna og
unglinga og skorar á ríkisstjórnina að
flýta lagasetningu þar um.
2. Þingið lýsir stuðningi við fyrirhug-
aðar framkvæmdir Endurhæfingarráðs,
varðandi menntun og starfsþjálfun fatl-
aðs fólks, sem komið er af skólaskyldu-
aldri.
3. Þingið felur stjórn Landssambandsins,
að kanna möguleika á að senda fulltrúa
á aðalfundi atvinnurekenda, til þess að
kynna atvinnumál öryrkja og benda á
æskilegar úrbætur. — Jafnframt leitist
félagsdeildirnar við að hafa sem bezt sam-
band við þá aðila, sem hafa vinnumiðlun
með höndum.
4. Þingið skorar á tollayfirvöld að fella
niður alla tolla af hráefni til vinnustöðva
öryrkja.
5. Þingið leggur áherzlu á, að flýtt verði
ráðstefnu þeirri, sem Endurhæfingarráð
hefur fyrirhugað að haldin verði með ör-
yrkjafélögum, bæjar- og sveitarfélögum
og öðrum aðilum, um stofnun verndaðra
vinnustofa.
6. Þingið lýsir sérstakri ánægju yfir því
skrefi, sem stigið hefur verið í endurhæf-
ingarmálum, með fyrirhugaðri prófunar-
stöð örykja og fagnar þeim árangri, sem
Endurhæfingarráð hefur þegar náð.
Fararlækjamál.
1. Á næsta ári verði úthlutað 500 bif-
reiðum til öryrkja.
2. Af hinni árlegu úthlutun verði felld
niður að fullu aðflutningsgjöld af allt að
50 bifreiðum til þeirra öryrkja, sem ekki
komast ferða sinna án farartækis og fái
þeir jafnframt endurveitingu á þriggja
ára fresti. Ennfremur verði hin almenna
SJÁLFSBJÖRG 23