Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 33
kveikju. Breidd skurðarins var um
tveir metrar og dýptin um 80 sentí
metrar. Hleðslurnar voru 100 grömm
hver og þær settar niður með 40
sentímetra millibili.
„Þessar litlu tilraunir sýna ekki
annað en það, að skurðsprenging
getur heppnast hér í mýrum.
Tilraunir með hleðslustærð og
millibil þarf að gera í mismunandi
mýrarjarðvegi, áður en sagt verður
frekar um þetta. Einkum væri
fróðlegt að vita, hvernig aðferðin
reyndist í ristumýrum.“ Mýrar sem
búið var að rista af torf ofan af til að
nota í húsagerð eða reiðing.
Sprengt þar sem erfitt er
að koma að tækjum
Erlendis voru skurðasprengingar
talsvert notaðar til framræslu,
sérstaklega ef ræsa þurfti land fram
hratt og þar sem erfitt var að koma að
tækjum. Aðferðin þykir tiltölulega
ódýr og notuð enn í dag við vissar
aðstæður.
Í bandarísku tímariti, Farm Show,
frá áttunda áratug síðustu aldar er
viðtal við mann sem sérhæfði sig
í skurðasprengingum og hafði haft
atvinnu af þeim í rúman áratug en
aðferðin er þekkt frá því í byrjun
tuttugustu aldarinnar. Í viðtalinu
segir að maðurinn hafi ferðast um
Bandaríkin þver og endilöng sem
sérfræðingur í notkun á sprengiefni
í landbúnaði. Algengasta notkun á
sprengiefni til skurðagerða er að
sögn viðmælandans í landi sem erfitt
er að koma að tækjum eða landi sem
er of blautt fyrir stórar gröfur. Að
hans sögn er best að sprengja rakan
jarðveg skömmu eftir að frost er
farið úr jörðu á vorin. Auk þess sem
sprengjusérfræðingurinn segir að sá
kostur fylgi skurðagerð með dínamíti
að það sem upp úr skurðinum kemur
dreifist yfir stórt svæði en liggi ekki
á skurðbakkanum sem uppgröftur.
Tilraunir hérlendis
Doktor Bjarni Guðmundson, fyrr
verandi prófessor við Landbúnaðar
háskólann á Hvanneyri, segir í bók
sinni Yrkja vildi eg jörð, þar sem
hann fjallar um ræktunarhætti í
Íslandi, að skurðasprengingar hafi
ekki valdið neinum straumhvörfum
hér á landi. Hann segir að aðferðin
hafi verið reynd á Hvanneyri á
símum tíma og að sprengingarnar
hafi komið að svipuðum notum hér
á landi og erlendis en að það hafi
varla svarað kostnaði að beita þeim.
Í bók Árna Eyland, Búvélar
og ræktun frá árinu 1950, segir
frá tilraun með skurðagerð með
sprengiefni árið 1946. Þar segir að
stórhækkað kaupgjald og skortur
á mannafla hafi valdið auknum
áhuga fyrir að nýta sprengiefni til
skurðagerðar á ný.
„Verkfæranefnd gerði tilraunir
með skurðasprengingu árið 1946 og
hélt námskeið til að kenna verkið.
Telur nefndin að 1 kg af sprengiefni
sprengi 3,2 rúmm. af jarðvegi í
skurði, sem verður 3 m breiður
að ofan, 80 cm djúpur og með 60
cm botnbreidd. Sprengiefnið til að
sprengja rúmm. kostaði þá um kr.
2,20. Þar við bætist vinna, sem er
tiltölulega lítil.“
Árni segir að áríðandi sé að
stinga vel og djúpt fyrir skurðinum
sem sprengja skal. Hann segir að í
stað þess að grafa fyrir skurðinum
með skóflu sé best að gera það með
kílplóg sem dreginn sé af traktor.
„Ef rækilega er skorið fyrir, tryggir
það mjög, að vel kastist upp úr
skurðinum við sprenginguna og
hliðar skurðarins verða miklu
sléttari og jafnari en þegar lélega
er stungið fyrir.“
Að sögn Árna er sprenging
skurða bundin við verkefni sem ekki
er þörf á fullkominni framræslu eða
ekki er kleift að ráðast í hana, „eins
og getur verið í högum og á engjum“
og bætir við síðar að „sprengdir
skurðir eru engin framræsla til
túnræktar, ef þeir eru ekki dýpkaðir
til fullrar dýptar“ með skurðgröfu.
Nám í skurðasprengingum
Undir lok fjórða áratugar síðustu
aldar gaf Verkfæranefnd ríkisins út
leiðbeiningar um notkun skurða
sprengiefnis og haldin voru
námskeið í skurðasprengingum.
Leiðbeiningarnar eru nákvæmar og
þeim fylgja ítarlegar öryggisreglur.
Skurðurinn
„Eftir að lega skurðarins hefur verið
ákveðin, er miðlína hans stungin út.
Breiddin að ofan mun á venjulegum
skurðum hæfilega ákveðin um 3,0
m, eða 1,5 m til hvorrar handar frá
miðlínu. Síðan er stungið fyrir með
skóflu á venjulegan hátt. Hugsanlegt
væri einnig að plægja fyrir
skurðinum, t. d. með dráttarvél.“
Sprengiefninu komið fyrir
„Útbúa þarf stöng til þess að gera
með holur þær sem sprengiefninu er
komið fyrir í. Gott er að hafa til þess
vatnsleiðslupípu, 1 1/2–2 þumlunga
að innanmáli, setja járnbrodd í annan
enda hennar, en sjóða þverstöng á
hinn endann. Stöng þessi má vera
um 1 m á lengd. Í blautum mýrum
má einnig nota tréskaft.
Með stönginni eru gerðar holur í
miðlínu skurðarins með 40–50 cm
millibili, meira í blautum jarðvegi
en þurrum. Þurfa menn að reyna
fyrir sér um það á hverjum stað.
Holan sé það djúp, að 10–30 cm
verði frá yfirborði jarðar niður að
sprengiefninu. Í hverja holu er sett
eitt eða fleiri stykki af sprengiefninu
í þá dýpt, sem áður er sagt. Má
þrýsta stykkjunum niður með skafti,
en gera verður það með varasemi
og ekki með járni. Bezt er, að vatn
sé í holunni yfir sprengiefninu.
Að öðrum kosti skal með fætinum
fylla holuna með jarðvegi. Loft má
helzt ekki komast að. Ef mishæðir
eru, þarf að láta meira sprengiefni í
hæðirnar, 2–3 stykki í hverja holu,
en í venjulegri blautri mýri mun
almennt svara bezt kostnaði að nota
aðeins 1–1/2 stykki í hverja holu,
eða 2 stykki í aðra hverja holu og
eitt í hina. Hvert stykki er % enskt
pund að þyngd, eða um 225 g.“
Sprengingin
„Tekinn er púðurþráður, sem er um
50 cm að lengd. Öðrum enda hans er
stungið inn í hvellhettuna og klemmt
að með töng við op hvellhettunnar.
Henni er síðan komið fyrir inni í einu
stykki af sprengiefni. Skal bora fyrir
henni með spýtu, sem hefur verið
ydd, ekki með járni, svo djúpt, að
hvellhettan hyljist. Loks er bundið
fyrir ofan með snæri. Þessu stykki
af sprengiefninu er komið fyrir
einhvers staðar í miðlínu skurðarins
á sama hátt og hinum. Nú er skorið
upp í þann enda þráðarins, sem er
frjáls, og kveikt í með eldspýtu.
Þegar blossi myndast, eiga allir að
flýta sér í burtu í 170 m fjarlægð.
Við sprenginguna kastast jarðefnin
hátt í loft upp, og megnið af þeim
kemur niður í meiri eða minni
fjarlægð frá skurðinum. Útjöfnun
ruðnings verður því lítil.“
Afköstin
„Í blautri mýri verður skurðurinn
nálægt 80 cm djúpur, sé eitt stykki
sett í hverja holu, breiddin að ofan,
samkvæmt áður. Sprengiefninu
komið fyrir, 3,0 m, en botnbreiddin
verður um 60 cm. Eftir þessu verður
hver lengdarmetri í skurðinum um
1,44 m3. Í hvern m þarf við góð
skilyrði 2 stykki af sprengiefninu
eða um 450 g. Það svarar til þess, að
1 kg af sprengiefni rými um 3,2 m
af jarðvegi. Sé IV2 stykki í hverri
holu eða 1 í annarri og 2 í hinni,
verður skurðurinn um 1,0 m á dýpt
og breiðari í botninn.“
Verðið
„Sprengiefnið flyzt í trékössum, og
eru 100 stykki í hverjum. Kassinn
kostar í Reykjavík í útsölu um kr.
155.00 eða hvert kíló tæpar 7.00
krónur. Hver hvellhetta kostar 30
aura og hvert fet af sprengiþræði
20 aura. Hver teningsmetri í skurði
kostar þá í efni um kr. 2.20. Í þurrum
jarðvegi verður þetta eitthvað hærra.
Geymsla. Geymslan skal vera hrein,
þurr, köld, loftgóð, örugg og vel læst
fyrir eldi. Hún skal vera í nokkurri
fjarlægð frá byggingum, vegum og
öðrum mannvirkjum. Kössunum
skal stafla þannig, að vörumerkið
snúi upp. Engar eldspýtur eða
eldfim efni, t. d. olía, benzín,
málning, mega vera í geymslunni.
Ekki mega vera þar opin ljós.
Sprengiefnið þolir ekki
mikinn þrýsting, og forðast skal
að hafa eldfim efni innan 8 m
frá geymslunni. Geyma skal
sprengiþráð og hvellhettur á
sama hátt, en ekki í námunda við
sprengiefnið, ef það er varðveitt í
sömu geymslu.“
Flutningur
„Ekki má flytja með sprengiefninu
olíur, málma, eldfæri eða önnur
efni, er gætu valdið sprengingu.“
Sjálfsagt að hlaupa frá
skurðinum meðan beðið er
eftir sprengingunni
Í fyrsta tölublaði og 14. árgangi
Búfræðingsins árið 1948 fjallar
Kristján Karlsson, skólastjóri á
Hólum, um skurðasprengingar
með eftirfarandi orðum.
„Í tvö undanfarin ár hafa verið
sprengdir skurðir á Hólum. Fyrra
vorið var stungið fyrir skurðinum
með spaða á venjulegan hátt.
Sprengingin heppnaðist víðast
hvar vel. En á nokkrum stöðum,
þar sem jarðlagið var einna seigast,
bar á því, að skurðbarmarnir
undu upp á sig og virtust hækka.
Þetta mun stafa af því, að með
fyrirstungunni hefur ekki náðst
að stinga í gegnum reiðinginn og
hann slitnað því í sundur í miðju
skurðsins og flettzt upp á barmana,
í staðinn fyrir að slitna sundur
undir fyrirstungunni og þeytast í
loft upp.
Í fyrra var plægt með jarðýtu
fyrir skurðinum. Það var mikill
vinnusparnaður.
Þá var einnig farið með
kýlplóg eftir plógfarinu. Hann
skar um 80 cm lóðréttan skurð
niður. Á þessum kafla skurðarins
heppnaðist sprengingin ágætlega.
Barmarnir voru lóðréttir. En alveg
ótættir. Þeir voru eins sléttir og
þegar bezt er skafið með spaða og
sneru hvergi upp á sig.
Ég tel víst, að hægt væri að fá
smíðað bogið járn í kýlplóginn,
sem gæti skorið fyrir skurðinum
með fláa í allt að því eins meters
dýpt. En væri skorið þannig fyrir
skurðum, hygg ég að víða væri
hægt að fá góðan árangur af
skurðasprengingum.
Þær henta þó sérstaklega,
þar sem hægt er að ná í vatn til
þess að skola skurðinn með eftir
sprenginguna. Ef vatnið er nógu
mikið og góður halli á skurðinum,
þarf ekkert að moka upp úr honum.
Vatnið hreinsar skurðinn og dýpkar.
Liggi skurðurinn gegnum þurran
jarðveg, er til bóta að veita vatni
á landið áður en sprengt er, svo að
jarðvegurinn verði vatnsþrútinn
þegar sprengja á.
Mér hefur virzt minnst af
ruðningi falla niður í skurðinn,
þegar hvass vindur stendur þvert
á skurðstefnuna þegar sprengt er.
Vindurinn bægir ruðningnum til
hliðar.
En þá er sjálfsagt fyrir þá, sem
vinna við sprenginguna, að hlaupa
frá skurðinum í vindinn, meðan
þeir bíða eftir sprengingunni,
því að grastægjur og steinagnir
geta borizt ótrúlega langt með
vindinum frá stórri sprengingu.“
Kristján minnir einnig á
nauðsyn þess að allir sem fáist
við skurðasprengingar, eða notkun
sprengiefnis á annan hátt, að kynna
sér leiðbeiningar og varúðarreglur
vel áður en verkið er hafið.
Lítil ræktunarprýði
Í Yrkja vil eg jörð segir Bjarni
Guðmundsson er hann sótti
námskeið í skurðasprengingum
á Hvanneyri árið 1962. „[. . .]
Nú var kveikt í hvellhettunni og
allir forðuðu sért hið bráðasta.
Sprengjurnar sprungu hver af
annarri við mikinn hávaða og
dökkur jarðvegsstrókur steig hátt
til lofts en féll svo dreifður til
jarðar. Óneitanlega mikilfengleg
sjón en ósköp var að sjá skurðinn
sem myndaðist hafði: hann var
sem jarðfall, tætingslegur og lítil
ræktunarprýði; minnti meira á
stríðsátakasvæði en friðsamlega
túnrækt. [...]Líklega var þetta
einn síðasti, ef ekki síðasta
skurðasprengingin sem gerð var
á Hvanneyri [...].“
Landbúnaður með dínamíti. Hand
bók fyrir bændur. Mynd / gutenberg.org
Dínamít gert klárt fyrir framræslu í Los Angeles 1924. Mynd / offbeatoregon.com
Trjástubbur fjarlægður með dínamíti
til að ryðja skóg til ræktunar.
Mynd / commons.wikimedia.org
Maður að sprengja fyrir skurði. Charles Rider, 1930. Olía á striga, 49,8 x 66
sentímetrar. Mynd / museumcollection.hagley.org