Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 110
Það er
fallegt að
bera fram
sælkera-
bakka eins
og ég gef
hér hug-
mynd að.
Við borð-
um jú fyrst
með aug-
unum, ef
svo má að
orði kom-
ast, eins og
allir fagur-
kera og
sælkerar
vita.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Rósu Guðbjartsdóttur,
bæjarstjóra í Hafnarfirði,
er margt til lista lagt og er
höfðingi heim að sækja. Hún
er ástríðukokkur af guðs náð
og mikill sælkeri. Rósa nýtur
sín í eldhúsinu og finnst fátt
skemmtilegra en að töfra
fram kræsingar fyrir fjöl-
skylduna og vini.
Rósa er líka mikill fagurkeri og það
sést vel þegar hún ber kræsingar
fram á fagurlegan hátt þar sem
hugsað er fyrir hverju smáatriði.
Rósa hefur einnig verið iðin sem
rithöfundur og gefið út nokkrar
matreiðslubækur, auk þess að vera
ritstjóri hjá Bókafélaginu. Rósu
finnst sérstaklega gaman að halda
boð og nýtur hvert tilefni til að
bjóða heim í sælkeraveislu.
Við fengum Rósu til að gefa
lesendum uppskriftir að skot-
heldum partíréttum fyrir sumar-
gleðina sem fram undan er. „Það er
fallegt að bera fram sælkerabakka
eins og ég gef hér hugmynd að. Þið
veljið einfaldlega það hráefni sem
ykkur langar að bjóða upp á, osta,
kex, skinku, pylsur, lax, grænmeti,
ávexti, þurrkaða og ferska, kaldar
sósur og hvað sem ykkur dettur í
hug og gjarnan smá sætmeti með.
Blandað og raðað fallega saman
á stórum diski eða bakka og úr
verður ómótstæðilegur partíplatti
sem mjög fljótlegt er að búa til.
Það getur líka verið skemmtilegt
að hafa ákveðið þema, til dæmis
undir ítölskum eða mexíkóskum
áhrifum og velja þá þannig á bakk-
Partíplattinn sem slær í gegn
Rósa Guðbjarts-
dóttir var ekki
lengi að henda
í partíbakka
þótt nóg sé
um að vera í
bæjarpólitíkinni
þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ekki amalegt
að hafa svona
bakka á borðum
í útskriftar-
veislunni.
ann. Hafið í huga að velja fjölbreytt
hráefni og fallega liti. Við borðum
jú fyrst með augunum, ef svo má
að orði komast, eins og allir fagur-
kera og sælkerar vita,“ segir Rósa
og brosir.
Einnig gefur Rósa hérna upp-
skriftir að tveimur einföldum og
skotheldum ídýfum sem eru til-
valdar í sumarpartíin og útskriftar-
veislurnar. „Þær eru báðar úr bók-
inni minni Partíréttir sem kom út
árið 2013 og standa alltaf fyrir sínu.
Einnig læt ég fylgja með snakk-
rétt sem afar einfalt er að útbúa en
kemur skemmtilega á óvart.“
Partíplatti fagurkerans
Að þessu sinni notaði ég parmesan-
og gráðaost, skinku, sólstafi, reykt-
an silung, tvær tegundir af kexi
og parmesanbrauðstangir, ólífur,
granatepli, kíví, bláber, þurrkaðar
gráfíkjur og apríkósur, pistasíu-
hnetur, gúrku, kokkteiltómata,
vínber, harðfisk, hvítlauksídýfu og
gvakamóle og lítil Lindubuff.
Hér er svo á ferðinni pitsueðla
sem enginn stenst. „Þetta er vin-
sælasta ídýfan, eða eðlan, á mínu
heimili.“
Pitsueðla – pitsa án brauðs
400 g rjómaostur
100 g sýrður rjómi
1 dl pitsusósa
1 msk. pitsukrydd
1 dl sveppir, smátt saxaðir, má
sleppa
1 dl græn paprika, smátt söxuð
80 g pepperoni, smátt skorið
4 hvítlauksrif, marin
2–3 dl rifinn ostur
Fersk basilíka, til skrauts
Hitið ofninn í 200 °C gráður.
Hrærið pitsukryddinu saman við
rjómaostinn og sýrða rjómann og
setjið í botninn á eldföstu móti.
Setjið pitsusósuna þar ofan á, 1
dl af rifnum osti og síðan sveppi.
Dreifið loks papriku og pepper-
oni yfir, hvítlauk og afganginum
af rifna ostinum. Bakið í 10-15
mínútur, eða þar til osturinn er
orðinn sjóðandi heitur.
Heitt nachos
170 g tortillaflögur
2 dl salsasósa, bragðstyrkur að
smekk
½ rauðlaukur, smátt saxaður
½ græn paprika, smátt söxuð
1 dl maískorn
1 dl rifinn ostur
Hitið ofninn í 200 °C gráður.
Dreifið tortillaf lögunum í eldfast
mót. Dreifið salsasósu yfir, síðan
rauðlauk, papriku og maískorni.
Sáldrið osti yfir allt saman og
bakið í 7–10 mínútur.
„Það er ótrúlega ljúffengt að
baka gömlu, góðu kartöfluflög-
urnar með sósu í ofni.“
Kartöfluflögur
bakaðar í ofni
175 g kartöfluflögur
80–100 g rjómaostur með sól-
þurrkuðum tómötum
1 msk. kapers eða ólífur, smátt
saxaðar
Hitið ofninn í 225°C gráður.
Dreifið kartöfluflögum í eld-
fast mót. Bræðið rjómaostinn
í litlum potti við vægan hita.
Hellið honum síðan yfir kartöflu-
f lögurnar, stráið kapers yfir eða
ólífum og bakið í 5 mínútur. ■
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
astaxanthin
Viltu einstaka vörn gegn geislum
sólar og bætt rakastig húðarinnar?
Öflug virkni fyrir glóandi húð
Fæst hjá N1, OLÍS,
veiðibúðum og veidikortid.is
veidikortid.is
Frelsi til
að veiða!
Ertu búinn að fá
þér Veiðikortið?
8.900 kr
Vatnaveiðin er
komin á fullt!
6 kynningarblað A L LT 21. maí 2022 LAUGARDAGUR