Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202238 SAGA&MENNING Í kaflanum „Misseristalið og til- drög þess“ eftir Þorkel Þorkelsson, í 1. tbl. Skírnis árið 1928, kemur meðal annars fram að nöfn viku- daganna eigi sér þó nokkra sögu. Ef litið er yfir síðurnar má sjá hvernig nafnagift daganna eins og við þekkjum þá tengist í raun þeim fræðum Egypta og ákvörðun um að tengja heitin við stjörnufræði. Vikan í Egyptalandi á 13. öld var semsé nátengd stjörnufræði og fengu dagar vikunnar nöfn eftir þeim reikistjörn- um er þekktust á þeim tíma. Samkvæmt stjörnufræðum töldu menn sólina, tunglið, Mars, Venus, Júpíter, Merkúr og Satúrnus helstu reikistjörnurnar og að fjarlægð þeirra frá jörðu fylgdi þessari röð. Var almenn trú þess efnis að dag- legt líf okkar manna færi eftir áhrifum stjarnanna, en talið var að sú stjarna sem dagurinn var kenndur við hefði bæði sérstök umráð yfir fyrstu stundu dagsins, auk þess sem allur sá dagur væri sérstaklega á valdi hennar. Sólin hefði umráð yfir fyrstu klukkustund sunnudagsins og því var hann kenndur við hana og nefndur dies solis (sólardagur eða sunnu- dagur). Sömu sögu var að segja með næsta dag sem var þá kenndur við tunglið og nefndur mánadagur (dies lunæ). Mars átti fyrstu stundu þriðjudagsins, sem þess vegna varð hans dagur (dies Martis), og mið- vikudagurinn var dagur Venusar (dies Veneris). Júpíter stjórnaði fimmtu- deginum (dies Jovis), Merkúr föstu- degi (dies Mercurii) og laugardagur var dagur Satúrnusar (dies Saturni). Dagar heiðingjanna í dag Þarna á milli egypskrar stjörnufræði og svo heiðinna siða má finna sterka tengingu í fyrstu tveimur þeim nöfn- um er telja dagana. Sólardagurinn egypski heitir hjá heiðingjunum (okkur) sunnudagur enda þýðir sunna sól. Tunglið, öðru nafni máni, kennir mánudag. Venusardagurinn okkar er þó ekki miðvikudagur held- ur föstudagur – enda Venus/Freyja þeirra heiðnu vill tengjast frjósemi og þar frjádegi eða föstudegi. Þriðju-, miðviku- og fimmtudagar heiðingja voru nefndir eftir guðunum Tý, Óðni og Þór (tirsdag, onsdag og torsdag á skandinavískunni) og svo var þvotta- dagurinn mikli og dagur reikistjörn- unnar Satúrnusar upp á Egypta kallaður lørdag /laugardagur. Í forn- íslensku hétu þó vikudagarnir okkar Íslendinga – líkt og hjá frændþjóðun- um: týsdagur, óðinsdagur, þórsdagur og frjádagur. Annars er víst rétt að geta þess að þrettándu aldar Egyptar höfðu beyg af laugardegi, degi Satúrnusar, en sú pláneta þykir hafa margþætt áhrif á mannkynið og helst ekki af góðu. Vanlíðan, hindranir og sorg, álög og þjáningar eru aðalsmerki hennar og merkilegt að vita hvort einhverjir skynja þau áhrif um helgar. Tunglið snýst að venju Hvað varðar mánuðinn í heild var hann upphaflega og er að sjálfsögðu enn í dag, tíminn sem tekur tunglið að snúast um möndul sinn – eða um það bil fjórar vikur. Þannig upphófst þetta eiginlega tímatal þjóða, en á öldum áður, er ekki var við rafljós að styðjast, varð fólk oft að sníða athafnir sínar eftir tunglskininu og þá nauðsynlegt að vita hvenær þess var von. Orðið mánuður er dregið af orðinu máni, sem merkir tungl eins og áður hefur komið fram og var tíminn talinn á milli tunglfyllinga, í kringum 30 dagar. Mánuðirnir okkar Íslendinga báru eilítið önnur nöfn hér áður fyrr og miðuðust þau gjarnan við veðurfar, búhætti eða annað sem stóð þeim nærri. Í Snorra-Eddu má finna örlítil tilbrigði við gömlu mánaðaheitin þó þau séu flest hin sömu, en tímatalið samkvæmt Snorra- Eddu var á þá vegu að allir mánuðirnir byrjuðu á sama (tólfta) töludegi hvers mánaðar eins og við þekkjum þá í dag. Tímatal Snorra-Eddu Vetur byrjaði 12. október á gormánuði og lauk 11. apríl í einmánuði. Sumar tók við af vetri og hófst með gaukmánuði þann 12. apríl en lauk á kornskurðar/ haustmánuði þann 11. október. Upptalning þeirra er eftirfarandi, frá og með vetri, 12. október. Gormánuður, ýlir/frermánuður, jólmánuður/mörsugur/hrútmánuður, þorri, góa, einmánuður. Sumar, frá og með 12. apríl: Gaukmánuður, sáðtíð/eggtíð/ stekktíð, sólmánuður/selmánuður, miðsumar/heyannir, tvímánuður, kornskurðarmánuður/haustmánuður. Hin nýrri/gömlu mánaðaheiti koma hér á eftir og er nákvæm dag- setning þeirra örlítið á flökti. Hin nýrri/gömlu mánaðaheiti Vetur: Gormánuður hefst fyrsta vetrardag, laugardag í 1. viku vetrar (21.–28. október), Ýlir hefst mánudag í 5. viku vetrar (20.–27. nóvember), Mörsugur hefst miðvikudag í 9. viku vetrar (20.–27. desember), Þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar (19.–26. janúar), Góa hefst sunnudag í 18. viku vetr- ar (18.–25. febrúar), Einmánuður hefst þriðjudag í 22. viku vetrar (20.–26. mars) Sumar: Harpa hefst sumardaginn fyrsta, fimmtudag í 1. viku sumars (19.–25. apríl), Skerpla hefst laugardag í 5. viku sumars (19.–25. maí), Sólmánuður hefst mánudag í 9. viku sumars (18.–24. júní), Heyannir hefjast á sunnudegi 23.–30. júlí, Tvímánuður hefst þriðjudag í 18. viku sumars (22.–29. ágúst), Haustmánuður hefst fimmtudag í 23. viku sumars (20.–26. september) Vetrarmánuðir Nafn gormánaðar vísar til sláturtíðar en fyrsti dagur hans er jafnframt fyrsti vetrardagur. Ýlir, sem næstur er honum í röðinni, er stundum nefndur skammdegismánuðurinn en uppruni nafns hans er óráðinn. Mörsugur, a.m.k. samkvæmt Gísla Jónssyni íslenskufræðingi, kennara og pistlahöfundar þáttanna um íslenskt mál í Morgunblaðinu, dregur nafn sitt af því að vera „sá mánuður er sýgur mörinn, ekki einasta úr skepn- unum, heldur nánast öllu sem lífsanda dregur“. Nafn mánaðarins þorra, sem hefst að loknum mörsugi, er tiltölulega óskilgreint, en einhverjir vilja meina að orðið sé skylt lýsingarorðinu þurr eða að þverra. Þegar hoppandi berrassaðir menn boða gæfu áhorfenda Bóndadag ber jafnan upp á fyrsta dag þorra og bar nú í ár upp á 21. janúar. Rétt er – fyrir þá er telja sig bónda á sínu heimili – að fara eftir þeim ís- lenska sið að vakna fyrir allar aldir og hoppa í kringum heimili sitt á öðrum fæti, hálfberrassaðir, dragandi brókina á eftir sér. Halda síðan veislu. Eða, eins og segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, að ... karlmenn skyldu fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og á skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra skálmina og láta hina lafa og draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa. Síðan áttu þeir að halda öðrum bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta þorradag; þetta er „að fagna þorra og veitir gæfu þeim er á horfa“ segja Þjóðsögurnar. (Þetta er rétt að muna að ári fyrir þá sem ekki vissu og ef til vill gott að klippa út greinina.) Áhugavert er að sjá auglýsingar fjölmiðla í tilefni bóndadagsins, en fyrstu slíkar auglýsingar á prenti birtust í dagblöðunum í kringum níunda áratuginn. Eyjafréttir, árið 1983, voru ekki að skafa utan af því og settu í blaðið auglýsingu frá blómaverslun þeirra Eyjamanna – Eyjablóm – sem klykkt er út með setningunni Hann á það skilið? Einhverjum þætti slíkt orðalag, þótt grípi sannarlega augað, nú ekki við hæfi, svona út á við a.m.k., í dag. Góa Öðrum hnöppum var að hneppa með blómaauglýsingar konudags- ins, sem birtust alla jafna tuttugu Austan sólar og sunnan mána: Hann á það skilið? Á hann það skilið? Fyrsta blaðaauglýsing konudagsblóma, sem kom frá Félagi garðyrkjubænda og blómaverslana árið 1957. Mynd / timarit.is Auglýsing Bóndadagsblómanna árið 1983 en þar virtust menn efins um ágæti þess að færa bændum blóm. Það hefur sjálfsagt verið eitthvað tilfallandi. Mynd / timarit.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.